Hoppa yfir valmynd
Úrskurðir landskjörstjórnar

Úrskurður 27/2024 Framboð til Alþingis

Tilvísun lks2024110002

 

Árið 2024, 3. nóvember kl. 15:00 kom landskjörstjórn saman til fundar í Þjóðminjasafni Íslands við Suðurgötu í Reykjavík til að úrskurða um gildi framboða við kosningar til Alþingis þann 30. nóvember 2024.

Fyrir er tekið framboð V-listi Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs í Norðvesturkjördæmi og kveðinn upp svofelldur

úrskurður nr. 27/2024:

Hinn 29. október 2024 var tilkynningu skilað til landskjörstjórnar um framboð V-listi Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs í Norðvesturkjördæmi við alþingiskosningar 30. nóvember 2024.

Framboðið hefur jafnframt skilað inn framboðslista  ásamt fylgigögnum, það er yfirlýsingum þeirra sem á listanum eru um að þeir hafi leyft að setja nöfn sín á framboðslistann, upplýsingum um heiti stjórnmálasamtakanna sem bjóða listann fram og listabókstaf þeirra, tilkynningu um umboðsmenn listans sem taki við athugasemdum um ágalla sem kunna að vera á framboðinu og munu gæta réttar listans við undirbúning og framkvæmd kosninga ásamt samþykki þeirra auk meðmæla til stuðnings framboðinu og fyrir hvaða stjórnmálasamtök hann er boðinn fram.

Landskjörstjórn hefur kannað tilkynningu um framboð og framboðslista V-listi Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs í Norðvesturkjördæmi til kosninga til Alþingis, þau meðmæli sem framboðinu fylgja og önnur fylgigögn. Könnunin leiddi í ljós að framboðið uppfyllir skilyrði kosningalaga nr. 112/2021.

Á grundvelli framangreinds er það niðurstaða landskjörstjórnar að framboð V-listi Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs í Norðvesturkjördæmi við kosningar til Alþingis þann 30. nóvember 2024 sé gilt. 

ÚRSKURÐARORÐ

Framboðslisti V-listi Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs í Norðvesturkjördæmi við kosningar til Alþingis þann 30. nóvember 2024 er gildur.

Landskjörstjórn 

 

Kristín Edwald formaður

Arnar Kristinsson

Elín Ósk Helgadóttir

Hulda Katrín Stefánsdóttir

Magnús Karel Hannesson 

 


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta