Hoppa yfir valmynd
Úrskurðir landskjörstjórnar

Úrskurður 45/2024 Framboð til Alþingis

Tilvísun lks2024110004

 

Árið 2024, 3. nóvember kl. 15:00 kom landskjörstjórn saman til fundar í Þjóðminjasafni Íslands við Suðurgötu í Reykjavík til að úrskurða um gildi framboða við kosningar til Alþingis þann 30. nóvember 2024.

Fyrir er tekið framboð J-lista Sósíalistaflokks Íslands í Suðurkjördæmi og kveðinn upp svofelldur

úrskurður nr. 45/2024:

I.

Hinn 31. október 2024 klukkan 11:40 mætti fulltrúi Sósíalistaflokks Íslands í Hörpu og afhenti landskjörstjórn meðmæli til stuðnings framboðslistans og fyrir hvaða stjórnmálasamtök hann er boðinn fram öll rituð með eigin hendi á pappír, samtals 20 blaðsíður.  

Hinn 31. október 2024 kl. 11:49 var framboðslista með 20 nöfnum frambjóðenda skilað rafrænt til landskjörstjórnar f.h. J-lista Sósíalistaflokks Íslands í Suðurkjördæmi við alþingiskosningar 30. nóvember 2024 ásamt 16 fullgildum rafrænum undirskriftum frambjóðenda þar sem þeir samþykkja að nöfn þeirra séu sett á framboðslistann. Auk þess fylgdu upplýsingar um heiti stjórnmálasamtakanna sem bjóða listann fram og listabókstaf þeirra, tilkynning um umboðsmenn listans sem taki við athugasemdum um galla sem kunna að vera á framboðslistanum og munu gæta réttar listans við undirbúning og framkvæmd kosninga ásamt samþykki þeirra, auk rafrænna meðmæla til stuðnings framboðslistanum og fyrir hvaða stjórnmálasamtök hann er boðinn fram. 

 

Síðar sama dag kannaði landskjörstjórn tilkynningu um framboð og framboðslista J-lista Sósíalistaflokks Íslands í Suðurkjördæmi til kosninga til Alþingis, þær stuðningsyfirlýsingar sem framboðinu fylgdu og önnur fylgigögn. Könnunin leiddi í ljós að yfirlýsingar fjögurra frambjóðenda um að þeir hafi leyft að setja nöfn sín á framboðslistann, undirrituð eigin hendi eða með fullgildri rafrænni undirskrift í samræmi við a. lið 1. mgr. 39. gr. kosningalaga nr. 112/2021, skorti.

 

Á grundvelli 1. mgr. 44. gr. kosningalaga nr. 112/2021 hélt landskjörstjórn fund klukkan 21:00 þann 31. október 2024 þar sem umboðsmönnum allra þeirra framboða sem skilað höfðu framboðslistum var veittur kostur á að vera viðstaddir. Á þeim fundi var m.a. tilkynnt að komið hefðu fram gallar á framboði J-lista Sósíalistaflokks Íslands í Suðurkjördæmi og að umboðsmönnum listans væri gefinn kostur á að bæta úr þeim göllum, þ.e. að yfirlýsingar fjögurra frambjóðenda skorti.

 

Síðar sama kvöld, klukkan 22:55, sendi landskjörstjórn öllum umboðsmönnum J-lista Sósíalistaflokks Íslands tölvupóst með nánari upplýsingum um gallana og veitti þeim frest til klukkan 21:00 þann 1. nóvember 2024 í því skyni að bæta úr þeim í samræmi við heimild 1. mgr. 44. gr. kosningalaga nr. 112/2021. 

Þann 1. nóvember 2024 klukkan 15:22 barst landskjörstjórn, í tölvupósti, samþykki tveggja frambjóðenda af þeim fjórum sem skorti um að þeir hafi samþykkt að setja nöfn sín á framboðslistann, undirrituð með fullgildri rafrænni undirskrift. 

Klukkan 15:40 sama dag barst landskjörstjórn, í tölvupósti yfirlýsing frambjóðanda um samþykki við því að vera í 17. sæti á framboðslista Sósíalistaflokks Íslands í Suðurkjördæmi. Stuttu síðar, klukkan 15:43, barst landskjörstjórn í tölvupósti skannað viðhengi með yfirlýsingu frambjóðanda um samþykki við að vera í 15. sæti á lista Sósíalistaflokks Íslands í Suðurkjördæmi.

 

II.

Landskjörstjórn hefur á ný farið yfir öll gögn sem lögð hafa verið fram af J-lista Sósíalistaflokks Íslands í Suðurkjördæmi og leiddi könnunin í ljós að framboðslistinn uppfyllir skilyrði kosningalaga nr. 112/2021, að því undanskildu að samþykki þeirra tveggja frambjóðenda sem sendu samþykki sín í tölvupósti uppfylla ekki skilyrði a. liðar 1. mgr. 39. gr. kosningalaga nr. 112/2021 um að vera undirrituð eigin hendi eða með fullgildri rafrænni undirskrift. Þar sem lögmælt samþykki umræddra frambjóðenda eru ekki fyrir hendi, heldur annars vegar einungis tölvupóstur og hins vegar afrit yfirlýsingar sent með tölvupósti, lítur landskjörstjórn svo á að frambjóðendurnir tveir hafi ekki samþykkt að taka sæti á framboðslista J-lista Sósíalistaflokks Íslands í Suðurkjördæmi með þeim hætti sem ákvæði a. liðar 1. mgr. 39. gr. kosningalaga nr. 112/2021 kveður á um.

 

Í 40. gr. kosningalaga nr. 112/2021 segir frambjóðandi geti afturkallað samþykki sitt til framboðs á framboðslista stjórnmálasamtaka fram til þess að frestur til að skila framboðum rennur út, þ.e. klukkan 12:00 fimmtudaginn 31. október 2024 sl. Er því ekki fært að fjarlægja frambjóðanda af framboðslista og tilnefna nýjan í hans stað þegar frambjóðandi hefur sannarlega gefið samþykki sitt innan framboðsfrests. Hér er aftur á móti um að ræða þá stöðu að á  framboðslista J-lista Sósíalistaflokks Íslands í Suðurkjördæmi vantar tvo frambjóðendur. Með vísan til 40. gr. kosningalaga nr. 112/2021 verður að telja ljóst að eftir framangreint tímamark, þ.e. þegar framboðsfrestur er útrunninn, verður nýjum frambjóðendum ekki bætt við framboðslista hvort sem um er að ræða þá stöðu að frambjóðandi vilji afturkalla samþykki sitt til framboðs á framboðslista stjórnmálasamtaka eða lögskylt samþykki um að taka sæti liggur ekki fyrir.

 

Samkvæmt 42. gr. kosningalaga nr. 112/2021 um könnun á framboðslistum rannsakar landskjörstjórn framlögð gögn og gengur úr skugga um að uppfyllt séu skilyrði framboðs sbr. 37. gr. og 39. gr. laganna. Í 2. mgr. 42. gr. kosningalaga nr. 112/2021 segir að nema skuli burt af framboðslista öftustu nöfn sem eru fram yfir tilskilda tölu en ekki er fjallað um það tilvik er samþykki frambjóðanda liggur ekki fyrir. Í athugasemdum við 2. mgr. 42. gr. frumvarps til kosningalaga segir að hún sé samhljóða 1. og 2. mgr. 34. gr. laga um kosningar til Alþingis nr. 24/2000 og 2. málsl. 1. mgr. 26. og 1. mgr. 27. gr. laga um kosningar til sveitarstjórna nr. 5/1998 sem frumvarpinu var ætla að fella úr gildi. Í 2. mgr. 34. gr. laga nr. 24/2000 um kosningar til Alþingis segir að berist yfirkjörstjórn listi er nafn manns stendur á án þess að leyfi hans fylgi, eða maður hefur leyft nafn sitt á fleiri listum en einum, skuli yfirkjörstjórn nema það nafn burt af listanum eða listunum. Samsvarandi ákvæði var að finna í 27. gr. laga um kosningar til sveitarstjórna nr. 5/1998. Við slík tilvik má ætla að sá sem á eftir kæmi á framboðslista hefði verið færður upp um sæti. Leiða má að því líkur að láðst hafi að færa ákvæði 2. mgr. 34. gr. eldri laga um kosningar til Alþingis í 2. mgr. 42. gr. núgildandi kosningalaga líkt og fram kemur í greinargerð frumvarpsins.

 

Í 43. gr. kosningalaga nr. 112/2021 er fjallað um andlát frambjóðanda áður en kosning fer fram en eftir að framboðsfrestur er liðinn, og skal þá landskjörstjórn við alþingiskosningar, færa þá frambjóðendur sem koma á eftir hinum látna á listanum upp um sæti. Sambærilegt ákvæði um tilfærslu upp á við er að finna í 3. mgr. 65. gr. laga um þingsköp Alþingis nr. 55/1991. Í ákvæðinu segir m.a. að varamenn þingmanna taka þingsæti eftir reglum skv. 111. og 112. gr. kosningalaga nr. 112/2021 þegar þingmenn þess lista sem þeir eru kosnir af falla frá og án tillits til þess hver þingmaður listans það er. Falli varamaður frá tekur sá varamannssæti sem næstur er í röðinni á lista.

 

Að mati landskjörstjórnar kemur til álita í því tilviki sem hér um ræðir að beita lögjöfnun frá framangreindum ákvæðum kosningalaga nr. 112/2021. Ekki er að finna almenna lagaheimild í íslenskum lögum fyrir beitingu lögjöfnunar en hún er viðurkennd og telst stjórnskipunarleg dómvenja, sem ekki verður breytt með almennum lögum. Þá telur landskjörstjórn rétt við þessar aðstæður að líta til meðalhófsreglu 12. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 sem vísar til þess að stjórnvöld gæti hófs í meðferð valds síns. Þannig ber að taka tillit til hagsmuna og réttinda þeirra sem athafnir stjórnvaldsins beinist að. Í því sambandi horfir landskjörstjórn til þeirra mikilvægu stjórnskipunarbundnu réttinda sem felast í því að geta boðið fram til Alþingis.

 

Af því sem að framan greinir liggur fyrir að samþykki tveggja frambjóðenda um að taka sæti á framboðslista J-lista Sósíalistaflokks Íslands í Suðurkjördæmi skortir og felur það í sér að gallar eru á framboðslistanum sem ekki hafa verið bættir þrátt fyrir að frestur til þess hafi verið veittur.

 

Ákvörðun um að ógilda framboðslista í heild sinni þegar framboðslistinn uppfyllir að öðru leyti lagaskilyrði er að mati landskjörstjórnar ekki í samræmi við sjónarmið um meðalhóf og þau grundvallar stjórnskipunarbundnu réttindi sem hér um ræðir. Þá ber að líta til þess að framboðslistinn uppfyllir skilyrði kosningalaga um fjölda frambjóðenda í Suðurkjördæmi þar sem eru 10 þingsæti en samkvæmt 1. mgr. 37. gr. kosningalaga nr. 112/2021 skulu a.m.k. vera á framboðslista jafnmörg nöfn frambjóðenda og kjósa á í hvert skipti, en aldrei fleiri en tvöföld sú tala.

 

Telur landskjörstjórn því rétt að fella frambjóðendur í 15. og 17. sæti á framboðslista J-lista Sósíalistaflokks Íslands í Suðurkjördæmi af framboðslistanum enda skortir samþykki þeirra um að taka sæti á listanum. Þar sem ekki er heimilt að bæta nýjum frambjóðendum á framboðslista munu þeir frambjóðendur sem næstir koma á listanum færast upp um sæti í stað þeirra sem falla brott. Á framboðslista J-lista Sósíalistaflokks Íslands voru 20 nöfn frambjóðenda við móttöku hans 31. október sl. Með því að fella tvo frambjóðendur af framboðslistanum yrði hann skipaður 18 frambjóðendum sem myndi uppfylla skilyrði 1. mgr. 37. gr. kosningalaga nr. 112/2021 um fjölda frambjóðenda á lista. Enn fremur telur landskjörstjórn rétt við þessar aðstæður að horfa til athugasemdanna við 2. mgr. 42. gr. núgildandi kosningalaga sem raktar eru að framan.

 

Á grundvelli framangreinds er það niðurstaða landskjörstjórnar að framboð J-lista Sósíalistaflokks Íslands í Suðurkjördæmi við kosningar til Alþingis þann 30. nóvember 2024 sé gilt að teknu tilliti til þeirra breytinga á framboðslistanum sem að framan greinir.

 

ÚRSKURÐARORÐ

 

Framboðslisti J-lista Sósíalistaflokks Íslands í Suðurkjördæmi við kosningar til Alþingis

þann 30. nóvember 2024 er gildur með þeim frávikum sem að framan greinir.

 

Landskjörstjórn 

 

Kristín Edwald formaður

Arnar Kristinsson

Elín Ósk Helgadóttir

Hulda Katrín Stefánsdóttir

Magnús Karel Hannesson


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta