Hoppa yfir valmynd
Úrskurðir landskjörstjórnar

Úrskurður 25/2024 Framboð til Alþingis

Tilvísun lks2024110002

 

Árið 2024, 3. nóvember kl. 15:00 kom landskjörstjórn saman til fundar í Þjóðminjasafni Íslands við Suðurgötu í Reykjavík til að úrskurða um gildi framboða við kosningar til Alþingis þann 30. nóvember 2024.

 

Fyrir er tekið framboð J-lista Sósíalistaflokks Íslands í Norðvesturkjördæmi og kveðinn upp svofelldur

 

úrskurður nr. 25/2024:

 

Hinn 31. október 2024 klukkan 11:40 var framboðslista með 14 nöfnum frambjóðenda skilað rafrænt til landskjörstjórnar, f.h. Sósíalistaflokks Íslands í Norðvesturkjördæmi við alþingiskosningar 30. nóvember 2024, ásamt 11 fullgildum rafrænum undirskriftum frambjóðenda þar sem þeir samþykkja að nöfn þeirra séu sett á framboðslistann. Auk þess fylgdu upplýsingar um heiti stjórnmálasamtakanna sem bjóða listann fram og listabókstaf þeirra, tilkynning um umboðsmenn listans sem taki við athugasemdum um galla sem kunna að vera á framboðslistanum og munu gæta réttar listans við undirbúning og framkvæmd kosninga ásamt samþykki þeirra, auk rafrænna meðmæla til stuðnings framboðslistanum og fyrir hvaða stjórnmálasamtök hann er boðinn fram. 

 

Hinn 31. október 2024 klukkan 11:44 mætti fulltrúi J-lista Sósíalistaflokks Íslands í Hörpu  og afhenti landskjörstjórn 9 blaðsíður af meðmælum til stuðnings framboðslistanum og fyrir hvaða stjórnmálasamtök hann er boðinn fram. Einnig var skilað inn umboði eins frambjóðanda, ritað eigin hendi, um að hann veitti umboðsmanni sínum heimild til að undirrita fyrir sína hönd samþykki fyrir að taka sæti á framboðslistanum. Hlutaðeigandi umboðshafi undirritaði framboðslistann með fullgildri rafrænni undirskrift.

 

Sama dag kannaði landskjörstjórn tilkynningu um framboð og framboðslista J-lista Sósíalistaflokks Íslands í Norðvesturkjördæmi til kosninga til Alþingis, þau meðmæli sem framboðslistanum fylgdu og önnur fylgigögn. Könnunin leiddi í ljós að yfirlýsingar tveggja frambjóðenda um að þeir hafi leyft að setja nöfn sín á framboðslistann, undirrituð eigin hendi eða með fullgildri rafrænni undirskrift í samræmi við a. lið 1. mgr. 39. gr. kosningalaga nr. 112/2021, skorti.

 

Á grundvelli 1. mgr. 44. gr. kosningalaga nr. 112/2021 hélt landskjörstjórn fund klukkan 21:00 þann 31. október 2024 þar sem umboðsmönnum allra þeirra framboða sem skilað höfðu framboðslistum var veittur kostur á að vera viðstaddir. Á þeim fundi var m.a. tilkynnt að komið hefðu fram gallar á  framboði J-lista Sósíalistaflokks Íslands í Norðvesturkjördæmi og að umboðsmönnum listans væri gefinn kostur á að bæta úr þeim göllum, þ.e. að yfirlýsingar tveggja frambjóðenda skorti.

 

Síðar sama kvöld, klukkan 22:54, sendi landskjörstjórn umboðsmönnum J-lista Sósíalistaflokks Íslands í Norðvesturkjördæmi tölvupóst með nánari upplýsingum um gallana og veitti þeim frest til klukkan 21:00 þann 1. nóvember 2024, í því skyni að bæta úr þeim, í samræmi við heimild 1. mgr. 44. gr. kosningalaga nr. 112/2021.

 

Klukkan 15:22 þann 1. nóvember 2024 barst landskjörstjórn, í tölvupósti, samþykki þeirra tveggja frambjóðenda sem skorti, um að þeir hafi leyft að setja nöfn sín á framboðslistann, undirrituð með fullgildri rafrænni undirskrift.

 

Landskjörstjórn hefur á ný farið yfir öll gögn sem lögð hafa verið fram af J-lista Sósíalistaflokks Íslands í Norðvesturkjördæmi og leiddi könnunin í ljós að framboðið uppfyllir skilyrði kosningalaga nr. 112/2021.

 

Á grundvelli framangreinds er það niðurstaða landskjörstjórnar að framboð J-lista Sósíalistaflokks Íslands í Norðvesturkjördæmi við kosningar til Alþingis þann 30. nóvember 2024 sé gilt. 

 

ÚRSKURÐARORÐ

Framboðslisti J-lista Sósíalistaflokks Íslands í Norðvesturkjördæmi við kosningar til Alþingis

þann 30. nóvember 2024 er gildur.

 

Landskjörstjórn 

 

Kristín Edwald formaður

Arnar Kristinsson

Elín Ósk Helgadóttir

Hulda Katrín Stefánsdóttir

Magnús Karel Hannesson


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta