Hoppa yfir valmynd
Úrskurðir landskjörstjórnar

Úrskurður 68/2024 Framboð til Alþingis

Tilvísun lks2024110006

 

Árið 2024, 3. nóvember kl. 15:00 kom landskjörstjórn saman til fundar í Þjóðminjasafni Íslands við Suðurgötu í Reykjavík til að úrskurða um gildi framboða við kosningar til Alþingis þann 30. nóvember 2024.

 

Fyrir er tekið framboð Y-lista Ábyrgrar framtíðar í Reykjavíkurkjördæmi norður og kveðinn upp svofelldur

úrskurður nr. 68/2024:

 

Hinn 31. október 2024 var tilkynningu skilað til landskjörstjórnar um framboð Y-lista Ábyrgrar framtíðar í Reykjavíkurkjördæmi norður við alþingiskosningar 30. nóvember 2024.

 

Framboðið skilaði jafnframt inn framboðslista ásamt fylgigögnum, það er yfirlýsingum þeirra sem á listanum eru um að þeir hafi leyft að setja nöfn sín á framboðslistann, upplýsingum um heiti stjórnmálasamtakanna sem bjóða listann fram og listabókstaf þeirra, tilkynningu um umboðsmenn listans sem taki við athugasemdum um ágalla sem kunna að vera á framboðinu og munu gæta réttar listans við undirbúning og framkvæmd kosninga ásamt samþykki þeirra auk meðmæla til stuðnings framboðinu og fyrir hvaða stjórnmálasamtök hann er boðinn fram. 

 

Sama dag kannaði landskjörstjórn tilkynningu um framboð og framboðslista Y-lista Ábyrgrar framtíðar í Reykjavíkurkjördæmi norður til kosninga til Alþingis, þau meðmæli sem framboðinu fylgdu og önnur fylgigögn. Könnunin leiddi í ljós að yfirlýsingu tveggja frambjóðenda um að þeir hafi leyft að setja nöfn sín á framboðslistann, undirrituð eigin hendi eða með fullgildri rafrænni undirskrift í samræmi við a. lið 1. mgr. 39. gr. kosningalaga nr. 112/2021, skorti. Könnunin leiddi jafnframt í ljós að meðmæli til stuðnings framboðslistanum og fyrir hvaða stjórnmálasamtök hann er boðinn fram uppfylltu ekki skilyrði d. liðar 1. mgr. 39. gr. kosningalaga nr. 112/2021 um fjölda meðmælenda. Meðmælin sem gefin voru rafrænt voru 64 talsins og fjöldi undirskrifta með eiginhandarundirritun á blaði voru 227, samtals voru meðmælin því 291. Samkvæmt d. lið 1. mgr. 39. gr. kosningalaga nr. 112/2021 skal fjöldi meðmæla vera margfeldi af þingsætatölu kjördæmisins og talnanna 30 að lágmarki og 40 að hámarki. Í Reykjavíkurkjördæmi norður eru þingsæti kjördæmisins 11 og skal því fjöldi meðmælanda framboðslistans vera á bilinu 330 - 440 talsins. Könnunin leiddi því í að ljós að Y-lista Ábyrgrar framtíðar skorti 39 meðmæli svo lágmarksfjölda væri náð. 

 

Á grundvelli 1. mgr. 44. gr. kosningalaga nr. 112/2021 hélt landskjörstjórn fund klukkan 21:00 þann 31. október 2024 þar sem umboðsmönnum allra þeirra framboða sem skilað höfðu framboðslistum var veittur kostur á að vera viðstaddir. Á þeim fundi var m.a. tilkynnt að komið hefðu fram gallar á  framboði Y-lista Ábyrgrar framtíðar í Reykjavíkurkjördæmi norður og að umboðsmönnum listans væri gefinn kostur á að bæta úr þeim göllum, þ.e. annars vegar á því að yfirlýsingu tveggja frambjóðenda skorti og hins vegar að fjöldi meðmælenda með framboðinu væri ónógur.

 

Síðar sama kvöld, klukkan 22:46, sendi landskjörstjórn umboðsmönnum Y-lista Ábyrgrar framtíðar í Reykjavíkurkjördæmi norður tölvupóst með nánari upplýsingum um gallana og veitti þeim frest til klukkan 21:00 þann 1. nóvember 2024, í því skyni að bæta úr þeim, í samræmi við heimild 1. mgr. 44. gr. kosningalaga nr. 112/2021. Í tölvupóstinum var jafnframt tilkynnt að opnað hefði verið að nýju fyrir rafræna meðmælendasöfnun framboðsins á Ísland.is.

 

Klukkan 19:09 þann 1. nóvember 2024 barst landskjörstjórn, í tölvupósti, samþykki þeirra tveggja frambjóðenda sem skorti, um að þeir hafi leyft að setja nöfn sín á framboðslistann, undirrituð með fullgildri rafrænni undirskrift.

 

Síðar sama dag, klukkan 20:44 mætti annar umboðsmanna Y-lista Ábyrgrar framtíðar í Reykjavíkurkjördæmi norður á skrifstofu landskjörstjórnar að Tjarnargötu 4 í Reykjavík og skilaði inn átta blaðsíðum af meðmælum til stuðnings framboðinu og fyrir hvaða stjórnmálasamtök listinn væri boðinn fram. Jafnframt hafði meðmælum verið safnað rafrænt. 

 

Landskjörstjórn hefur á ný farið yfir öll gögn sem lögð hafa verið fram af Y-lista Ábyrgrar framtíðar í Reykjavíkurkjördæmi norður og leiddi könnunin í ljós að framboðið uppfyllir skilyrði kosningalaga nr. 112/2021.

 

Á grundvelli framangreinds er það niðurstaða landskjörstjórnar að framboð Y-lista Ábyrgrar framtíðar í Reykjavíkurkjördæmi norður við kosningar til Alþingis þann 30. nóvember 2024 sé gilt. 

 

ÚRSKURÐARORÐ

Framboðslisti Y-lista Ábyrgrar framtíðar í Reykjavíkurkjördæmi norður við kosningar til Alþingis þann 30. nóvember 2024 er gildur.

 

Landskjörstjórn 

Kristín Edwald, formaður

Arnar Kristinsson

Elín Ósk Helgadóttir

Hulda Katrín Stefánsdóttir

Magnús Karel Hannesson


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta