Hoppa yfir valmynd
Úrskurðir landskjörstjórnar

Úrskurður 2/2024 Framboð til forseta Íslands

Tilvísun lks2024040007

 

 

Ár 2024, 29. apríl kl. 11:00 kom landskjörstjórn saman á fundi í Þjóðminjasafni Íslands til að úrskurða um gildi framkominna framboða til kjörs forseta Íslands 1. júní 2024.  

Fyrir er tekið framboð Ásdísar Ránar Gunnarsdóttir til kjörs forseta Íslands og kveðinn um það svofelldur

ú r s k u r ð u r  nr. 2/2024:

Hinn 26. apríl 2024 kl. 10:10 kom Ásdís Rán Gunnarsdóttir á fund landskjörstjórnar og skilaði tilkynningu um framboð til kjörs forseta Íslands. Tilkynningin var undirrituð af Ásdísi Rán og henni fylgdi undirskriftalisti meðmælenda til stuðnings framboðinu, samtals 6 blaðsíður. Á tilkynningarblaðinu kom fram að meðmælum væri einnig safnað rafrænt. 

Landskjörstjórn hefur kannað framboðstilkynningu Ásdísar Ránar Gunnarsdóttur til kjörs forseta Íslands og þau meðmæli sem framboðinu fylgja. Könnunin leiddi í ljós að framboðið uppfyllir bæði skilyrði stjórnarskrár lýðveldisins Íslands nr. 33/1944 og kosningalaga nr. 112/2021.

Á grundvelli framangreinds er það niðurstaða landskjörstjórnar að framboð Ásdísar Ránar Gunnarsdóttur til kjörs forseta Íslands sé gilt. 

 

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Framboð Ásdísar Ránar Gunnarsdóttur til forsetakjörs 1. júní 2024 er gilt.

 

Landskjörstjórn 

 

Kristín Edwald, formaður

Arnar Kristinsson
Ebba Schram
Hulda Katrín Stefánsdóttir
Magnús Karel Hannesson (sign)

 


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta