Hoppa yfir valmynd
Kærunefnd útlendingamála

Nr. 510/2024 Úrskurður

Hinn 16. maí 2024 kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 510/2024

í stjórnsýslumálum nr. KNU24030045 og KNU24030046

 

Kæra […],

[…] og barna þeirra

á ákvörðunum Útlendingastofnunar

 

Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Hinn 7. mars 2024 kærðu […], fd. 1. september 1985, ríkisborgari Venesúela og Perú (hér eftir M) og […], fd. […], ríkisborgari Venesúela (hér eftir K), ákvarðanir Útlendingastofnunar, dags. 22. febrúar 2024, um að synja þeim og börnum þeirra, […], fd. […] (hér eftir A) og […], fd. […] (hér eftir B), ríkisborgurum Venesúela, um alþjóðlega vernd á Íslandi ásamt því að synja þeim um dvalarleyfi á grundvelli 74. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016.

Samkvæmt 6. mgr. 8. gr. laga um útlendinga skal kærunefnd meta að nýju alla þætti kærumáls og getur ýmist staðfest ákvörðun, breytt henni eða hrundið að nokkru eða öllu leyti. Þá getur nefndin einnig vísað máli til meðferðar að nýju hjá þeirri stofnun sem tók hina kærðu ákvörðun. Við meðferð kæru þessarar fer fram endurskoðun á ákvörðunum Útlendingastofnunar sem m.a. felur í sér sjálfstætt efnislegt mat á því hvort kærendur og börn þeirra eigi rétt á veitingu alþjóðlegrar verndar á grundvelli 1. eða 2. mgr. 37. gr. laganna, hvort skilyrði séu fyrir veitingu dvalarleyfis á grundvelli mannúðarsjónarmiða samkvæmt 74. gr. laganna og hvort skilyrði fyrir brottvísun séu uppfyllt ef svo á við. Auk þess fer fram skoðun á því hvort formreglum laga um útlendinga og stjórnsýslulaga nr. 37/1993 hafi verið fullnægt. Kröfur í máli þessu eru í samræmi við framangreint.

Kæruheimild er í 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.

Málsatvik

Samkvæmt lögregluskýrslu komu kærendur til landsins frá Venesúela og lögðu fram umsóknir um alþjóðlega vernd fyrir sig og börn sín 21. janúar 2023. Kváðust kærendur hafa flúið Venesúela vegna ástandsins þar og til að leita að betra lífi. M hafi starfað við að selja fatnað og K hafi verið heimavinnandi. M og K ættu foreldra í heimaríki og K ætti systur hér á landi. M hafi fengið skot í sig í heimaríki og væri með háþrýsting.

Kærendur komu til viðtals hjá Útlendingastofnun 27. júní 2023 og greindu frá ástæðum flótta síns. M kvaðst vera með perúskt og venesúelskt ríkisfang. Hann sé fæddur og uppalinn í borginni ]…} í Miranda fylki í Venesúela þar sem hann hafi verið búsettur þegar hann hafi flúið frá heimaríki. M greindi frá því að hafa verið að keyra flotta bifreið í bænum Vatire nálægt borginni Karakas fyrir tíu árum þegar tveir vopnaðir einstaklingar á mótorhjólum hafi birst. M hafi orðið taugaóstyrkur og reynt að keyra í burtu en hafi klesst á vegg með þeim afleiðingum að eitt dekk hafi farið af bifreiðinni. Þá hafi einstaklingarnir orðið reiðir og hafi skotið á M. Þeir hafi skotið M sjö sinnum og haldið að hann væri dáinn. M hafi ekki vitað og viti ekki enn hverjir þetta voru, þar sem þeir hafi verið með hjálma. M þyki óþægilegt að vita ekki til þess hvort hann hafi hitt þá aftur eða hvort þeir viti að hann sé á lífi. Þetta atvik hafi verið fyrir um tíu árum síðan en árásarmennirnir hafi oft gert vart við sig í gegnum tíðina og stundum hafi M verið hótað.

Árásin hafi verið tilkynnt til lögreglu án tafar. M hafi verið nær dauða en lífi eftir árásina en móðir hans hafi talað við lögregluna. M greindi frá því að þar sem þetta hafi verið skotárás hafi lögreglan litið á þetta sem átök á milli glæpamanna. Ekki hafi verið tekin lögregluskýrsla af M þar sem lögreglan hafi ekki fundið þá seku. M hafi óskað eftir skýrslu um atvikið frá CICPC lögreglunni en hann hafi bara afrit af beiðni um skýrsluna. Foreldrar hans hafi orðið fyrir fjárkúgun af hendi lögreglunnar í kjölfar árásarinnar. Þá greindi M frá því að hann treysti engum í Venesúela, hvorki glæpamönnum né lögreglunni.

M greindi eins frá því að hafa orðið fyrir ofsóknum af hálfu glæpamanna. Þeir ráðist gegn fólki sem eigi peninga, M sé grafískur hönnuður og móðir hans framleiði föt. M hafi mestmegnis borist munnlegar hótanir frá bæði lögreglu og glæpamönnum. M hafi fengið hótanir í smáskilaboðum í Venesúela en hann hafi skipt um síma og aðspurður kvaðst M hafa eytt skilaboðunum. M hafi ekki leitað aftur til lögreglunnar. M greindi frá því að A sé einhverfur og að hótanir og atburðir í Venesúela hafi haft mikil áhrif á hann. M hafi aðstoðað marga með heilsufarsvandamál í 20 ár þegar hafi gengið vel fjárhagslega og vegna þess hafi hann fengið mikla aðstoð í kjölfar árásar á hann.

K greindi frá því að vera fædd í Karakas og uppalin í borginni […] í Miranda fylki í Venesúela þar sem hún hafi verið búsett þegar hún hafi flúið heimaríki. K hafi ekki verið meðlimur í stjórnmálaflokki en hafi stutt samtök einhverfra í heimaríki. Aðspurð kvaðst K vera hluti af meirihluta sem sé bældur niður af ríkisstjórninni. K greindi frá því að síðastliðin 20 ár hafi verið mikið óöryggi og fátækt í Venesúela. Fyrir um tíu árum síðan hafi verið ráðist á M og hann næstum dáið. M hafi farið í fjölda aðgerða og hafi K stutt hann í bataferlinu undanfarin ár. Í kjölfar árásarinnar hafi þau verið áreitt af glæpamönnum og lögreglumönnum. Kærendum hafi borist símtöl og þeim hótað að A yrði rænt. Fyrir um sex til sjö árum hafi um átta lögreglumenn komið heim til þeirra. Lögreglumenn hafi tekið M fáklæddan út úr húsinu, ýtt við K og tekið bílinn þeirra. Stuttu síðar hafi lögreglan reynt að kúga af þeim fé í skiptum fyrir bílinn.  Þá greindi K frá því að farsíma hennar hafi verið stolið tvisvar sinnum og lögreglan hafi krafið þau um gjald fyrir að reka fatabás á götumarkaði. K kvaðst óttast að börnum sínum yrði rænt eða þau drepin snúi fjölskyldan aftur til Venesúela.

Kærendur lögðu fram fjölda gagna við meðferð mála sinna hjá Útlendingastofnun m.a. lögregluskýrslu frá CICPC lögreglunni. Skýrslan ber með sér að vera frásögn M af umræddri skotárás. Samkvæmt skýrslunni á skotárás að hafa átt sér stað 9. janúar 2013. Dagsetning skýrslunnar er 20. janúar 2013, en dagsetning á kæru til lögreglu er 20. janúar 2023.

Barn kærenda A mætti til viðtals hjá Útlendingastofnun 15. ágúst 2023 ásamt löglærðum talsmanni sínum og túlki. Í viðtali sínu kvaðst A hafa liðið illa í Venesúela. Þar hafi verið mikið af vondu fólki sem ræni börnum og sem hafi skotið föður hans. A hafi stundað nám fimm daga vikunnar en skólinn hafi verið frábrugðinn skólum á Íslandi. Skólinn hafi verið lítill, það hafi ekki verið neitt vatn í skólanum og rafmagn af skornum skammti. A hafi lært sögu, stærðfræði og spænsku en kennarar hafi sýnt honum lítinn skilning, öskrað á hann og beitt hann andlegu ofbeldi en aldrei lagt hönd á hann. A hafi leikið sér með vinum sínum í fótbolta eftir skóla. Í ákvörðun Útlendingastofnunar í máli barnsins B kom fram að ekki væri tilefni til að taka viðtal við það með vísan til ungs aldurs þess og framburðar foreldra þess.

Með ákvörðunum Útlendingastofnunar var kærendum og börnum þeirra synjað um alþjóðlega vernd og dvalarleyfi á grundvelli 74. gr. laga um útlendinga. Kærendum var brottvísað frá landinu og þeim ákvarðað endurkomubann til tveggja ára. Fram kom að yfirgæfu kærendur landið sjálfviljug innan frests sem þeim hefði verið veittur yrði endurkomubann þeirra fellt niður. Börnum kærenda var brottvísað frá landinu. Kærendur kærðu ákvarðanirnar til kærunefndar 7. mars 2024 og kærunefnd barst greinargerð kærenda 4. apríl 2024.

Greinargerð til kærunefndar

Nefndin hefur farið yfir greinargerð kærenda og fylgiskjöl og lagt mat á þau sjónarmið er þar koma fram. Verða aðeins reifuð hér helstu atriði greinargerðarinnar.

Í greinargerð er aðstæðum kærenda lýst. Þar kemur m.a. fram að kærendur hafi verið búsett í borginni […] í Miranda fylki í Venesúela áður en þau hafi flúið hingað til lands. Aðstæður þeirra hafi verið erfiðar með tvö börn á framfæri ásamt annarri dóttur M. Kærendur hafi ekki haft aðgang að hreinu drykkjarvatni. A hafi verið greindur með einhverfu og hafi þurft meðferð vegna þess en kærendum hafi reynst erfitt að greiða læknisfræðilegan kostnað vegna þessa og þess vegna hafi A þurft að hætta meðferð. B hafi fæðst með aflagað eyra sem sé nauðsynlegt að lagfæra með aðgerð og K þjáist af vanvirkum skjaldkirtli en það hafi verið erfitt fyrir hana að nálgast læknisþjónustu í Venesúela.

M hafi orðið fyrir skotárás árið 2013 af hálfu glæpagengis sem hafi haft ýmsar afleiðingar. M hafi þurft að fara í ítrekaðar aðgerðir og endurhæfingu og þjáist enn af nýrnabilun, vandamálum í olnboga og  háum blóðþrýsting. M hafi ekki getað fengið ristils- eða magaspeglun í Venesúela sem talið hafi verið nauðsynlegt. M þurfi einnig á sjúkraþjálfun að halda sem ekki sé fáanleg í Venesúela. Þá þurfi M ýmis lyf vegna kvilla sinna eftir árásina sem hafi oft á tíðum verið ófáanleg í heimaríki hans og sé því lífi hans og heilsu stefnt í hættu. M hafi ekki getað sinnt eðlilegri vinnu síðan hann hafi orðið fyrir umræddri árás. Eftir skotárásina hafi kærendur þurft að verjast ofsóknum lögreglunnar og í stað þess að rannsaka atvikið hafi lögreglan reynt að kúga fé út úr kærendum og ráðist að þeim. Fyrir sex árum hafi fjölmargir lögreglumenn komið á heimili kærenda, ráðist að M og dregið út úr íbúð kærenda. Lögreglan hafi tekið bifreið þeirra og krafist greiðslu í skiptum fyrir bifreiðina. Kærendur hafi verið rændir og hótað ítrekað af glæpagengjum m.a. hafi K fengið skilaboð frá glæpamönnum um að þeir viti um búsetu kærenda, hvar börn þeirra séu staðsett og krafist greiðslu fyrir öryggi. Þá hafi K tvisvar sinnum orðið fyrir vopnuðu ráni glæpagengja.

Kærendur byggja á því að hinar kærðu ákvarðanir séu haldnar verulegum annmörkum, einkum m.t.t. rannsóknarreglu stjórnsýslu- og útlendingaréttar sem leiði til þess að fella verði ákvarðanirnar úr gildi. Einnig er mati Útlendingastofnunar á trúverðugleika frásagnar kærenda mótmælt.  

Í greinargerðum kærenda er vísað til landaskýrslna og er mati Útlendingastofnunar á aðstæðum í Venesúela mótmælt. Ástandið í landinu hafi ekki batnað heldur fari þvert á móti versnandi. Kærendur vísa til þess að Útlendingastofnun hafi einungis fjallað almennt um landaupplýsingar frá Venesúela og að um valkvæðar heimildir hafi verið að ræða sem reifaðar hafi verið einhliða og einangrað frá öðrum nýlegum skýrslum um aðstæður þar í landi. Með samanburði heimildanna verði ekki komist að þeirri niðurstöðu að aðstæður hafi breyst frá mati kærunefndar útlendingamála árið 2022. Kærendur vísa til þess að einstaklingsbundnar aðstæður barnanna hafi ekki verið skoðaðar og ekki fjallað um það hvort að börn kærenda hafi aðgang að heilbrigðiskerfi og menntakerfi í heimaríki.

Kærendur krefjast þess aðallega að þeim og börnum þeirra verði veitt alþjóðleg vernd sem flóttamenn hér á landi samkvæmt 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Byggt er á því að kærendur og börn þeirra búi við ástæðuríkan ótta við ofsóknir í Venesúela vegna aðildar að þjóðfélagshópum, vegna stjórnmálaskoðana og vegna almenns ástands í heimaríki. Kærendur tilheyri þjóðfélagshópnum þolendur ofbeldisglæpa, sbr. d-liður 3. mgr. 38. gr. laga um útlendinga, og ofsóknir gegn þeim felist í fjárkúgunum og hótunum af hálfu lögreglumanna og glæpagengja, sbr. 2. mgr. 38. gr. laga um útlendinga. Ætla megi að kærendur verði fyrir slíkri árás verði þau send aftur til Venesúela. Þeir sem standa að ofsóknum kærenda sé lögregla sem starfi í umboði stjórnvalda, sbr. 4. mgr. 38. gr. laga um útlendinga.

Verði ekki fallist á aðalkröfu krefjast kærendur þess til vara að þeim og börnum þeirra verði veitt viðbótarvernd hér á landi með vísan til 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Kærendur hafi greint frá því að hafa orðið fyrir árásum, ofsóknum og ofbeldi af hálfu lögreglu og vegna þess eigi þau á hættu að verða fyrir ómannúðlegri og vanvirðandi meðferð í heimaríki af hálfu aðila sem tengjast stjórnvöldum.  Kærendur vísa einnig til sömu málsástæðna og raktar eru undir aðalkröfu. Kærendur búi við skoðanakúgun og skert tjáningarfrelsi og geta ekki látið í ljós skoðanir sínar á ríkisstjórninni án þess að eiga á hættu að vera handtekin. Auk persónulegra aðstæðna kæranda sé slæmt öryggisástand í Venesúela. Kærendur óttist um líf og heilsu sína og barna sinna og meta þurfi stöðu þeirra með hliðsjón af öllum viðeigandi gögnum um Venesúela þar sem óöruggt ástand hafi ríkt í fjölda ára. Þá sé ekki með sanngjörnum hætti hægt að ætlast til að kærendur leiti verndar stjórnvalda í Venesúela.

Kærendur vísa einnig til þess að venesúelskir ríkisborgarar hafi verið sendir aftur til heimaríkis með aðstoð íslenskra stjórnvalda 15. nóvember 2023. Umræddir einstaklingar hafi m.a. ekki verið frjálsir ferða sinna eftir lendingu, verið yfirheyrðir, þvingaðir í bólusetningu og settir í varðhald við afar bágar aðstæður.  

Verði ekki fallist á framangreindar kröfur krefjast kærendur þess að þeim og börnum þeirra verði veitt dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, sbr. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Kærendur vísa til þess að ófremdarástand ríki í heimaríki þeirra og mannréttindabrot séu þar ríkjandi. Yfirvöld veiti þegnum sínum ekki nægilega vernd gegn ofbeldi og glæpum. Þá vísa kærendur til þess að M þjáist af miklum heilsufarslegum vandamálum og að hann hafi ekki fengið viðunandi meðferð í heimaríki sínu. Það sama eigi við um A og B. A sé einhverfur og hafi þurft á meðferð að halda vegna þessa en kærendum hafi reynst erfitt að standa undir lækniskostnaði. Þá hafi B fæðst með aflagað eyra sem sé nauðsynlegt að lagfæra með aðgerð. Þá sé ástand mannréttindamála í Venesúela afar bágborið. Erfiðar efnahagslegar- og félagslega aðstæður séu þar auk almenns ótryggs ástands. Ástandið hafi þegar valdið kærendum þjáningu, ótta og óöryggi sem jafnist á við ómannúðlega og vanvirðandi meðferð. Þá telji kærendur raunhæfa ástæðu til að ætla að þau eigi á hættu að verða fyrir ómannúðlegri og vanvirðandi meðferð í heimaríki þar sem langvarandi neyðarástand hafi ríkt í Venesúela. Þá séu möguleikar þeirra til að leita verndar yfirvalda afar litlir.

Kærendur telja að með endursendingu þeirra og barna þeirra til heimaríkis yrði brotið gegn meginreglunni um bann við endursendingu, sbr. 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga. Að auki telja kærendur að slík ákvörðun brjóti í bága við 1. mgr. 68. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands, sbr. lög nr. 33/1944, 2. og 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994, 6. og 7. gr. alþjóðasamnings um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi og 33. gr. alþjóðasamnings um réttarstöðu flóttamanna.

Reglur stjórnsýsluréttar og málsmeðferð samkvæmt lögum um útlendinga

Í greinargerð kærenda eru færð rök fyrir því að ekki hafi verið farið að málsmeðferðarreglum við töku ákvarðana Útlendingastofnunar. Telja kærendur að málsmeðferð stofnunarinnar og hinar kærðu ákvarðanir brjóti gegn rannsóknarreglu stjórnsýslu- og útlendingaréttar, sbr. 10. gr. stjórnsýslulaga og 2. mgr. 23. gr. laga um útlendinga, sem leiði til þess að fella beri ákvarðanirnar úr gildi. Í greinargerð eru gerðar athugasemdir við að skort hafi á ítarlega umfjöllun um einstaklingsbundnar aðstæður barnanna í hinum kærðu ákvörðunum. Auk þess hafi lítið verið fjallað um aðstæður barna almennt í Venesúela.  

Í viðtali hjá Útlendingastofnun voru kærendur spurð um aðstæður barna þeirra í Venesúela og hvernig aðstæður þeirra yrðu yrði þeim gert að snúa aftur til Venesúela. Þá var A spurður um aðstæður sínar í viðtali hjá Útlendingastofnun og var ákvörðun stofnunarinnar sú að kærendur og börn þeirra væru ekki flóttamenn, sbr. 37. gr. laga um útlendinga. Auk þessa var í hinni kærðu ákvörðun fjallað almennt um stöðu almennings í Venesúela. Ekki verður séð að ástæða hafi verið til að grípa til frekari rannsókna vegna aðstæðna barnanna A og B í landinu. Þar af leiðandi er ekki ástæða til að gera athugasemd við rannsókn Útlendingastofnunar í málinu. Að því leyti sem á það skorti í rökstuðningi hinnar kærðu ákvörðunar að þar væri fjallað um aðstæður barnanna leiðir sá annmarki einn og sér ekki til ógildingar hennar, enda hefur verið bætt úr þeim annmarka við meðferð málsins hjá kærunefnd.

Alþjóðleg vernd

Lagagrundvöllur

Í máli þessu gilda einkum ákvæði laga um útlendinga nr. 80/2016, reglugerð nr. 540/2017 um útlendinga, ákvæði stjórnsýslulaga nr. 37/1993, stjórnarskrá lýðveldisins Íslands nr. 33/1944 og mannréttindasáttmáli Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994. Jafnframt ber að líta til ákvæða alþjóðasamnings um stöðu flóttamanna frá 1951, ásamt viðauka við samninginn frá 1967, og annarra alþjóðlegra skuldbindinga Íslands á sviði mannréttinda eftir því sem tilefni er til.

Í 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016, sem byggir á A-lið 1. gr. flóttamannasamningsins, segir:

Flóttamaður samkvæmt lögum þessum telst vera útlendingur sem er utan heimalands síns af ástæðuríkum ótta við að vera ofsóttur vegna kynþáttar, trúarbragða, þjóðernis, aðildar að tilteknum þjóðfélagshópi eða vegna stjórnmálaskoðana og getur ekki eða vill ekki vegna slíks ótta færa sér í nyt vernd þess lands; eða sá sem er ríkisfangslaus og er utan þess lands þar sem hann áður hafði reglulegt aðsetur vegna slíkra atburða og getur ekki eða vill ekki vegna slíks ótta hverfa aftur þangað, sbr. A-lið 1. gr. alþjóðasamnings um réttarstöðu flóttamanna frá 28. júlí 1951 og bókun við samninginn frá 31. janúar 1967, sbr. einnig 38. gr. laga þessara.

Í 38. gr. laga um útlendinga eru sett fram viðmið um það hvað felist í hugtakinu ofsóknir samkvæmt 1. mgr. 37. gr., á hvaða grundvelli ofsóknir geta byggst og hvaða aðilar geta verið valdir að þeim. Í 1. mgr. ákvæðisins segir:

Ofsóknir samkvæmt 1. mgr. 37. gr. eru þær athafnir sem í eðli sínu eða vegna þess að þær eru endurteknar fela í sér alvarleg brot á grundvallarmannréttindum, einkum ófrávíkjanlegum grundvallarmannréttindum á borð við réttinn til lífs og bann við pyndingum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu, bann við þrældómi og þrælkun og bann við refsingum án laga. Sama á við um samsafn athafna, þ.m.t. ólögmæta mismunun, sem hafa eða geta haft sömu eða sambærileg áhrif á einstakling.

Í 2. mgr. 38. gr. laga um útlendinga er fjallað um í hverju ofsóknir geta falist. Þá eru þær ástæður sem ofsóknir þurfa að tengjast skilgreindar nánar í 3. mgr. 38. gr. laganna.

Í 4. mgr. 38. gr. kemur fram að þeir aðilar sem geta verið valdir að ofsóknum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð séu:

a. ríkið,

b. hópar eða samtök sem stjórna ríkinu eða verulegum hluta landsvæðis þess,

c. aðrir aðilar, sem ekki fara með ríkisvald, ef sýnt er fram á að ríkið eða hópar eða samtök samkvæmt b-lið, þ.m.t. alþjóðastofnanir, geti ekki eða vilji ekki veita vernd gegn ofsóknum eða meðferð sem fellur undir 2. mgr. 37. gr., m.a. með því að ákæra og refsa fyrir athafnir sem fela í sér ofsóknir.

Orðasambandið „ástæðuríkur ótti við að vera ofsóttur“ í 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga inniheldur huglæga og hlutlæga þætti og þarf að taka tillit til hvors tveggja þegar mat er lagt á umsókn um alþjóðlega vernd. Mat á því hvort ótti umsækjanda sé ástæðuríkur getur verið byggt á persónulegri reynslu umsækjanda sem og á upplýsingum um ofsóknir sem aðrir í umhverfi hans eða þeir sem tilheyra sama hópi hafa orðið fyrir. Umsækjandi sem hefur sýnt fram á að hann hafi þegar orðið fyrir ofsóknum í heimaríki, sbr. 1. mgr. 38. gr. laga um útlendinga, eða beinum og marktækum hótunum um slíkar ofsóknir, yrði almennt talinn hafa sýnt fram á ástæðuríkan ótta við slíkar ofsóknir snúi hann aftur til heimaríkis nema talið verði að miklar líkur séu á því að slíkar ofsóknir yrðu ekki endurteknar, t.d. þar sem aðstæður í heimaríki hans hafi breyst. Þótt umsækjandi um alþjóðlega vernd skuli njóta vafa upp að ákveðnu marki verður umsækjandinn með rökstuddum hætti að leiða líkur að því að hans bíði ofsóknir í heimaríki. Frásögn umsækjanda og önnur gögn um einstaklingsbundnar aðstæður hans verða því almennt að fá stuðning í hlutlægum og áreiðanlegum upplýsingum um heimaríki umsækjanda, stjórnvöld, stjórnarfar og löggjöf þess. Þá er litið til sambærilegra upplýsinga um ástand, aðstöðu og verndarþörf þess hóps sem umsækjandi tilheyrir eða er talinn tilheyra.

Við mat á umsóknum um alþjóðlega vernd verða stjórnvöld því að leggja mat á auðkenni umsækjanda, landaupplýsingar um það heimaríki umsækjanda sem til meðferðar er og trúverðugleika frásagnar umsækjanda.

Við mat á trúverðugleika er höfð til hliðsjónar handbók Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna um málsmeðferð og viðmið við mat á umsókn um alþjóðlega vernd (Handbook and Guidelines on Procedures and Criteria for Determining Refugee Status, Genf 2019). Þá er tekið mið af skýrslu Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna og Flóttamannasjóðs Evrópusambandsins um trúverðugleikamat, eftir því sem við á (Beyond Proof: Credibility Assessment in EU Asylum Systems, Brussel 2013).

Samkvæmt 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga er útlendingur einnig flóttamaður ef, verði hann sendur aftur til heimaríkis síns, raunhæf ástæða er til að ætla að hann eigi á hættu að sæta dauðarefsingu, pyndingum eða annarri ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu eða hann verði fyrir alvarlegum skaða af völdum árása í vopnuðum átökum þar sem ekki er greint á milli hernaðarlegra og borgaralegra skotmarka. Sama gildir um ríkisfangslausan einstakling.

Við mat á því hvort aðstæður kæranda séu slíkar að þær eigi undir 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga hefur kærunefnd talið rétt að líta til 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Mannréttindadómstóll Evrópu hefur fjallað um það mat sem þarf að fara fram á því hvort kærandi sé í raunverulegri hættu á að verða fyrir meðferð sem falli undir 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu sem bannar pyndingar og ómannlega eða vanvirðandi meðferð eða refsingu. Hefur dómstóllinn sagt að 3. gr. sáttmálans geti átt við þegar hættan stafar frá einstaklingum eða hópi fólks sem ekki séu fulltrúar stjórnvalda. Kærandi verður þó að geta sýnt fram á að gildar ástæður séu til að ætla að um raunverulega hættu sé að ræða og að stjórnvöld í ríkinu séu ekki í stakk búin til að veita viðeigandi vernd. Ekki er nóg að aðeins sé um að ræða möguleika á illri meðferð og verður frásögn kæranda að fá stuðning í öðrum gögnum (sjá t.d. dóma Mannréttindadómstóls Evrópu í máli NA gegn Bretlandi (mál nr. 25904/07) frá 7. júlí 2008 og H.L.R. gegn Frakklandi (mál nr. 24573/94) frá 29. apríl 1997).

Réttarstaða barna

Staða barna á flótta ræðst af viðeigandi reglum í þjóðarétti og landsrétti. Í 22. gr. samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins, sbr. lög nr. 19/2013, segir í fyrsta lagi að aðildarríki skuli gera viðeigandi ráðstafanir til að tryggja að barn sem leiti eftir réttarstöðu sem flóttamaður, eða sem talið sé flóttamaður samkvæmt viðeigandi reglum eða starfsháttum þjóðaréttar eða landslaga, fái, hvort sem það sé í fylgd foreldra eða annarra eða ekki, viðeigandi vernd og mannúðlega aðstoð við að nýta sér þau réttindi sem við eigi og kveðið sé á um í samningnum.

Í 2. mgr. 10. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016 segir að ákvarðanir sem varði barn skuli teknar með hagsmuni þess að leiðarljósi, því tryggður réttur til að tjá skoðanir sínar í málum sem það varði og tekið tillit til skoðana barnsins í samræmi við aldur þess og þroska. Í 3. mgr. 25. gr. laga um útlendinga kemur fram að við ákvörðun sem sé háð mati stjórnvalds skuli huga að öryggi barns, velferð þess og félagslegum þroska og möguleika þess til að sameinast fjölskyldu sinni.

Sérstaklega er fjallað um mat stjórnvalda á umsóknum barna um alþjóðlega vernd í 5. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Þar segir að við mat á því hvort barn teljist flóttamaður samkvæmt lögunum skuli það sem barninu sé fyrir bestu haft að leiðarljósi. Við mat á því hvað barni sé fyrir bestu skuli stjórnvöld líta til möguleika barns á fjölskyldusameiningu, öryggis þess, velferðar og félagslegs þroska auk þess sem taka skuli tillit til skoðana barnsins í samræmi við aldur þess og þroska. Við ákvörðun í máli er varðar hagsmuni barns skuli stjórnvöld taka skriflega afstöðu til þessara atriða.

Almennt er viðurkennt að eðlilegur þroski barns sé best tryggður með því að vernda fjölskylduna. Sé ólögráða barn í fylgd annars eða beggja foreldra sinna eða annars úr fjölskyldunni sem hefur það á framfæri sínu og sá fer fram á réttarstöðu flóttamanns, ber að fara með málin í samræmi við meginregluna um einingu fjölskyldunnar. Ljóst er að börn þau sem hér um ræðir eru í fylgd foreldra sinna og haldast úrskurðir fjölskyldunnar því í hendur.

Auðkenni

Í ákvörðunum Útlendingastofnunar kemur fram að til að sanna á sér deili hafi kærendur framvísað venesúelskum vegabréfum fyrir sig og börn sín.

Við meðferð málsins hefur M greint frá því að vera einnig ríkisborgari Perú. Lagði Útlendingastofnun það til grundavallar að M væri venesúelskur og perúskur ríkisborgari og K, A og B væru venesúelskir ríkisborgarar. Kærunefnd telur ekki tilefni til að draga framangreint í efa og leggur til grundvallar við úrlausn málsins að M sé með ríkisfang bæði í Venesúela og Perú og K, A og B séu með ríkisfang í Venesúela.

Þar sem kærendur og börn þeirra eru ríkisborgarar Venesúela og eins og aðstæðum er háttað í máli þessu telur kærunefnd aðeins þörf á að fjalla um aðstæður þeirra í Venesúela, sbr. 2. mgr. A-liðar 1. gr. Flóttamannasamnings Sameinuðu þjóðanna.

Landaupplýsingar

Kærunefnd útlendingamála hefur lagt mat á aðstæður í Venesúela, m.a. með hliðsjón af eftirfarandi skýrslum:

  • 2022 Country Reports on Human Rights Practices: Venezuela (U.S. Department of State, 20. mars 2023);
  • 2021 Country Reports on Human Rights Practices: Venezuela (U.S. Department of State, 12. apríl 2022);
  • ‘All sides need to think about the future they want for Venezuela’, says UN human rights chief (vefsíða Sameinuðu þjóðanna, http://news.un.org/en/story/2023/01/1132957, 28. janúar 2023);
  • Amnesty International Report 2022/23: Venezuela (Amnesty International, 27. mars 2023);
  • Annual Report 2020 – Chapter IV.B: Venezuela (Inter-American Commission on Human Rights, 2021);
  • Annual Report 2022 – Chapter IV.B: Venezuela (Inter-American Commission on Human Rights, 2023);
  • Bolivarian Republic of Venezuela interim country strategic plan 2023-2025 (World Food Programme, 1. febrúar 2023);
  • Country Reports on Terrorism 2022: Venezuela (U.S. Department of State, 30. nóvember 2023);
  • Detailed findings of the independent international fact-finding mission on the Bolivarian Republic of Venezuela (United Nations. Human Rights Council, 15. september 2020);
  • Election Observation Mission – Venezuela 2021 (European Union, 22. febrúar 2022);
  • Fostering Impunity: The Impact of the Failure of the Prosecutor of the International Court to Open an Investigation into the Possible Commission of Crimes against Humanity in Venezuela (Organization of American States, OAS, 2. desember 2020);
  • Freedom in the World 2022 – Venezuela (Freedom House, 28. febrúar 2022);
  • Freedom in the World 2023 – Venezuela (Freedom House, 10. mars 2023);
  • Freedom in the World 2024 – Venezuela (Freedom House, 29. febrúar 2024); 
  • General Country of Origin Information Report. Venezuela 2020 (Netherlands. Ministry of Foreign Affairs, júní 2020);
  • Global Childhood Report 2021 – The Toughest Place to be a Child (Save the Children, 2021);
  • Global Organized Crime Index – Venezuela (Global Initiative Against Transnational Organized Crime, 2023);
  • Guidance Note on International Protection Considerations for Venezuelans – Update I (UNHCR, maí 2019);
  • Humanitarian Access overview (ACAPS, desember 2022);
  • Humanitarian Action for Children 2024 – Bolivarian Republic of Venezuela (UNICEF, 24. ágúst 2023);
  • Humanitarian Action for Children 2024 – Bolivarian Republic of Venezuela (UNICEF, 12. desember 2023);
  • Humanitære forhold (Landinfo, 2. mars 2023);
  • Human Rights Violations in the Bolivarian Republic of Venezuela: A Downward Spiral with No End in Sight (Office of the United Nations High Commissioner for Human Rights (OHCHR), júní 2018);
  • Independence of the justice system and access to justice in the Bolivarian Republic of Venezuela, including for violations of economic and social rights, and the situation of human rights in the Arco Minero del Orinoco region (United Nations High Commissioner for Human Rights (OHCHR), 29. september 2020);
  • Informe Annual de Violencia 2022 (Observatorio Venezolano de Violencia, 29. desember 2022);
  • International Protection Needs of Venezuelan Nationals (Amnesty International, október 2023); 
  • Judges on the Tightrope Report on the Independence and Impartiality of the Judiciary in Venezuela (International Commission of Jurists, júní 2021);
  • Latest Asylum Trends (European Union Agency for Asylum, 17. maí 2023);
  • Outcomes of the investigation into allegations of possible violations of the human rights to life, liberty, and physical and moral Integrity in the Bolivarian Republic of Venezuela (Office of the United Nations High Commissioner for Human Rights (OHCHR), 17. september 2020);
  • Quarterly Report April – June 2023 – Venezuela (The UN Refugee Agency, 8. ágúst 2023);
  • Religious Regulation and Discrimination in Venezuela (Observatory of Religious Freedom in Latin America, janúar 2022);
  • Report of the General Secretariat of the Organization of American States and the Panel of Independent International Experts on the Possible Commission of Crimes Against Humanity in Venezuela. Second Edition (Organization of American States, OAS, mars 2021);
  • Report of the independent international fact-finding mission on the Bolivarian Republic of Venezuela (Human Rights Council, 18. september 2023);
  • Rise of the Criminal Hybrid State in Venezuela (InSight Crime, júlí 2023);
  • RMNA 2023 – Refugee and Migrant Needs Analysis (Inter-Agency Coordination Platform for Refugees and Migrants from Venezuela, 11. september 2023);
  • RMRP 2023-2024: Regional Refugee and Migrant Response Plan (Inter-Agency Coordination Platform for Refugees and Migrants from Venezuela, 30. nóvember 2022);
  • RMRP 2024 Update: Regional Refugee and Migrant Response Plan (Inter-Agency Coordination Platform for Refugees and Migrants from Venezuela, 2. desember 2023);
  • Situation of human rights in the Bolivarian Republic of Venezuela (Office of the United Nations High Commissioner for Human Rights (OHCHR), 16. júní 2021);
  • Situation of human rights in the Bolivarian Republic of Venezuela (The United Nations High Commissioner for Human Rights (OHCHR), 4. júlí 2023);
  • Situation of Venezuelans who have returned and seek to return to their country in the context of COVID-19 (Organization of American States, OAS, september 2020);
  • Situation Report No. 1 – Venezuela (UNICEF, 30. júní 2023);
  • The World Factbook – Venezuela (Central Intelligence Agency, síðast uppfært 7. maí 2024);
  • UNHCR Response – Venezuela, January – June 2023 (The UN Refugee Agency, 8. ágúst 2023);
  • UNHCR Venezuela Annual Report 2022 (The UN Refugee Agency, 8. ágúst 2023);
  • Update on Venezuela by High Commissioner Türk (United Nations High Commissioner for Human Rights (OHCHR), 5. júlí 2023);
  • Venezeula (Britannica, síðast uppfært 12. maí 2024);
  • Venezuela: Availability of health care, including for persons with disabilities and older persons; treatment of persons with disabilities and older persons within the healthcare system (2021-January 2023) (Immigration and Refugee Board of Canada, 13. febrúar 2023);
  • Venezuela Country Focus (European Asylum Support Office, EASO, ágúst 2020);
  • Venezuela Country Focus (European Union Agency for Asylum, EUAA, nóvember 2023;
  • Venezuela Country Report 2022 (Bertelsmann Stiftung, 2022);
  • Venezuela: Humanitarian Action, (OCHA, 30. nóvember 2022);
  • Venezuela: Humanitarian Response Plan 2022-2023 (OCHA, 7. september 2022);
  • Venezuela in 2022: Building solutions with communities affected by armed violence (International Committee of the Red Cross, 6. janúar 2023);
  • Venezuela: Joint Statement on Venezuela Negotiation in Mexico (The Diplomatic Service of the European Union, 26. nóvember 2022);
  • Venezuela: Los Colectivos (Landinfo, 1. október 2019);
  • Venezuela Organized Crime Observatory (InSightCrime, síðast uppfært 8. maí 2024);
  • Venezuela: Overview of U.S. Sanctions (Congressional Research Service, 30. nóvember 2022);
  • Venezuela: Overview of U.S Sanctions (Congressional Research Service, 8. ágúst 2023);
  • Venezuela: Political Crisis and U.S Policy (Congressional Research Service, 1. september 2023);
  • Venezuela: Progress Report March – April 2023 (OCHA, 31. maí 2023);
  • Venezuela’s Humanitarian Emergency (Human Rights Watch, 4. apríl 2019);
  • Venezuela: Sikkerhetssituasjonen for sivilbefolkningen (Landinfo, 14. apríl 2020);
  • Venezuela Situation (UNHCR, janúar 2023);
  • Venezuela Situation Fact Sheet (UNHCR, 8. mars 2023);
  • Venezuela: The Perilous Path to a Key Election (International Crisis Group, 30. janúar 2024);
  • Venezuela: Tidligere og nåværende protestaksjoner, og retursituasjonen for personer som deltok i de store demonstrasjonene i 2017-2019 (Landinfo, 30. maí 2023);
  • Venezuela: Treatment of citizens by the authorities based on whether or not they participate in anti-government protests, including whether some are more targeted than others and for what reasons; whether access to social security programs may be affected by political activities (2017-January 2021) (Immigration and Refugee Board of Canada, 3. febrúar 2021);
  • Venezuela: UN Experts warn of persisting attacks on civil society, media and trade union leaders (UNCHR, 22. mars 2023);
  • Venezuela: Utsatte grupper og reaksjoner fra myndighetene (Landinfo, 11. júní 2020);
  • Venezuela: Ytringsfrihet og kritiske ytringer i sosiale medier (Landinfo, 28. júní 2023);
  • What’s Ahead for Venezuela’s Crisis (World Politics Review, 20. apríl 2023);
  • World Report 2023 – Venezuela (Human Rights Watch, 12. janúar 2023) og
  • World Report 2024 – Venezuela (Human Rights Watch, 11. janúar 2024).

Venesúela er stjórnarskrárbundið lýðveldi með rúmlega 30 milljónir íbúa. Í landinu aðhyllast um 96% íbúa kristna trú, þar af meirihlutinn rómversk-kaþólska trú. Hinn 15. nóvember 1945 gerðist Venesúela aðili að Sameinuðu þjóðunum. Ríkið fullgilti alþjóðasamning um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi ásamt alþjóðasamningi um efnahagsleg, félagsleg og menningarleg réttindi árið 1978. Ríkið fullgilti alþjóðasamning um afnám allrar mismununar gegn konum árið 1983 og samning Sameinuðu þjóðanna gegn pyndingum og annarri grimmilegri, ómannlegri og vanvirðandi meðferð eða refsingu árið 1991.

Í framangreindum skýrslum, þ. á m. skýrslum bandarísku utanríkisþjónustunnar frá 2022 og 2023, bandarísku leyniþjónustunnar frá 2023 og Human Rights Watch frá 2023, kemur fram að Venesúela sé fjölflokka lýðræðisríki að nafninu til. Nicolás Maduro, forseti landsins frá árinu 2013, hafi hins vegar styrkt völd sín jafnt og þétt og um leið veikt löggjafar-, framkvæmdar- og dómsvald landsins. Stjórnarkreppa hafi ríkt í Venesúela frá árinu 2019. Forsetatíð Nicolás Maduro hafi lokið 10. janúar 2019, en hann hafi neitað að afsala sér völdum og haldið því fram að hann hafi unnið sigur í forsetakosningum árið áður. Niðurstöður kosninganna, sem hafi sætt mikilli gagnrýni og hvorki talist óháðar né sanngjarnar, hafi verið ógiltar af venesúelska þinginu. Hinn 23. janúar 2019 hafi stjórnarandstaðan lýst Juan Guaido, forseta venesúelska þingsins, forseta til bráðabirgða. Guaido hafi haft fullt stjórnskipulegt umboð frá þinginu og yfir 50 ríki hafi viðurkennt lögmæti hans sem bráðabirgðaforseta, þ. á m. Bandaríkin og flest ríki innan Evrópusambandsins. Þrátt fyrir það hafi Maduro farið með stjórn allra ríkisstofnana landsins auk þess sem hann hafi notið stuðnings öryggissveita. Guaido hafi því ekki getað beitt valdheimildum sínum og aðeins haft yfirráð yfir nokkrum sendiráðum og eignum Venesúela erlendis. Samkvæmt skýrslu Evrópusambandsins frá árinu 2022 hefur stjórnarandstaðan sniðgengið þrennar kosningar í landinu frá árinu 2015 vegna skorts á lýðræðislegum skilyrðum en hafi árið 2021 verið boðið að sitja í kjörstjórn sveitastjórnarkosninga og hafi sendinefnd á vegum Evrópusambandsins verið boðið að fara með kosningaeftirlit þeirra. Stjórnarandstaðan hafi tekið þátt í kosningunum en framkvæmd þeirra hafi hins vegar verið ábótavant. Í nóvember 2022 hafi samningaviðræður milli stjórnarandstöðunnar og ríkisstjórnar Maduro hafist að nýju en þær hafi legið niðri síðan í október 2021. Samningsaðilar hafi komist að samkomulagi um að bæta mannúðarástand í landinu með stofnun sjóðs á vegum Sameinuðu þjóðanna sem sótt gæti fjármagn í frystar eignir Venesúela erlendis. Í desember 2022 í kjölfar viðræðnanna hafi stjórnaraðstaðan dregið stuðning sinn við Guaido til baka og leyst upp bráðabirgðastjórn hans í landinu þar sem honum hafi mistekist að ná þeim yfirráðum sem stefnt hafi verið að. Markmið stjórnarandstöðunnar sé enn að koma Maduro frá völdum en hún telji Guaido ekki réttan fulltrúa sinn. Á fundi í Barbados 17. október 2023 hafi ríkisstjórn Venesúela og stjórnarandstaðan samþykkt að halda forsetakosningar í Venesúela á seinni hluta ársins 2024. Alþjóðlegir eftirlitsmenn hafi verið viðstaddir fundinn og hafi samningurinn verið undirritaður með milligöngu Noregs. Samkvæmt samningnum sé einnig gert ráð fyrir að Evrópusambandið og Sameinuðu þjóðirnar hafi eftirlit með kosningunum. Hinn 22. október 2023 hafi stjórnarandstaðan valið Maria Corina Machado sem fulltrúa sinn í komandi forsetakosningum. Hinn 30. október 2023 hafi Hæstiréttur Venesúela þó ógilt þá niðurstöðu og frestað forkosningum stjórnarandstöðunnar vegna mögulegs lögbrots.

Í skýrslu EASO frá 2020 sem uppfærð var með skýrslu EUAA frá 2023 kemur fram að fljótlega eftir að Maduro hafi orðið forseti árið 2013 hafi olíuverð farið hríðlækkandi. Olía hafi lengi verið helsta tekjulind Venesúela og hafi um helmingur af árlegum tekjum ríkissjóðs komið til vegna olíuvinnslu. Lækkun olíuverðs hafi, ásamt efnahagsstefnu stjórnvalda og íþyngjandi regluverki er snúi að atvinnulífinu, átt þátt í niðursveiflu hagkerfisins í Venesúela. Óðaverðbólga og kreppa hafi dregið verulega úr kaupmætti almennings í landinu og orsakað skort á matvælum, lyfjum og öðrum nauðsynjavörum. Þrátt fyrir að lágmarkslaun hafi verið hækkuð hafi meginþorri almennings ekki getað keypt nauðsynjavörur eða framfleytt sér án fjárhagsaðstoðar. Þá kemur fram að öll aðstoð sé veitt í gegnum föðurlandskerfið og föðurlandskortið (s. sistema Patria, Carnet de la Patria) en kortið sé forsenda þess að geta fengið opinbera aðstoð, m.a. matvælaaðstoð í formi svokallaðra CLAP matarpakka (s. Comité Local de Abastecimiento y Producción). Kerfið hafi verið notað til að fylgjast með íbúum og upp hafi komið tilvik þar sem einstaklingum hafi verið neitað um aðstoð vegna þess að þeir hafi verið taldir á móti ríkisstjórn landsins. Þannig hafi föðurlandskortið verið verkfæri til samfélagsstjórnunar í gegnum matvæla- og fjárhagsaðstoð. Árið 2022 hafi ríkisstjórn Venesúela hafið átak til að bregðast við þörfum og vandamálum sem hafi komið upp í samfélaginu. Einstaklingar geti hlaðið niður smáforriti, svokölluðu VenApp, sem gerir þeim kleift að tilkynna beint til stjórnvalda ef bilun verður í veitingu grunnþjónustu, s.s. vatns, gas eða rafmagns. Einstaklingar sem hyggist nota slíkt smáforrit þurfa að gefa samþykki fyrir því að forritið fái aðgang að persónuupplýsingum og staðsetningu notanda og sé því einnig tæki sem notað sé til að fylgjast með íbúum. Í skýrslu Human Rights Watch frá árinu 2023 kemur fram að flestir íbúar Venesúela séu í þörf fyrir aðstoð vegna skorts á mat, vatni, heilbrigðisþjónustu og hreinlæti. Rúmlega sjö milljónir venesúelskra ríkisborgara hafi lagt á flótta eða séu á vergangi vegna ástandsins í landinu og venesúelska flóttamannakrísan sé talin eitt alvarlegasta vandamál nútímans og fólksflutningarnir þeir fjölmennustu í nútímasögu Suður-Ameríku.

Í skýrslu Landinfo frá mars 2023 kemur fram að árið 2021 hafi aukning orðið í olíuframleiðslu í landinu, en Maduro hafi slakað á þeim ströngu reglum sem gilt höfðu um gjaldeyrismál og gefið leyfi fyrir auknum viðskiptum í erlendri mynt. Í kjölfar þess hafi hagkerfið farið að vaxa að nýju eftir að hafa verið í frjálsu falli síðustu ár og talið sé að hagkerfið hafi styrkst um 15% árið 2022. Fátæktin sé þó enn mikil, sérstaklega hjá þeim sem ekki hafi aðgang að erlendum gjaldeyri. Þá kemur fram að efnahagsástand í landinu hafi farið batnandi síðan árið 2019 þrátt fyrir að enn sé langt í land. Í kjölfar afléttinga ýmissa innflutningshafta og lækkunar verðbólgu hafi framboð af matvælum og lyfjum aukist. Samt sem áður hafi fæstir efni á að nálgast slíkt sökum lágra launa og hækkandi matvöruverðs. Flestir sem yfirgefi landið geri það af efnahagslegum ástæðum. Ástandið í Karakas sé mun betra en á öðrum svæðum þar sem rafmagnsleysi hafi áhrif á aðgengi fólks að bæði rafmagni og rennandi vatni. Samkvæmt skýrslunni hafi um 50% heimila í Venesúela verið undir fátæktarmörkum árið 2022 samanborið við 65% árið 2021 og 87% árið 2017.

Í skýrslu Freedom House frá 2021 kemur fram að strangar hömlur hafi verið settar á grundvallarréttindi venesúelskra ríkisborgara, þ. á m. á tjáningar-, samkomu- og félagafrelsi. Stjórnarandstæðingar, blaðamenn, aðgerðarsinnar, mótmælendur og einstaklingar sem taldir séu andsnúnir ríkisstjórninni hafi verið skotmörk yfirvalda og hafi m.a. þurft að sæta handahófskenndum rannsóknum og handtökum. Í skýrslu Freedom House frá 2023 kemur fram að yfirvöld í landinu hafi takmarkað borgaraleg réttindi og sótt til saka pólitíska andstæðinga sína án réttlátrar málsmeðferðar. Þrátt fyrir að efnahagur landsins hafi náð vexti á ný eftir margra ára samdrátt sé enn mannúðarkrísa í landinu sem drifin sé af pólitísku ójafnvægi. Í skýrslu Human Right Watch frá 2023 kemur fram að ríkisstjórn landsins hafi fangelsað pólitíska andstæðinga sína. Að minnsta kosti 114 pólitískir fangar hafi dvalið í meira en þrjú ár í gæsluvarðhaldi sem samræmist ekki hegningarlögum landsins. Öryggissveitir og vopnaðir hópar sem styðji ríkisstjórnina hafi ítrekað ráðist á mótmælendur með ofbeldisfullum árásum, barsmíðum og skotárásum. Dómskerfi landsins hafi hætt að starfa sem óháð ríkisvald árið 2004 og hafi dómsmálayfirvöld verið samsek venesúelskum yfirvöldum í misnotkun á kerfinu, t.a.m. með því að gefa út afturvirkar heimildir til handtöku og fyrirskipa gæsluvarðhöld á grundvelli ónægra sönnunargagna. Í samantekt rannsóknarnefndar á vegum mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna frá 22. mars 2023 kemur m.a. fram að yfirvöld handtaki enn pólitíska andstæðinga sína, hindri mótmæli verkalýðsfélaga og loki fjölmiðlum. Varðhald og pyndingar af hálfu stjórnvalda hindri tjáningarfrelsi og réttinn til mótmæla. Handahófskennd gæsluvarðhöld af pólitískum ástæðum séu enn áhyggjuefni og séu að minnsta kosti 282 einstaklingar enn í haldi, þ. á m. óbreyttir borgarar og hermenn.

Í skýrslu EASO frá 2020 sem uppfærð var með skýrslu EUAA frá 2023 kemur fram að morðtíðni í Venesúela sé ein sú hæsta í Mið- og Suður-Ameríku. Frá 2018 til 2019 hafi morðum fækkað en það sé ekki til marks um að ofbeldi í landinu hafi farið minnkandi. Vopnahópum hafi tekist að viðhalda yfirráðasvæðum sínum og komið á fót eiginlegum smáríkjum (e. micro-states) innan Venesúela sem hafi gert það að verkum að dregið hafi úr átökum milli stríðandi fylkinga. Þá megi rekja fækkun morða til aukinnar fátæktar og flutnings fólks úr landi. Mannránum hafi einnig fækkað og megi rekja það til erfiðleika við greiðslu lausnargjalda vegna óðaverðbólgu. Á undanförnum þremur árum hafi hins vegar þeim glæpum sem dregið hafði úr á liðnum árum, s.s. ránum, mannránum og fjárkúgun, fjölgað aftur. Það megi einkum rekja til lögleiðingu og greiðara aðgengis að erlendum gjaldmiðli í Venesúela. Þá hafi aukning á notkun Bandaríkjadals í efnahagskerfi Venesúela leitt til þess að smærri, staðbundnari glæpahópar hafi horfið og runnið saman við stærri glæpasamtök. Venezuelan Observatory of Violence gefur árlega út skýrslu um glæpatíðni í landinu. Í skýrslu þeirra frá desember 2020 kemur fram að morðtíðni í landinu það ár hafi verið um 45,6 morð á hverja hundrað þúsund íbúa. Þá hafi orðið aukning í morðum af hálfu yfirvalda en árið 2020 hafi verið fyrsta árið, frá árinu 2016, þar sem skráð morð af hálfu lögreglu hafi verið fleiri en af hálfu annarra gerenda. Í skýrslu þeirra frá desember 2021 kemur fram að morðtíðni það ár hafi verið 40,9 morð á hverja hundrað þúsund íbúa og a.m.k. 6,3 morð hafi verið framin á hverjum degi af hálfu yfirvalda. Aukning hafi orðið á morðum sem skráð séu óupplýst og því óvíst um gerendur og þá hafi orðið aukning í óútskýrðum mannshvörfum, eða um 4,4 mannshvörf á dag árið 2021. Í skýrslu þeirra frá desember 2023 kemur fram að morðtíðni fari lækkandi en tíðni síðasta árs hafi verið um 26,8 morð á hverja hundrað þúsund íbúa en hafði verið 40,4 árið 2022.

Samkvæmt skýrslu EUAA frá nóvember 2023 hefur fjárkúgun aukist í Venesúela undanfarin ár. Meðal skotmarka séu fyrirtæki sem notist við erlendan gjaldeyri, t.a.m. fyrirtæki sem flytji inn vörur og þjónustu til landsins, vöruflutningafyrirtæki, lítil fyrirtæki, bílasalar, heimilistækjaverslanir, einkaskólar og heilsugæslustöðvar. Þær greiðslur sem krafist sé séu ákveðnar í samræmi við kaupmátt þolandans en geti verið allt frá fimm bandaríkjadollurum á viku upp í 50.000 bandaríkjadollara á mánuði. Fjárkúgun sé að mestu leyti framin af skipulögðum glæpahópum og skæruliðasamtökum. Algengt sé að þolendum fjárkúgunar berist bréf og símtöl með hótunum, auk þess sem bifreiðar þeirra séu brenndar, skotið sé að heimilum þeirra og sprengjum varpað á húsin. Þá fái þolendur senda kransa, hljóðskilaboð, myndir og myndbönd með hótunum í gegnum samfélagsmiðilinn Whatsapp. Í skýrslu EUAA kemur fram að þrír sjómenn hafi verið myrtir í janúar 2023 eftir að hafa neitað að greiða gjald til glæpahópsins El Yiyi og hafi morðin verið tekin upp og birt á samfélagsmiðlum til að senda skilaboð til annarra sjómanna um að verða við kröfum hópsins. Þá hafi kjötkaupmaður verið myrtur af hálfu glæpahóps í verslun sinni í Zulia fylki í febrúar 2023 eftir að hafa neitað að greiða gjald til glæpahópsins. Fjárkúgun af hálfu ríkisstarfsmanna og öryggissveita hafi einnig aukist á milli ára og birtist oft í formi kröfu um mútugreiðslu. Einnig sé bílstjórum oft gert að greiða gjald til að þeim verði hleypt í gegnum eftirlitsstöðvar. Samkvæmt framangreindri skýrslu EUAA er engin áreiðanleg tölfræði til um fjölda tilfella fjárkúgunar í Venesúela. Flestir þolendur leggi ekki fram kæru vegna ótta við hefndaraðgerðir og vegna skorts á trausti á réttarkerfinu. Þá bendi heimildir til þess að viðbrögð yfirvalda við fjárkúgun séu ófullnægjandi. Þrátt fyrir viðleitni yfirvalda til þess að bregðast við fjárkúgunum hafi þolendur oft á tíðum ekki annarra kosta völ en að verða við kröfum glæpahópa samkvæmt skýrslu Global Initiative Against Transnational Organized Crime frá 2023.

Samkvæmt framangreindum skýrslum, m.a. skýrslu bandarísku leyniþjónustunnar (CIA) frá árinu 2023 og skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins frá árinu 2022, heyra lögreglu- og öryggismál landsins m.a. undir alríkislögregluna, herlögregluna, svæðisbundin lögregluembætti og lögregluembætti sveitarfélaga. Um 45 þúsund lögreglumenn starfi hjá alríkislögreglunni en yfirvöld hafi gefið það út að stefnt sé að því að fjölga þeim í 100 þúsund árið 2024. Í fyrrnefndri skýrslu bandarísku utanríkisþjónustunnar kemur fram að stjórn yfirvalda yfir öryggissveitum landsins hafi minnkað undanfarin ár. Hin ólögmæta og sífellt óvinsælli ríkisstjórn Maduro hafi treyst á hersveitir-, leyniþjónustu og vopnahópa (Colectívos) til þess að veikja stöðu stjórnarandstæðinga og draga úr vilja almennings til mótmæla. Í skýrslu Landinfo frá 2019 kemur fram að Colectívos sé sameiginlegt heiti yfir vopnahópa sem starfi í Venesúela og styðji ríkisstjórnina. Colectívos, sem samanstandi af allt að 100 mismunandi vopnahópum, séu með viðveru um land allt. Óljóst sé að hve miklu leyti vopnahópunum sé stjórnað af yfirvöldum en Colectívos hafi verið þátttakendur í aðgerðum yfirvalda gegn mótmælendum og stjórnarandstæðingum ríkisstjórnar Maduro. Í niðurstöðuskýrslu óháðrar nefndar á vegum mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna (e. Detailed findings of the independent international fact-finding mission on the Bolivarian Republic of Venezuela) frá 2020 er fjallað um ítarlega rannsókn á aðgerðum yfirvalda í Venesúela frá árinu 2014. Nefndin komst að þeirri niðurstöðu að yfirvöld í Venesúela og vopnahópar á þeirra vegum hafi framið svívirðilega glæpi, þ. á m. kerfisbundnar pyndingar og aftökur án dóms og laga, sem geti fallið undir skilgreiningu á glæpum gegn mannkyni (e. crimes against humanity). Meirihluti glæpanna hafi verið hluti af kerfisbundnu ofbeldi gegn almenningi í samræmi við eða til að framfylgja stefnu stjórnvalda, m.a. í því skyni að þagga niður, letja eða brjóta á bak aftur andstöðu tiltekinna einstaklinga við ríkisstjórn Maduro og að berjast gegn glæpum. Þá hafi háttsettir embættismenn og herforingjar haft vitneskju um glæpina og ekki gripið til aðgerða til að sporna gegn þeim. Samtök Ameríkuríkja (e. Organization of American States (OAS)) hafa í skýrslum sínum frá 2020 og 2021 komist að sömu niðurstöðu. Í skýrslunum kemur m.a. fram að umfang og alvarleiki glæpa gegn mannkyni í Venesúela hafi aukist frá því að fyrri skýrsla samtakanna hafi verið gefin út árið 2018. Skráð tilvik aftaka án dóms og laga séu yfir 18 þúsund og fjöldi einstaklinga hafi þurft að sæta handahófskenndum handtökum og varðhöldum. Þvinguð mannshvörf hafi verið tíð og yfirvöld hafi beitt ýmsum aðferðum við pyndingar, s.s. kynferðislegu ofbeldi. Samkvæmt skýrslu Human Rights Watch frá 2023 gaf saksóknari alþjóðlega sakamáladómstólsins (e. International Criminal Court (ICC)) út yfirlýsingu í nóvember 2021 um þá ákvörðun sína að hefja rannsókn á ætluðum glæpum gegn mannkyni sem framdir hafi verið í Venesúela. Í mars 2022 hafi saksóknarinn fengið heimild til að opna skrifstofu sína í Karakas og samkvæmt skýrslu mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna frá júní 2022 hefur dregið verulega úr dauðsföllum í aðgerðum öryggissveita þó nefndin telji að slíkar aðgerðir hafi haldið áfram.

Í skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins frá árinu 2023 kemur fram að konur njóti sömu réttinda og karlar samkvæmt stjórnarskrá landsins. Konur og karlar séu lagalega jöfn í hjónabandi, lögin kveði á um jafnrétti kynjanna á vinnumarkaði og vinnuveitendur megi ekki mismuna konum varðandi laun eða vinnu. Engu að síður sé ójöfnuður á vinnumarkaði viðvarandi og lögum ekki framfylgt. Í skýrslunni kemur einnig fram að dómsmálaráðherra Venesúela hafi sett á fót stofnun sem taki á móti kvörtunum vegna ofbeldis gegn konum og börnum. Ráðherra hafi sett saman teymi lögfræðinga, geðlækna og annarra sérfræðinga sem eingöngu hafi sinnt málum er tengjast morðum á konum, kynbundnu ofbeldi og öðrum glæpum gegn konum. Nauðgun sé refsiverð í Venesúela og geti varðað fangelsi allt að 14 árum. Þá kveði lögin á um tuttugu til þrjátíu ára fangelsisrefsingu fyrir morð á konum og refsingu fyrir líkamlegt, kynferðislegt eða andlegt ofbeldi. Lögreglan í landinu sé þó treg við að grípa inn í og koma í veg fyrir ofbeldi í samböndum og sé ekki þjálfuð til að takast á við slík mál. Þrátt fyrir að lög í landinu kveði á um refsingar fyrir ofbeldi gegn konum sé lögunum sjaldan fylgt í raun.

Venesúelsk stjórnvöld fullgiltu samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins árið 1990. Í umfjöllun um Venesúela á vefsíðu Britannica kemur fram að skólaskylda sé í landinu og að gjaldfrjáls grunnskólamenntun sé í boði fyrir börn á aldrinum sex til 15 ára. Tveggja ára framhaldsskólanám (e. secondary education) sé einnig gjaldfrjálst en ekki skyldubundið. Meira en 90% Venesúelabúa 15 ára og eldri séu læsir. Mikill meirihluti venesúelskra barna sé skráður í skóla en næstum helmingur fullorðinna hafi enga framhaldsskólamenntun og fjöldi hafi ekki hlotið formlega skólagöngu. Venesúelabúar sem tilheyri milli og efri stéttum þjóðfélagsins sendi börn sín gjarnan í einkarekna grunn- og framhaldsskóla. Samkvæmt skýrslu UNICEF frá júní 2023 hafa aukin mótmæli í landinu á fyrri helmingi ársins haft áhrif á menntastofnanir þar sem kennarar hafi í auknum mæli tekið þátt í mótmælum. Sé kennsla í sumum skólum landsins því gloppótt. Kennarasamband Venesúela hafi varað við aðferð sem kallist „horario mosaico“ sem sumir skólar hafi innleitt en í henni felist að kennarar haldi uppi kennslu einungis tvo daga vikunnar til að þeim gefist tími til að sinna öðrum tekjuskapandi störfum. Í skýrslu UNICEF frá desember 2023 kemur fram að um 900 þúsund börn séu utan skóla í landinu og að rúm ein milljón barna eigi á hættu að flosna upp úr námi. Samkvæmt skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins frá 2023 leggja venesúelsk lög bann við verstu tegundum barnaþrælkunar og er börnum yngri en 14 ára meinað að stunda atvinnu. Börnum á aldrinum 14 til 18 ára sé einungis heimilt að stunda atvinnu með leyfi forsjáraðila og þá að hámarki 30 klukkustundir á viku. Stjórnvöld hafi þó ekki framfylgt lögunum með skilvirkum hætti og hafi hátt hlutfall barna hætt í skóla til að fara að vinna. Í skýrslu Amnesty International frá október 2023 kemur fram að börn séu meðal þeirra sem hafi sérstaklega orðið fyrir barðinu á skertu aðgengi að heilbrigðisþjónustu og læknismeðferð, en árið 2022 hafi tæp 80% barnalæknastofa verið búnar að loka. Í skýrslu Barnaheilla (e. Save the Children) frá árinu 2021 kemur fram að samkvæmt mælingum samtakanna á því hvar aðstæður barna séu hvað erfiðastar sé Venesúela í 145. sæti af 186 ríkjum.

Samkvæmt skýrslum mannréttindastofnunar Sameinuðu þjóðanna (e. OHCHR), innflytjenda- og flóttamannanefndar Kanada og Landinfo frá 2023 eru bæði opinberar og einkareknar heilbrigðisstofnanir í Venesúela en aðeins 3% íbúa Venesúela hafi tök á að nýta sér þjónustu einkarekinna heilbrigðisstofnana. Yfir 200 opinber sjúkrahús og fjöldi heilsugæslustöðva séu í landinu en þar hafi skort allar helstu nauðsynjar til að sinna sjúklingum síðustu ár. Í framangreindum skýrslum, þ. á m. skýrslum Human Rights Watch frá 2022 og 2019 og EASO frá 2020 sem uppfærð var með skýrslu EUAA frá 2023, kemur fram að frá árinu 2012 hafi heilbrigðisþjónusta í landinu farið versnandi. Innviðir heilbrigðiskerfisins séu veikburða og skortur sé á heilbrigðisvörum og lyfjum. Árið 2022 hafi stjórnvöld áfram stutt við aðgengi að heilbrigðisþjónustu og lyfjum á fátækustu svæðum landsins en aðbúnaði sé ábótavant og skortur sé á heilbrigðisstarfsfólki sem hafi flúið land í miklum mæli. Fjölda sjúkrahúsa hafi verið lokað undanfarin ár og afkastageta þeirra sjúkrahúsa sem enn séu starfrækt hafi verið takmörkuð, t.a.m. hafi mörg þeirra ekki haft reglulegan aðgang að rafmagni og vatni. Umfang vandans liggi ekki fyrir vegna vanrækslu yfirvalda við birtingu heilbrigðisupplýsinga. Þó liggi fyrir að barnadauði og útbreiðsla sjúkdóma sem hefði mátt koma í veg fyrir með bólusetningum, s.s. barnaveiki, malaríu og mislinga, hafi aukist verulega á undanförnum árum. Heilbrigðiskerfið í Venesúela hafi verið illa undirbúið fyrir Covid-19 faraldurinn og hafi einstaklingar sem greinst hafi með sjúkdóminn ekki fengið viðeigandi meðferð. Þá hafi læknar og annað heilbrigðisstarfsfólk sætt hótunum og jafnvel handtökum af hálfu yfirvalda hafi þau tjáð skoðanir sínar opinberlega á stöðu heilbrigðiskerfisins og aðgerðarleysi stjórnvalda í þeim málum. Í skýrslu Human Rights Watch frá 2023 kemur fram að Venesúela standi enn frammi fyrir alvarlegri mannúðarkrísu þar sem milljónir hafi ekki aðgang að fullnægjandi heilbrigðisþjónustu og næringu. Í mars 2023 hafi rúmlega átta milljónir alvarlega veikra einstaklinga átt í erfiðleikum með að fá heilbrigðisþjónustu í Venesúela og meira en níu milljónir sem þurft hafi á lyfjum eða heilbrigðisþjónustu að halda hafi ekki haft efni á að nálgast slíkt. Aðgangur að drykkjarvatni og hreinlætisaðstöðu hafi dregist saman frá árinu 2021 til ársins 2022 sem m.a. hafi leitt til þess að rúmlega fjórar milljónir séu í mikilli þörf fyrir drykkjarvatn. Í skýrslu Landinfo frá 2023 kemur fram að Venesúela hafi á undanförnum árum glímt við mikinn lyfjaskort en að aðgengi hafi farið batnandi frá árinu 2019. Aðgengi sé að lyfjum fyrir þá sem geta greitt fyrir það en margir fá lyf send frá útlöndum.

Samkvæmt skýrslu Observatory of Religious Freedom in Latin America frá 2022 kveður stjórnarskrá Venesúela á um trúfrelsi að því tilskildu að iðkun hennar brjóti ekki í bága við almennt siðgæði, velsæmi og allsherjarreglu. Þá tryggir stjórnarskráin einnig sjálfstæði kirkna í landinu og rétt foreldra til að velja trúarbragðafræðslu fyrir börn sín. Þá leggi stjórnarskráin sérstakt bann gegn dreifingu áróðursboðskapar gegn trúarbrögðum. Samkvæmt skýrslunni ríkir almennt umburðarlyndi gagnvart ólíkum trúarbrögðum í Venesúela og er lítið um deilur á milli hópa með ólík trúarbrögð. Almennt sæti einstaklingar ekki fordómum fyrir að tilheyra tiltekinni trú. Leiðtogar trúfélaga sem gagnrýni stjórnvöld geti þó verið ógnað af hálfu glæpahópa líkt og Colectivos af frumkvæði stjórnvalda.

Frá árinu 2021 hefur hagkerfi landsins farið að vaxa að nýju og í skýrslu mannréttindastofnunar Sameinuðu þjóðanna frá september 2023 kemur fram að hagvöxtur hafi aukist um 17,3% árið 2022. Þrátt fyrir hagvöxt hafi önnur atvik og aðstæður áfram haft neikvæð áhrif á nauðsynlega almannaþjónustu, s.s. samgöngur, menntun og heilbrigðisþjónustu. Í framangreindri skýrslu Human Right Watch frá árinu 2023 kemur fram að nýkjörinn forseti Kólumbíu hafi tilkynnt að hann hygðist opna landamærin að Venesúela að nýju og hafi skipað sendiherra sem tekið hafi við embætti í Karakas 29. ágúst 2022. Í apríl 2022 hafi argentínsk yfirvöld tilkynnt áform sín um að endurnýja stjórnmálasamband við Venesúela. Í mars og júní 2022 hafi Bandaríkin sent opinberar sendinefndir til Venesúela í fyrsta sinn í mörg ár til samræðna vegna áhuga stjórnar landsins á að opna fyrir olíuviðskipti við Venesúela að nýju. Í nóvember 2022 hafi orðið vendipunktur í stjórnarfari Venesúela þegar ríkisstjórn Maduro og stjórnarandstaðan hafi undirritað samkomulag um að auka mannúðaraðstoð í landinu. Samkomulagið kveði á um úthlutun þriggja milljarða Bandaríkjadala til velferðarmála, m.a. til að tryggja betri heilbrigðisþjónustu, fæðuöryggi og rafmagn í landinu, en fram að þessum tíma hafi Maduro, forseti landsins, verið tregur við að þiggja mannúðaraðstoð þrátt fyrir þrýsting frá Bandaríkjunum og öðrum löndum. Þá hafi samningsaðilar samþykkt að halda viðræðum áfram um hin ýmsu mannréttindamál og ákvarða nákvæma tímasetningu kosninga í landinu árið 2024. Bandaríkin hafi í nóvember 2022 dregið úr viðskiptaþvingunum í kjölfar samningaviðræðna ríkisstjórnar landsins og stjórnarandstöðunnar og hafi heimilað bandarísku fyrirtæki að hefja að nýju vinnslu á olíu frá Venesúela og innflutning á henni til Bandaríkjanna. Samkvæmt sameiginlegri yfirlýsingu Evrópusambandsins, Bandaríkjanna, Kanada og Bretlands 26. nóvember 2022 hyggjast ríkin endurskoða viðskiptaþvinganir sínar verði sýnt fram á lýðræðislegar umbætur í Venesúela.

Samkvæmt frétt á heimasíðu Sameinuðu þjóðanna fór mannréttindafulltrúi Sameinuðu þjóðanna, Volker Türk, í opinbera heimsókn til Venesúela í janúar 2023. Türk fundaði með Maduro forseta landsins sem lýsti opinberlega yfir vilja til að vinna að því að bæta réttarkerfi landsins. Türk hafi þá boðið fram stuðning og sérfræðiþekkingu til að fylgja því eftir. Türk hafi einnig hitt varaforseta landsins, háttsetta embættismenn, yfirmann dómstóla, stjórnarandstöðu og fleiri háttsetta aðila sem allir hafi viðurkennt þörfina á umbótum í landinu. Ítrekaði Türk þá tilmæli sín til aðildarríkja Sameinuðu þjóðanna um að fresta eða aflétta ráðstöfunum sem grafi undan mannréttindum í landinu. Þá hafi Türk hvatt yfirvöld í Venesúela til að efla samstarf sitt við stofnanir Sameinuðu þjóðanna til að tryggja frjálsa, örugga og virðulega endurkomu þeirra sem kjósi að snúa aftur til heimaríkis. Í skýrslu Landinfo frá árinu 2023 kemur fram að frá árinu 2019 hafi Sameinuðu þjóðirnar aukið viðveru sína og mannúðaraðstoð í landinu. Þá hafi aðgengi ýmissa hjálparsamtaka að landinu aukist en aðstoðin komi aðallega frá Sameinuðu þjóðunum, Rauða krossinum og öðrum alþjóðlegum félagasamtökum. Í ávarpi mannréttindafulltrúa Sameinuðu þjóðanna, Volker Türk til mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna, dags. 5. júlí 2023, kemur fram að skráðum tilvikum drápa af hálfu öryggisstofnana, og tilkynningum um pyndingar og illa meðferð haldi áfram að fækka. Stjórnvöld hafi haldið áfram að saksækja og refsa embættismönnum sem gerst hafi sekir um pyndingar og illa meðferð. Þó þurfi stjórnvöld að halda áfram að bregðast við tilkynningum um slíka glæpi án undantekninga og af gagnsæi. Í skýrslu hinnar óháðu nefndar á vegum mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna um stöðu mála í Venesúela, frá 18. september 2023, kemur fram að einhver árangur hafi náðst við að draga þá til ábyrgðar sem framið hafi þau brot sem nefndin hafi rannsakað. Þó telji nefndin ástæðu til að ætla að stjórnvöld hafi ekki gert nauðsynlegar breytingar á stofnunum og hafi jafnvel stuðlað að framgangi þeirra sem beri ábyrgð á ofbeldinu. Þá hafi árásum á borgaralegum og lýðræðislegum vettvangi fjölgað á ný. Sé það einkum vegna stefnu stjórnvalda er miði að því að þagga niður í stjórnarandstöðu og gagnrýni á forseta landsins og ríkisstjórn hans. Þrátt fyrir að nefndinni hafi borist færri tilkynningar um meint alvarleg mannréttindabrot síðasta ár en undanfarin ár, hafi hún skrásett fjölda slíkra brota gegn raunverulegum og ætluðum andstæðingum ríkisstjórnarinnar. Brotin hafi einkum beinst að ákveðnum meðlimum borgaralegs samfélags, þ. á m. verkalýðsleiðtogum, blaðamönnum og baráttufólki fyrir mannréttindum.

Hinn 15. nóvember 2023 aðstoðuðu Útlendingastofnun og embætti ríkislögreglustjóra, í samvinnu við Landamæra- og strandgæslustofnun Evrópu (Frontex), 180 venesúelska ríkisborgara við að snúa aftur heim til Venesúela í sjálfviljugri heimför. Í kjölfarið bárust fregnir af því að umræddir einstaklingar hefðu ekki fengið að fara frjálsir ferða sinna af flugvellinum í Karakas, vegabréf þeirra hefðu verið haldlögð og einhverjir sætt yfirheyrslum af hálfu yfirvalda. Samkvæmt tilkynningu á heimasíðu dómsmálaráðuneytisins 4. desember 2023 kemur fram að haft hafi verið samband við alla einstaklinga í framangreindu flugi sem höfðu skráð tölvupóstföng hjá Útlendingastofnun og þeim sendur spurningalisti á spænsku. Meginniðurstöður þeirra svara sem borist hefðu, um 83 svör sem næðu til 99 einstaklinga, væru að nær allir hafi komist á áfangastað eða væru á leið þangað auk þess sem einn aðili hafi verið kominn til annars ríkis. Þá hafi allir sem svöruðu verið með vegabréf sín og flestir haft ferðastyrk íslenskra stjórnvalda í fórum sínum. Fólkið hafi ekki sætt hefðbundnu landamæraeftirliti en þess í stað verið flutt í móttökumiðstöð þar sem m.a. hafi verið gerð Covid-19 próf og það spurt út í ferðir sínar áður en það hafi verið frjálst ferða sinna eftir um sólarhring. Fyrir umrætt leiguflug höfðu íslensk stjórnvöld veitt alls 135 ríkisborgurum Venesúela aðstoð við sjálfviljuga heimför á þessu ári með hefðbundnu áætlunarflugi án vandkvæða við komu til Venesúela.

Niðurstaða um réttarstöðu flóttamanns samkvæmt 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga

Kærendur byggja á því að þau séu í hættu í heimaríki vegna áreitis, ofbeldis og hótana af hálfu lögreglu og glæpagengja og vegna stjórnmálaskoðana sinna. Kærendur telji að yfirvöld geti ekki veitt þeim og börnum þeirra vernd.

Í viðtölum hjá Útlendingastofnun greindu kærendur frá því að M hafi orðið fyrir ránstilraun og skotárás af hálfu ótilgreindra glæpamanna árið 2013. Fyrir um sex árum síðan hafi nokkrir lögreglumenn komið á heimili þeirra, áreitt þau, stolið bíl þeirra og krafið greiðslu fyrir að skila bílnum. Þá greindu kærendur frá því að hafa þurft að þola fjárkúgun, áreiti og hótanir af hálfu glæpamanna og lögreglumanna. K greindi frá því að í tvígang hafi farsíma hennar verið rænt og að lögreglan hafi krafið þau um greiðslu gjalds fyrir að reka fatabás á götumarkaði.

Heimildir um heimaríki kæranda benda til þess að vopnaðir glæpahópar í landinu stundi glæpi á borð við fjárkúgun, eiturlyfjasmygl og mannrán. Að teknu tilliti til gagna málsins og upplýsinga um heimaríki kærenda er ekki hægt að útiloka að M hafi orðið fyrir ránstilraun og skotárás fyrir tíu árum, að farsímum K hafi verið rænt og að kærendur og börn þeirra hafi orðið fyrir einhvers konar áreiti af hálfu glæpamanna. Kærunefnd telur hvorki gögn málsins né frásögn kærenda benda til þess að kærendur og börn þeirra séu sérstakt skotmark glæpahópa eða að þau eigi á hættu að verða fyrir áreiti sem nái því marki að teljast ofsóknir í skilningi 1. mgr. 38. gr. laga um útlendinga. Við það mat lítur kærunefnd m.a. til þess að frásagnir kærenda bera með sér að langt sé liðið frá umræddum atvikum, sem einnig virðast hafa verið einangruð og óskyld. Þá liggja ekki fyrir gögn um að kærendum hafi borist hótanir frá glæpamönnum.

Af heimildum um heimaríki kærenda er ljóst að fjárkúganir hafa færst í vöxt vegna batnandi efnahags landsins og þar sem fyrirtæki og einstaklingar hafa meira fé milli handanna. Hefur slíkt einkum beinst að þeim sem hafa aðgang að erlendum gjaldmiðli. Minni glæpahópar hafi framið rán hjá smærri fyrirtækjum. Fjárkúganir af hálfu starfsmanna yfirvalda og öryggissveita hafi einnig aukist. Starfsmenn yfirvalda krefjist oft mútugreiðslna til að ljúka eða hraða afgreiðslu mála í stjórnsýslunni. Þá séu almennir borgarar og vörubílstjórar stöðvaðir á eftirlitsstöðvum og þeir krafðir um greiðslu gjalds í stað þess að lögð sé á þá sekt eða til að þeir megi halda áfram för sinni. Þá hafi sumir starfsmenn yfirvalda starfað með glæpahópum við nautgripaþjófnað í þeim tilgangi að kúga háar fjárhæðir af nautgripabændum. Viðbrögð yfirvalda við fjárkúgun munu vera ófullnægjandi. Þá bera heimildir með sér að lögreglumenn hafi tekið þátt í fjárkúgunum og krafist verndargjalds af fyrirtækjum. Með vísan til þessara upplýsinga er ekki ástæða til að draga í efa að ótilgreindir lögreglumenn hafi áreitt kærendur, stolið bifreið þeirra og krafist lausnargjalds fyrir sex árum. Þá er ekki ástæða til að draga í efa að ótilgreindir lögreglumenn hafi krafið kærendur um greiðslu fyrir fatabás þeirra á götumarkaði. Á hinn bóginn er til þess að líta að frásögn kærenda ber með sér að langt sé liðið frá umræddum þjófnaði á bíl þeirra og að framangreind atvik hafi verið einangruð og óskyld. Þá bera gögn málsins ekki með sér að kærendum hafi borist hótanir eða þau hafi orðið fyrir ofbeldi af hálfu lögreglu. Framangreind atvik verða því ekki talin ná því marki að kærendur og börn þeirra geti talist sérstakt skotmark lögreglu eða að þau eigi að öðru leyti á hættu að verða fyrir áreiti sem nái því marki að teljast ofsóknir í skilningi 1. mgr. 38. gr. laga um útlendinga. Þrátt fyrir að fallast megi á að skilvirkni lögregluyfirvalda og dómstóla í heimaríki kærenda sé ábótavant og spilling sé talsverð í dómskerfinu verður séð samkvæmt gögnum sem kærunefnd hefur kynnt sér um aðstæður í Venesúela að stjórnvöld þar í landi hafa brugðist við spillingu innan raða lögreglumanna.

Í viðtali hjá Útlendingastofnun kváðust kærendur ekki hafa verið aðilar að stjórnmálaflokki. K greindi frá því að tilheyra meirihluta hópi fólks sem væri bældur niður af stjórnvöldum í heimaríki kærenda. Í umfjöllun í handbók flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna um réttarstöðu flóttamanna um stjórnmálaskoðanir í skilningi alþjóðasamnings um réttarstöðu flóttamanna frá 1951 kemur fram að umsækjandi verði að sýna fram á að hann óttist að verða fyrir ofsóknum vegna þessara skoðana sinna. Gengið sé út frá því að stjórnmálaskoðanir umsækjanda feli í sér gagnrýni á stefnu eða aðferðir stjórnvalda sem séu stjórnvöldum ekki þóknanlegar. Einnig sé gert ráð fyrir að stjórnvöldum sé kunnugt um slíkar skoðanir eða að þau ætli að umsækjandi hafi þær. Við mat á því hvort umsækjandi um alþjóðlega vernd hafi ástæðuríkan ótta við ofsóknir á grundvelli stjórnmálaskoðana í skilningi samningsins er þannig ekki skilyrði að viðkomandi hafi skoðanir sem feli í sér gagnrýni á stjórnvöld, heldur aðeins að stjórnvöld ætli að umsækjandi hafi slíkar skoðanir. Samkvæmt e-lið 3. mgr. 38. gr. laga um útlendinga vísa stjórnmálaskoðanir í skilningi 1. mgr. 37. gr. laganna einkum til skoðana á stefnumótun og aðferðum stjórnvalda sem kunna að beita ofsóknum án tillits til þess hvort viðkomandi hefur aðhafst eitthvað til að tjá skoðanir sínar. Með vísan til þess sem fram kemur í umfjöllun í handbók flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna verður lagt til grundvallar að ætlaðar stjórnamálaskoðanir geti einnig fallið undir e.-lið 1. mgr. 38. gr. laga um útlendinga.

Að mati kærunefndar er ekki ástæða til að draga í efa að kærendur séu á móti stjórnvöldum í heimaríki. Frásagnir kærenda bera á hinn bóginn ekki með sér að þau hafi tekið þátt í starfsemi stjórnmálaflokka eða verið áberandi fyrir hönd slíkra flokka í heimaríki. Þá bera frásagnir kærenda ekki með sér að þau hafi tekið þátt í mótmælum. Með vísan til framangreinds teljast kærendur ekki eiga frekar á hættu að verða fyrir áreiti en aðrir einstaklingar í heimaríki þeirra sem séu mótfallnir stjórnvöldum. Gögn málsins og framburður kærenda bendir ekki til þess að þau eigi á hættu ofsóknir af hálfu stjórnvalda á grundvelli stjórnmálaskoðana í skilningi 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga, verði þeim gert að snúa aftur til heimaríkis. 

Í greinargerð vísa kærendur til þess að raunveruleg hætta sé á að umsækjendur um alþjóðlega vernd frá Venesúela verði fyrir illri meðferð við endursendingu til Venesúela. Af heimildum verður á hinn bóginn ekki ráðið að einstaklingar sem snúa til baka til Venesúela sæti ofsóknum eða áreiti stjórnvalda af þeirri ástæðu einni að hafa sótt um alþjóðlega vernd utan heimaríkisins og fengið synjun. Samkvæmt 5. mgr. 37. gr. laga um útlendinga skal, við mat samkvæmt 1. og 2. mgr. 37. gr. í málum sem varða börn, fylgdarlaus sem önnur, hafa það sem er barninu fyrir bestu að leiðarljósi. Í ákvæðinu kemur fram að við það mat beri að líta til möguleika barns á fjölskyldusameiningu, öryggis barnsins, velferðar og félagslegs þroska auk þess sem taka skal tillit til skoðana barnsins í samræmi við aldur þess og þroska. Leggur kærunefnd mat á hagsmuni þeirra samkvæmt 5. mgr. 37. gr. laga um útlendinga með hliðsjón af upplýsingum úr fyrirliggjandi gögnum málsins og framangreindum aðstæðum í heimaríki þeirra. Sjónarmiðum barnanna var nægilega komið á framfæri með framburði kærenda, viðtali við A og hagsmunagæslu talsmanns. Að teknu tilliti til ákvæða barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna og íslenskrar löggjafar um barnavernd standa engin rök í vegi fyrir því að börnin fylgi foreldrum sínum aftur til heimaríkis. Börn þau sem um ræðir eru í fylgd foreldra sinna sem eru vinnufær og að mestu heilsuhraust og njóta börnin stuðnings þeirra. Eins og áður greinir stendur börnum kærenda til boða gjaldfrjáls menntun í heimaríki. Þá bera gögn með sér að börnin muni jafnframt hafa aðgang að heilbrigðiskerfinu í heimaríki. Með vísan til framangreinds og að teknu tilliti til sjónarmiða um öryggi, velferð og félagslegan þroska barnanna er það börnunum fyrir bestu að fylgja foreldrum sínum til heimaríkis síns.

Þegar frásagnir kærenda, upplýsingar um heimaríki og gögn málsins eru virt í heild, með hliðsjón af aðstæðum þeirra og barna þeirra í heimaríki, teljast kærendur ekki hafa fram á með rökstuddum hætti að þau eigi á hættu ofsóknir í skilningi 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Sama á við þegar litið er til samsafns athafna. Kærendur og börn þeirra uppfylla því ekki skilyrði fyrir viðurkenningu á stöðu sem flóttamenn hér á landi, sbr. 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga.

Niðurstaða um viðbótarvernd samkvæmt 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga

Í greinargerð vísa kærendur til þess að þau hafa orðið fyrir árásum, ofsóknum og ofbeldi af hálfu lögreglu og vegna þess eigi þau í hættu á að verða fyrir ómannúðlegri og vanvirðandi meðferð í heimaríki af hálfu aðila sem tengjast stjórnvöldum. Kærendur búi við skoðanakúgun og skert tjáningarfrelsi og geti ekki látið í ljós skoðanir sínar á ríkisstjórninni án þess að eiga á hættu að vera handtekin. Kærendur telji að persónulegar aðstæður þeirra og barna þeirra og almennt óöruggt ástand sem ríki í Venesúela geri það að verkum að þau séu í hættu á að verða fyrir ómannúðlegri og vanvirðandi meðferð.

Með úrskurðum kærunefndar nr. 539/2023, 526/2023 og 525/2023 frá 27. september 2023 komst nefndin að þeirri niðurstöðu, með vísan til alþjóðlegra skýrslna um ástandið í Venesúela, að í landinu væri ekki stríð eða útbreidd vopnuð átök. Þó öryggisástand í landinu væri enn ótryggt og glæpa- og morðtíðni há hafi dregið úr átökum í landinu undanfarin ár og hafi þau að mestu verið staðbundin við svæði við landamæri Kólumbíu. Var því talið að aðstæður í landinu næðu ekki því marki að sérhver einstaklingur sem þangað færi ætti á hættu að láta lífið eða verða fyrir alvarlegum skaða af völdum árása í vopnuðum átökum. Vísaði nefndin þá til þess að efnahagsástand í landinu hafi þokast í rétta átt með afléttingum ýmissa viðskiptaþvingana, innflutningstakmarkana og verð- og gjaldeyrisstýringar. Ákveðnar breytingar hafi orðið á stjórnarfari landsins síðasta árið og með því samkomulagi sem ríkisstjórn Maduro og stjórnarandstaðan hafi undirritað í nóvember 2022 virðist viðhorf samningsaðila hafa breyst og bendi til þess að aðilar séu tilbúnir að vinna saman að bættum aðstæðum í landinu. Framangreindur samningur og samtal milli stjórnar og stjórnarandstöðu í landinu bæri með sér að dregið hafi úr því pólitíska ójafnvægi sem áður hafi ríkt þegar íbúar Venesúela og aðrar þjóðir hafi skipst í fylkingar með tveimur sitjandi forsetum landsins. Stjórnvöld í Venesúela hafi nú viðurkennt þörfina á mannúðaraðstoð og greint frá þeim vilja sínum að vinna að bættu réttarkerfi í landinu en ríkisstjórn Maduro hafi fram að því hafnað allri mannúðaraðstoð og lokað fyrir innflutning til landsins. Auk þess höfðu fjölmörg ríki heims sett á Venesúela viðskiptaþvinganir sem vonir standi til að létt verði á vinni stjórnvöld í Venesúela með alþjóðasamfélaginu að umbótum í landinu. Samkvæmt alþjóðlegum skýrslum líti út fyrir að forsetakosningar verði í landinu árið 2024, efnahagur landsins hafi þokast í rétta átt síðustu árin, olíuviðskipti hafi hafist að nýju og samningur verið gerður milli stjórnar og stjórnarandstöðu um aukna mannúðaraðstoð í landinu. Er það því jafnframt mat kærunefndar að þrátt fyrir alvarlega stöðu í Venesúela þá nái almennar aðstæður þar ekki því alvarleikastigi að hver sem þar sé staddur teljist eiga á hættu dauðarefsingu eða ómannúðlega eða vanvirðandi meðferð eða refsingu í skilningi 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga.

Það er því afstaða kærunefndar, með vísan til niðurstöðu framangreindra úrskurða og gagna um Venesúela, að frekari persónulegir þættir þurfi að vera til staðar svo umsækjandi um alþjóðlega vernd frá Venesúela teljist eiga á hættu meðferð í skilningi 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Í úrskurðunum féllst kærunefnd á breytta framkvæmd Útlendingastofnunar og eiga þau sjónarmið við að breyttu breytanda í úrskurði þessum.

Með vísan til umfjöllunar undir 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga um aðstæður kærenda og barna þeirra er ljóst að þau atvik sem kærendur hafa lýst ná ekki því marki að teljast ómannúðleg eða vanvirðandi meðferð í skilningi 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Þá er ekkert í gögnum málsins eða framburðum kærenda sem gefur tilefni til að ætla að einstaklingsbundnar aðstæður kærenda og barna þeirra leiði til þess að þau eigi á hættu að sæta ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu snúi þau til baka.

Í viðtölum hjá Útlendingastofnun greindu kærendur frá því að hafa verið búsett í borginni […] í Miranda fylki í Venesúela. Samkvæmt landaupplýsingum er Miranda fylki í norðurhluta Venesúela. Heimildir bera ekki með sér að átök eða árásir á almenna borgara séu tíðar í heimafylki kærenda. Samkvæmt landaupplýsingum, m.a. korti og upplýsingum á vefsíðu ACLED (e. The Armed Conflict Location & Event Data Project), eru ekki virk átök eða óeirðir á þeim svæðum sem kærendur hafa tengsl við eða í Venesúela almennt. Samkvæmt framangreindri vefsíðu áttu sér stað 81 ofbeldisatvik í fylkinu árið 2023 þar sem 126 einstaklingar létu lífið en ekki kemur fram hversu margir af þeim hafi verið meðlimir glæpahópa eða almennir borgarar. Með vísan til framangreinds verður ekki talið að kærendur eigi á hættu að verða fyrir alvarlegum skaða af völdum árása í vopnuðum átökum við komu aftur til heimaríkis.

Þegar frásögn kærenda, upplýsingar um heimaríki og gögn málsins eru virt í heild, með hliðsjón af aðstæðum kærenda í heimaríki, er það niðurstaða kærunefndar að einstaklingsbundnar aðstæður kærenda og barna þeirra séu ekki þannig að þær falli undir ákvæði 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Kærendur og börn þeirra uppfylla því ekki skilyrði fyrir viðurkenningu á stöðu sem flóttamenn hér á landi, sbr. 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga.

Alþjóðleg vernd á grundvelli 40. gr. laga um útlendinga

Þar sem kærendur og börn þeirra eru ekki flóttamenn samkvæmt 37. gr. laga um útlendinga eiga þau ekki rétt á alþjóðlegri vernd hér á landi, sbr. 40. gr. laga um útlendinga.

Dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða

Lagagrundvöllur

Samkvæmt 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga er heimilt að veita útlendingi sem staddur er hér á landi dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, þrátt fyrir að skilyrði 37. gr. séu ekki uppfyllt, ef útlendingur getur sýnt fram á ríka þörf fyrir vernd, t.d. af heilbrigðisástæðum eða vegna erfiðra félagslegra aðstæðna viðkomandi eða erfiðra almennra aðstæðna í heimaríki eða í landi sem honum yrði vísað til. Kærunefnd telur, með vísan til orðalags ákvæðisins um „ríka þörf fyrir vernd“ auk lögskýringargagna sem fylgdu greininni, að dvalarleyfi á grundvelli 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga verði ekki veitt nema aðstæður, bæði almennar og sérstakar m.t.t. heilsufars og félagslegra þátta, auk atvika sem þar er vísað til, nái ákveðnu alvarleikastigi þegar málið er virt í heild.

Í athugasemdum við 74. gr. frumvarps til laga um útlendinga kemur fram að í samræmi við ákvæði alþjóðlegra skuldbindinga og almennra laga sé lagt til að tekið sé sérstakt tillit til barna, hvort sem um er að ræða fylgdarlaus börn eða önnur börn. Í því ljósi og með hliðsjón af meginreglunni um að það sem barni er fyrir bestu skuli hafa forgang þegar teknar eru ákvarðanir um málefni þess, sbr. jafnframt 2. mgr. 10. gr. og 3. mgr. 25. gr. laga nr. 80/2016, telur kærunefnd að við mat á því hvort skilyrði 1. mgr. 74. gr. laganna séu fyrir hendi skuli taka sérstakt tillit til þess ef um barn er að ræða og skuli það sem er barni fyrir bestu haft að leiðarljósi við ákvörðun.

Í athugasemdum við frumvarp til laga um útlendinga kemur fram að ákvæði 1. mgr. 74. gr. vísi m.a. til erfiðra almennra aðstæðna í heimaríki og væri þar oft um að ræða viðvarandi mannréttindabrot í ríkinu og þá aðstöðu að yfirvöld veiti þegnum sínum ekki vernd gegn ofbeldisbrotum eða glæpum. Í 43. gr. a reglugerðar um útlendinga kemur m.a. fram að með erfiðum almennum aðstæðum sé vísað til alvarlegra aðstæðna í heimaríki sem ekki séu staðbundin, svo sem vegna langvarandi stríðsátaka. Þá kemur fram að erfiðar almennar aðstæður taki að jafnaði ekki til neyðar af efnahagslegum rótum eða náttúruhamfara, svo sem fátæktar, hungursneyðar eða húsnæðisskorts. Eigi það m.a. við þegar í heimaríki viðkomandi ríki óðaverðbólga, atvinnuleysi í ríkinu sé mikið eða lágmarkslaun dugi ekki fyrir framfærslu.

Í 43. gr. a reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017 með síðari breytingum og athugasemdum við frumvarp til laga um útlendinga kemur fram að með ríkri þörf á vernd af heilbrigðisástæðum sé m.a. miðað við að um skyndilegan og lífshættulegan sjúkdóm sé að ræða og meðferð við honum væri aðgengileg hér á landi en ekki í heimaríki viðkomandi. Í þessu sambandi kemur jafnframt fram að meðferð teljist ekki óaðgengileg þótt greiða þurfi fyrir hana heldur er hér átt við þau tilvik þar sem meðferð sé til í heimaríkinu en viðkomandi eigi ekki rétt á henni. Þá kunna að falla undir 1. mgr. 74. gr. mjög alvarlegir sjúkdómar sem ekki teljast lífshættulegir, svo sem ef sýnt þykir að þeir muni valda alvarlegu óbætanlegu heilsutjóni. Ef um langvarandi sjúkdóm sé að ræða væru ríkari verndarsjónarmið fyrir hendi ef sjúkdómur væri á lokastigi. Jafnframt væri rétt að líta til þess hvort meðferð hafi hafist hér á landi og ekki væri læknisfræðilega forsvaranlegt að rjúfa meðferð, sem og til atriða sem varði félagslegar aðstæður útlendings og horfur hans.

Í 43. gr. a reglugerðar um útlendinga og athugasemdum við frumvarp til laga um útlendinga er jafnframt fjallað um erfiðar félagslegar aðstæður. Þar kemur fram að átt sé við að útlendingur hafi þörf á vernd vegna félagslegra aðstæðna í heimaríki og eru þar nefnd sem dæmi aðstæður kvenna sem hafa sætt kynferðislegu ofbeldi, sem leitt getur til erfiðrar stöðu þeirra í heimaríki, eða aðstæður kvenna sem ekki fella sig við kynhlutverk sem er hefðbundið í heimaríki þeirra og eiga á hættu útskúfun eða ofbeldi við heimkomu. Verndarþörf þjóðfélagshópa að öðru leyti myndi fara eftir aðstæðum í hverju máli.

Samkvæmt 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga er heimilt að veita útlendingi sem sótt hefur um alþjóðlega vernd hér á landi og ekki fengið niðurstöðu í máli sínu á stjórnsýslustigi innan 18 mánaða eftir að hann lagði inn umsókn sína dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða að uppfylltum skilyrðum 2. og 3. mgr. ákvæðisins. Ef um barn er að ræða skal miða við 16 mánuði.

Niðurstaða um 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga

Af framangreindum gögnum að ráða hafa yfirvöld í Venesúela og vopnahópar á þeirra vegum síðustu ár framið glæpi sem fallið geta undir skilgreiningu á glæpum gegn mannkyni (e. crimes against humanity) og hafi meirihluti glæpanna verið hluti af kerfisbundnu ofbeldi gegn almenningi í þeim tilgangi að efla stjórn ríkisins. Almennir borgarar hafi hvorki getað treyst á vernd lögregluyfirvalda né opinbera aðstoð. Þá benda heimildir til þess að sú alvarlega staða sem ríkt hefur í landinu hvað varðar efnahag þess og aðgang almennings að fæðu, hreinu vatni og heilbrigðisþjónustu hafi fyrst og fremst stafað af aðgerðum og aðgerðarleysi stjórnvalda en ekki af utanaðkomandi þáttum líkt og þurrkum eða öðrum náttúruhamförum. Af þeim gögnum og skýrslum sem kærunefnd hefur farið yfir má ráða að þrátt fyrir það ótrygga ástand sem ríkt hefur í landinu síðustu ár hafi ástandið undanfarna mánuði breyst til batnaðar m.a. með breyttu viðhorfi stjórnvalda til mannúðaraðstoðar og vilja til að vinna að bættu réttarkerfi landsins. Þá er hvorki stríð í landinu né útbreidd vopnuð átök. Með vísan til fyrri umfjöllunar um aðstæður kærenda og barna þeirra og aðstæður í heimaríki þeirra, benda gögn málsins ekki til þess að almennar aðstæður sem bíði þeirra í heimaríki nái því alvarleikastigi sem 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga kveði á um.

Í viðtali hjá Útlendingastofnun greindi K frá því að vera við góða andlega og líkamlega heilsu og taka engin lyf að staðaldri. Eitt sinn hafi K verið sagt að láta athuga skjaldkirtil en hún hafi ekki gert það vegna fjárhagsstöðu sinnar. Þá sé hún kvíðin og þunglynd vegna stöðu fjölskyldunnar og vegna þeirrar óvissu sem uppi sé um stöðu þeirra hér á landi. K greindi frá því að það hafi verið dýrt að leita sér læknisþjónustu í Venesúela og því hafi það ekki verið hægt. K greindi frá því að hafa hitt lækni á Íslandi en hún hafi ekki rætt við hann um vandamál vegna skjaldkirtils.

Í viðtali hjá Útlendingastofnun greindi M frá því að vera með brotinn olnboga og það hafi ekkert verið gert í því í Venesúela. Hann sé að hreyfa sig og hreyfa höndina og þá sé þetta skárra. M hafi lent í skotárás og hafi fengið sjö byssuskot í sig. Hann hafi leitað sér mikillar læknisaðstoðar í kjölfarið. M hafi verið í dái í fimm daga í kjölfar árásarinnar, fjarlægja hafi þurft hluta af þörmum og hann hafi verið með stóma í nokkra mánuði. Eftir árásina sé hann með nýrnabilun og háan blóðþrýsting. M kvaðst ekki hafa getað greitt fyrir læknisþjónustu í kjölfar árásarinnar en hann hafi fengið aðstoð við að greiða reikninga og fólk hafi gefið blóð.

M greindi frá því að taka blóðþrýstingslyf og magalyf sem hann hafi ekki alltaf haft aðgang að í heimaríki vegna fjárhagsaðstæðna og stundum hafi lyfin ekki verið til. M greindi frá því að hann hefði átt að fara í ristilspeglun og aðra magaspeglun í Venesúela. Hann hafi einnig átt að fara í sjúkraþjálfun en hafi ekki haft efni á því. Hvað andlega heilsu varðar greindi M frá því að vera pirraður yfir óöryggi í Venesúela og vegna barna sinna og hann lifi í ótta um að verða aftur fyrir árás. M taldi sig ekki þurfa á sálfræðilegri aðstoð að halda.

Kærendur greindu frá því að A hafi verið greindur með einhverfu í heimaríki þegar hann hafi verið fjögurra ára gamall. K greindi frá því að um leið og hann hafi verið greindur hafi hún farið með A í viðeigandi meðferð. A hafi ekki talað þegar hann hafi verið fjögurra ára en eftir ár í meðferð hafi orðið breyting til hins betra. Fjárhagsaðstæður kærenda hafi ollið því að þau hafi þurft að hætta með A í umræddri meðferð þegar hann hafi verið um sjö eða átta ára. A hafi ekki fengið nein lyf í Venesúela vegna einhverfu og K teldi hann ekki þarfnast lyfja því hann hafi aldrei gert það áður. M greindi frá því að líkamlega heilsa A væri góð. A hafi upplifað allt það góða og slæma sem þau hafi gengið í gegnum í Venesúela og honum liði því andlega illa við að búa þar. K greindi frá því að B væri við góða heilsu en hún hafi fæðst með klofið eyra og þurfi að fara í aðgerð vegna þess. M greindi frá því að B væri heilbrigð og hamingjusöm.

Kærendur lögðu fram fjölda heilsufarsgagna við meðferð mála þeirra hjá Útlendingastofnun. Í göngudeildarnótum fyrir M, dags. 21. til 28. mars 2023, kemur fram að M taki lyfin Candesartan og Omeprazole sem hann hafi komið með frá heimaríki en að komið væri að endurnýjun eftir þrjátíu daga. Í göngudeildarnótum fyrir A, dags. 21. til 24. mars 2023, kemur fram að hann hafi verið greindur með væga einhverfu fjögurra ára gamall og hafi verið í meðferð í þrjú ár þar til foreldrar hafi ekki getað staðið undir kostnaði við meðferð. A lesi og skrifi og sé ágætlega virkur og K vilji að hann fari í skóla án aðgreiningar. A líði vel, finnist gaman að búa á Íslandi og hann spili fótbolta. Í göngudeildarnótum fyrir börn kærenda kemur fram að þau hafi fengið helstu bólusetningar.

Kærendur hafa einnig lagt fram heilsufarsgögn frá heimaríki. Gögn er varða M eru flest dagsett árið 2013 og af þeim má ráða að M hafi undirgengist ýmsar rannsóknir og röntgenmyndatökur og hafi m.a. verið með brotinn olnboga. Læknisvottorð frá […] dagsett 10. júlí 2023 ber með sér að M hafi verið skotinn nokkrum sinnum í brjóstkassa, maga og handlegg árið 2013. Í kjölfar þess hafi M verið á bráðamóttöku í sex daga og á spítala í 25 daga þar sem hann hafi verið meðhöndlaður með sýklalyfjum og nauðsynlegum aðgerðum. Þá lögðu kærendur fram nokkur skjöl frá heimaríki sem varða A og eru dagsett árin 2013-2014. Þar á meðal er eitt sálfræðimat og eitt mat taugafræðings. Af skjölum má ráða að A hafi verið greindur á einhverfurófi í mars 2014 og með einkenni Aspergers í júlí 2014. Af mati taugafræðings má ráða að m.a. sé mælt með hegðunarráðgjöf og iðjuþjálfun. Ef einkenni breytist ekki gæti A tekið lyf.

Af framburði kærenda og framlögðum heilsufarsgögnum verður ekki ráðið að þau eða börn þeirra glími við skyndilega, lífshættulega eða mjög alvarlega sjúkdóma sem fyrirséð sé að muni valda þeim alvarlegu óbætanlegu heilsutjóni. Að framangreindu virtu verður ekki talið að kærendur eða börn þeirra þarfnist meðferðar sem sé svo sérhæfð að þau geti einungis hlotið hana hérlendis né að rof á henni yrði til tjóns fyrir þau verði þeim gert að snúa aftur til heimaríkis. Meðferð telst ekki óaðgengileg þótt greiða þurfi fyrir hana. Verður ekki annað séð en að kærendur og börn þeirra hafi getað leitað sér heilbrigðisaðstoðar í heimaríki og fengið hana og að þau hafi getað fengið þau lyf sem þau hafi þurft á að halda í heimaríki. Hefur jafnframt ekkert komið fram sem bendir til annars en að þau muni áfram geta fengið heilbrigðisaðstoð verði þeim gert að snúa aftur til heimaríkis jafnvel þó að greiða þurfi fyrir hana. Byggir kærunefnd m.a. á því að A hafi fengið meðferð í tengslum við einhverfu í heimaríki. Má ráða af framburði kæranda að A hafi verið án meðferðar við einhverfu í heimaríki í rúm sex til sjö ár og að hann hafi getað gengið í skóla og leikið við vini sína. Þá hafi M þjáðst af þeim heilsufarskvillum sem hann hefur greint frá síðan hann lenti í skotárás fyrir rúmlega tíu árum og fengið greiningu á og meðferð við í heimaríki. Hafa kærendur því ekki sýnt fram á að þau eða börn þeirra hafi þörf á vernd af heilbrigðisástæðum, sbr. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.

Í viðtali hjá Útlendingastofnun greindi K frá því að eiga foreldra, ömmu, afa og þrjá samfeðra bræður í heimaríki. K hafi ekki verið í launuðu starfi í Venesúela en hún hafi starfað með eiginmanni sínum við að selja fatnað á bás á götumarkaði og innkoma hafi verið óstöðug. K greindi frá því að þau hafi haft efni á helstu nauðsynjum. Í viðtali hjá Útlendingastofnun greindi M frá því að eiga foreldra og einn bróður í heimaríki. Þá greindi hann frá því að eiga annað barn sem sé búsett hjá móður sinni í Venesúela og hann sé í reglulegum samskiptum við. M sé lærður grafískur hönnuður og hafi starfað með móður sinni við að selja fatnað sem hún hafi framleitt. Laun hans hafi farið eftir sölu en mánaðarlaun hans hafi verið undir 100 dollurum. M greindi frá því að þau hafi átt fyrir mat en ekki nóg fyrir fjögurra manna fjölskyldu en þau, foreldrar hans og bróðir hans hafi hjálpast að. Kærendur greindu frá því að hafa búið í íbúð í þeirra eigu í Venesúela og að A hafi gengið í skóla. K greindi frá því að A hafi gengið í ríkisstyrktan skóla þar sem skólagjöldin hafi verið niðurgreidd og þau hafi því einungis greitt hluta af þeim. A hafi einungis farið í skólann einn til tvo daga í viku, stundum hafi ekki verið vatn eða rafmagn í skólanum og þá hafi ekki alltaf verið fararmáti fyrir börnin til að fara í skólann. Í viðtali hjá Útlendingastofnun greindi A frá því að hafa gengið í skóla fimm daga vikunnar. Skólinn hafi verið lítill, það hafi ekki verið vatn og rafmagn hafi verið af skornum skammti. Þá hafi kennarar öskrað á hann og sýnt honum lítinn skilning. A hafi leikið sér við vini sína í fótbolta eftir skóla.

Kærendur hafa greint frá því að eiga bakland í heimaríki og af gögnum málsins verður talið að þau hafi getað framfleytt sér og börnum sínum í heimaríki. Kærendur eru ung að árum og hefur ekkert komið fram sem bendir til annars en að þau sé vinnufær og tiltölulega heilsuhraust. Það er því niðurstaða kærunefndar að félagslegar aðstæður kærenda og barna þeirra við komu til heimaríkis séu ekki slíkar að þær geti talist erfiðar í skilningi 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.

Við þetta mat hefur kærunefnd litið til hagsmuna barna kærenda og aðstæðna barna almennt í Venesúela í samræmi við 2. mgr. 10. gr. laga um útlendinga og 3. mgr. 25. sömu laga. Í Venesúela er gjaldfrjáls menntun til 18 ára aldurs, skólaskylda á grunnskólastigi, aðstoð er í boði fyrir efnaminni fjölskyldur af hálfu stjórnvalda í formi CLAP mataraðstoðar auk þess sem innlend og alþjóðleg mannúðarsamtök styðja stjórnvöld í að veita menntun, heilbrigðisþjónustu og matvælaaðstoð til barna, m.a. í formi matar í skólum landsins. Hvorki almennar aðstæður í Venesúela né einstaklingsbundnar aðstæður barnanna í máli þessu eru með þeim hætti að rétt sé að veita dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða.

Þegar frásögn kærenda, upplýsingar um heimaríki og gögn málsins eru virt í heild, með hliðsjón af aðstæðum kærenda og barna þeirra í heimaríki, er það niðurstaða kærunefndar að kærendur hafi ekki sýnt fram á aðstæður sem ná því alvarleikastigi að þau eða börn þeirra hafi ríka þörf fyrir vernd líkt og kveðið er á um í 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Það er því niðurstaða kærunefndar að aðstæður í heimaríki séu ekki með þeim hætti að veita beri kærendum og börnum þeirra dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, sbr. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.

Niðurstaða um 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga

Kærendur sóttu um alþjóðlega vernd fyrir sig og börn sín 21. janúar 2023 og á ákvæði 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga því ekki við.

Bann við endursendingu samkvæmt 42. gr. laga um útlendinga

Lagagrundvöllur

Samkvæmt 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga er ekki heimilt að senda útlending eða ríkisfangslausan einstakling til svæðis þar sem hann hefur ástæðu til að óttast ofsóknir, sbr. 37. og 38. gr., eða vegna svipaðra aðstæðna og greinir í flóttamannahugtakinu er í yfirvofandi hættu á að láta lífið eða verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Samkvæmt 2. mgr. sömu greinar er einnig óheimilt að senda útlending til svæðis þar sem ekki er tryggt að hann verði ekki sendur áfram til slíks svæðis sem greinir í 1. mgr.

Niðurstaða um bann við endursendingu

Með vísan til umfjöllunar að framan um heimaríki kærenda er það niðurstaða kærunefndar að þær aðstæður sem ákvæðið tekur til eigi ekki við í máli kærenda og barna þeirra. Stendur ákvæði 42. gr. laga um útlendinga því ekki í vegi fyrir endursendingu kærenda og barna þeirra þangað.

Brottvísun og endurkomubann

Lagagrundvöllur

Í 3. mgr. 43. gr. reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017 kemur fram að verði umsækjanda um alþjóðlega vernd ekki veitt dvalarleyfi skuli Útlendingastofnun taka ákvörðun um frávísun eða brottvísun eftir ákvæðum laga um útlendinga og að útlendingur sem sótt hafi um alþjóðlega vernd teljist hafa áform um að dveljast á landinu lengur en 90 daga. Samkvæmt 2. mgr. 98. gr. laga um útlendinga skal vísa útlendingi úr landi sem dvelst ólöglega í landinu eða þegar tekin hefur verið ákvörðun sem bindur enda á heimild útlendings til dvalar í landinu svo framarlega sem ákvæði 102. gr. laganna eigi ekki við. Í 102. gr. laganna er kveðið á um vernd og takmarkanir við ákvörðun um brottvísun. Samkvæmt 3. mgr. 102. gr. laganna skal brottvísun ekki ákveðin ef hún, með hliðsjón af atvikum, alvarleika brots og tengslum útlendings við landið, felur í sér ósanngjarna ráðstöfun gagnvart útlendingi eða nánustu aðstandendum hans. Sérstaklega skal taka tillit til þess ef um barn eða nánasta aðstandanda barns er að ræða og skal það sem barni er fyrir bestu haft að leiðarljósi við ákvörðun. Við mat á því hvort brottvísun feli í sér ósanngjarna ráðstöfun gagnvart kæranda verður að hafa ákvæði 71. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands, sbr. nr. 33/1944 og 8. gr. mannréttindasáttmála Evrópu um friðhelgi einkalífs og fjölskyldu til hliðsjónar. Þegar útlendingur á hagsmuna að gæta í skilningi 8. gr. sáttmálans verður ákvörðun um brottvísun að vera í samræmi við það sem lög mæla fyrir um og nauðsyn ber til í lýðræðislegu þjóðfélagi, sbr. 2. mgr. 8. gr. sáttmálans.

Samkvæmt 1. mgr. 101. gr. laganna felst í endanlegri ákvörðun um brottvísun skylda útlendings til þess að yfirgefa Schengen-svæðið nema viðkomandi hafi heimild til dvalar í öðru ríki sem er þátttakandi í Schengen-samstarfinu. Með lögum um landamæri nr. 136/2022 voru gerðar breytingar á 98. gr. laga um útlendinga sem leiða til þess að brottvísun og endurkomubann er nú beitt þar sem áður var beitt frávísun en veita skal frest til sjálfviljugrar heimfarar, sbr. 104. gr. laga um útlendinga. Sá sem sætir slíkri ákvörðun getur komist hjá endurkomubanni með því að yfirgefa landið sjálfviljugur innan frestsins sbr. 3. mgr. 101. gr. laga um útlendinga.

Niðurstaða um brottvísun og endurkomubann

Eins og að framan greinir hefur umsóknum kærenda og barna þeirra um alþjóðlega vernd og dvalarleyfi á grundvelli 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga verið synjað. Hafa þau því ekki frekari heimild til dvalar hér á landi. Af framangreindu leiðir að með hinni kærðu ákvörðun var réttilega bundinn endir á heimild kærenda og barna þeirra til dvalar hér á landi og ber því samkvæmt 2. mgr. 98. gr. laga um útlendinga að vísa þeim úr landi nema 102. gr. laganna standi því í vegi. Það athugast að kæra til kærunefndar útlendingamála frestaði réttaráhrifum hinna kærðu ákvarðana.

Kærendum var í viðtali hjá Útlendingastofnun leiðbeint um að til skoðunar væri að brottvísa þeim og börnum þeirra frá Íslandi og ákvarða kærendum endurkomubann hingað til lands. Var kærendum gefið færi á að koma að andmælum hvað það varðar. M kvaðst eiga frænku og frænda í Belgíu og K kvaðst eiga systur á Íslandi og vini í Evrópu. Kærendur töldu einnig að brottvísun og endurkomubann væru ósanngjarnar ráðstafanir gagnvart sér og börnum sínum.

Með vísan til framangreindrar umfjöllunar og af þeim svörum sem kærendur gáfu um tengsl sín við Ísland og önnur Schengen-ríki verður ekki séð að brottvísun kærenda og barna þeirra og endurkomubann kærenda verði talin ósanngjörn ráðstöfun í garð þeirra eða nánustu aðstandenda þeirra, sbr. 3. mgr. 102. gr. laga um útlendinga. Þá horfir kærunefnd jafnframt til þess að kærendur geta komist hjá endurkomubanni og afleiðingum þess yfirgefi þau Ísland innan þess frest sem þeim er gefinn.

Með ákvörðunum Útlendingastofnunar var kærendum veittur 15 daga frestur til að yfirgefa landið með sjálfviljugri heimför og þannig fá endurkomubannið fellt niður.

Með vísan til 2. mgr. 104. gr. laga um útlendinga teljast 15 dagar hæfilegur frestur í tilviki kærenda og barna þeirra til að yfirgefa landið. Endurkomubann kærenda fellur niður yfirgefi þau landið innan framangreinds frests.

Athugasemdir, samantekt og leiðbeiningar

Með vísan til alls þess sem að framan er rakið og forsendna hinna kærðu ákvarðana eru þær staðfestar.

Athygli kærenda er vakin á því að samkvæmt 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga frestar málshöfðun fyrir dómstólum til ógildingar á endanlegri ákvörðun um að útlendingur skuli yfirgefa landið ekki framkvæmd hennar. Að kröfu útlendings getur kærunefnd útlendingamála þó ákveðið að fresta réttaráhrifum endanlegrar ákvörðunar sé talin ástæða til þess. Krafa þess efnis skal gerð ekki síðar en sjö dögum eftir birtingu endanlegrar ákvörðunar. Skal frestun bundin því skilyrði að útlendingur beri málið undir dómstóla innan fimm daga frá birtingu ákvörðunar um frestun réttaráhrifa úrskurðar og óski eftir því að það hljóti flýtimeðferð. Nú er beiðni um flýtimeðferð synjað og skal þá mál höfðað innan sjö daga frá þeirri synjun. Þó getur kærunefnd útlendingamála tekið ákvörðun um að fresta framkvæmd ákvörðunarinnar ef sýnt er fram á að verulega breyttar aðstæður hafi skapast frá því að endanleg ákvörðun var tekin.


 

Úrskurðarorð:

Ákvarðanir Útlendingastofnunar er staðfestar. Endurkomubann kærenda verður fellt úr gildi fari þau frá Íslandi innan 15 daga.

The decisions of the Directorate of Immigration are affirmed. If the appellants leave Iceland voluntarily within 15 days, their re-entry ban will be revoked.

 

 

Valgerður María Sigurðardóttir

 

 

Bjarnveig Eiríksdóttir                                                                  Gunnar Páll Baldvinsson


 


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum