Úrskurður 11/2024 Framboð til forseta Íslands
Tilvísun lks2024040007
Ár 2024, 29. apríl kl. 11:00 kom landskjörstjórn saman á fundi í Þjóðminjasafni Íslands til þess að úrskurða um gildi fram kominna framboða til kjörs forseta Íslands 1. júní 2024.
Fyrir er tekið framboð Kára Vilmundarsonar Hansen til kjörs forseta Íslands og kveðinn um það svofelldur
ú r s k u r ð u r nr. 11/2024:
Frestur til að skila framboðum til forsetakjörs hinn 1. júní 2024, rann út kl. 12:00 hinn 26. apríl 2024. Klukkan 10:43 barst landskjörstjórn tölvupóstur frá Kára Vilmundarsyni Hansen. Tölvupóstinum fylgdi viðhengi sem innihélt ljósmynd af tilkynningu um framboð til forseta Íslands. Tilkynningin var undirrituð og í henni sagði: ,,Undirskriftalistinn er rafrænn.“
Þegar framboðsfrestur var liðinn, kl. 12:00 föstudaginn 26. apríl, lá fyrir að níu einstaklingar höfðu mælt með framboði Kára Vilmundarsonar Hansen rafrænt inn á island.is
Í 2. mgr. 5. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands nr. 33/1944 segir að forsetaefni skuli hafa meðmæli minnst 1500 kosningarbærra manna og mest 3000. Í 3. mgr. sama ákvæðis segir síðan að í lögum um framboð og kjör forseta megi ákveða að tiltekin tala meðmælenda skuli vera úr landsfjórðungi hverjum í hlutfalli við kjósendatölu þar.
Í kosningalögum nr. 112/2021 er fjallað um framboð og kjör forseta Íslands. Í 1. mgr. 25. gr. þeirra laga segir að landskjörstjórn skuli auglýsa forsetakjör eigi síðar en þremur mánuðum fyrir kjördag og tiltaka hámarks- og lágmarkstölu meðmælenda forsetaefnis úr hverjum landsfjórðungi í réttu hlutfalli við kjósendatölu þar. Auglýsing um framboð og kjör forseta Íslands var birt í Stjórnartíðindum hinn 23. febrúar 2024 og þar var tiltekin hámarks- og lágmarkstala meðmælenda úr hverjum landsfjórðungi.
Í 1. mgr. 50. gr. kosningalaga segir að framboðum til forsetakjörs skuli skila í hendur landskjörstjórnar ásamt samþykki forsetaefnis og nægilegri tölu kosningarbærra meðmælenda, sbr. 5. gr. stjórnarskrárinnar, eigi síðar en kl. 12 á hádegi 36 dögum fyrir kjördag.
Landskjörstjórn hefur farið yfir þau meðmæli sem fylgja framboðstilkynningu Kára Vilmundarsonar Hansen.
Liggur fyrir að þau meðmæli sem gefin voru rafrænt eru gild og skiptast þau þannig að átta voru gefin í Sunnlendingafjórðungi og eitt í Norðlendingafjórðungi eða samtals níu talsins. Hvorki var um að ræða rafræn meðmæli í Vestfirðingafjórðungi né Austfirðingafjórðungi. Því er ljóst að framboðið hefur ekki náð þeim fjölda meðmæla sem áskilið er bæði í stjórnarskrá lýðveldisins Íslands og í kosningalögum.
Á grundvelli framangreinds er það niðurstaða landskjörstjórnar að framboð Kára Vilmundarsonar Hansen til kjörs forseta Íslands sé ekki gilt.
Ú R S K U R Ð A R O R Ð
Framboð Kára Vilmundarsonar Hansen til forsetakjörs hinn 1. júní 2024 er ekki gilt.
Landskjörstjórn
Kristín Edwald, formaður
Arnar Kristinsson
Ebba Schram
Hulda Katrín Stefánsdóttir
Magnús Karel Hannesson