Hoppa yfir valmynd
Úrskurðir landskjörstjórnar

Úrskurður 76/2024 Framboð til Alþingis

Tilvísun lks2024110007

 

Árið 2024, 3. nóvember kl. 15:00 kom landskjörstjórn saman til fundar í Þjóðminjasafni Íslands við Suðurgötu í Reykjavík til að úrskurða um gildi framboða við kosningar til Alþingis þann 30. nóvember 2024.

Fyrir er tekið framboð J-lista Sósíalistaflokks Íslands í Reykjavíkurkjördæmi suður og kveðinn upp svofelldur

ú r s k u r ð u r  nr. 76/2024:

I.

Hinn 31. október 2024 klukkan 11:44 mætti fulltrúi J-lista Sósíalistaflokks Íslands í Hörpu og afhenti landskjörstjórn meðmæli til stuðnings framboðslistanum og fyrir hvaða stjórnmálasamtök hann er boðinn fram, öll rituð með eigin hendi á pappír, samtals 19 blaðsíður. 

Sama dag klukkan 12:02 var tilkynningu skilað til landskjörstjórnar um framboð J-lista Sósíalistaflokks Íslands í Reykjavíkurkjördæmi suður við alþingiskosningar 30. nóvember 2024. Var tilkynningunni skilað rafrænt á Ísland.is. Tilkynningunni fylgdi framboðslisti með nöfnum 22 frambjóðenda ásamt fullgildum rafrænum undirskriftum frambjóðenda þar sem þeir samþykkja að nöfn þeirra séu sett á framboðslistann. Framboðið skilaði jafnframt inn tilkynningu um tvo umboðsmenn listans sem taki við athugasemdum um galla sem kunna að vera á framboðinu og muni gæta réttar listans við undirbúning og framkvæmd kosninga ásamt samþykki þeirra auk meðmæla til stuðnings við framboðslistann og fyrir hvaða stjórnmálasamtök hann er boðinn fram. 

Síðar sama dag kannaði landskjörstjórn tilkynningu um framboð og framboðslista J-lista Sósíalistaflokks Íslands í Reykjavíkurkjördæmi suður til kosninga til Alþingis, þau meðmæli sem framboðinu fylgdu og önnur fylgigögn. Könnunin leiddi í ljós að framboðslistanum og fylgigögnum var skilað eftir lok framboðsfrest og yfirlýsingar fjögurra frambjóðenda um að þeir hafi leyft að setja nöfn sín á framboðslistann, undirrituð eigin hendi eða með fullgildri rafrænni undirskrift í samræmi við a. lið 1. mgr. 39. gr. kosningalaga nr. 112/2021, skorti. 

Á grundvelli 1. mgr. 44. gr. kosningalaga nr. 112/2021 hélt landskjörstjórn fund klukkan 21:00 þann 31. október 2024 þar sem umboðsmönnum allra þeirra framboða sem skilað höfðu framboðslistum var veittur kostur á að vera viðstaddir. Á þeim fundi var m.a. tilkynnt að komið hefðu fram gallar á J-lista Sósíalistaflokks Íslands í Reykjavíkurkjördæmi suður og að umboðsmönnum listans væri gefinn kostur á að bæta úr þeim göllum, sem lutu að því að yfirlýsingar fjögurra frambjóðenda skorti. Umboðsmenn J-lista Sósíalistaflokks Íslands upplýstu síðar að þeim hefði ekki borist fundarboðið.

Síðar sama kvöld, klukkan 22:55, sendi landskjörstjórn öllum umboðsmönnum J-lista Sósíalistaflokks Íslands tölvupóst með nánari upplýsingum um þá galla sem komið höfðu fram við yfirferð landskjörstjórnar á framboðslistum í öllum kjördæmum landsins og veitti þeim frest til klukkan 21:00 þann 1. nóvember 2024, í því skyni að bæta úr göllunum, í samræmi við heimild 1. mgr. 44. gr. kosningalaga nr. 112/2021.

Klukkan 15:22 þann 1. nóvember 2024 barst landskjörstjórn, í tölvupósti, samþykki þeirra fjögurra frambjóðenda sem skorti um að þeir hafi leyft að setja nöfn sín á framboðslistann, undirrituð með fullgildri rafrænni undirskrift. 

Með tölvupósti sem sendur var til umboðsmanna J-lista Sósíalistaflokks Íslands í Reykjavíkurkjördæmi suður, Suðvesturkjördæmi og Norðausturkjördæmi klukkan 22:07 þann 1. nóvember 2024 óskaði landskjörstjórn m.a. eftir ítarlegum skýringum á ástæðum þess að framboðslistunum hefði ekki verið skilað innan tilgreinds frests. Var þess óskað að sendar yrðu skriflegar skýringar og önnur þau gögn sem skýrt gætu málið eigi síðar en kl. 14:00 þann 2. nóvember 2024. 

Klukkan 13:24 þann 2. nóvember 2024 barst landskjörstjórn tölvupóstur frá kosningastjórn Sósíalistaflokks Íslands, ásamt sjö fylgiskjölum sem m.a. innihéldu andmæli til skýringar á skilaferli framboða J-lista Sósíalistaflokks Íslands. Þar er m.a. vísað til samskipta sem áttu sér stað við landskjörstjórn kl. 10:36 þann 31. október sl. þar sem því er lýst yfir að framboðið telji sig geta hafið skil á öllum framboðslistum, „þeir séu lögformlega tilbúnir m.v. þau þingsæti sem hvert kjördæmi telur“. Þá kemur fram að kl. 11:17 hafi komið upp villa við hin rafrænu framboðsskil sem seinkaði vinnsluferlinu við skil gagnanna. Þá var í andmælum óskað eftir fundi með landskjörstjórn til að gera munnlega grein fyrir stjórnarmiðum framboðsins.

Landskjörstjórn benti á í tölvupóstsamskiptum að metið yrði við yfirferð gagnanna hvort veittur væri frestur til að bæta úr göllum. Þá var sérstaklega áréttað mikilvægi þess að skila framboðslistum fyrir kl. 12:00 sama dag og að unnt væri að skila gögnum á fundi landskjörstjórnar í Hörpu fyrir sama tímamark.

Þann 2. nóvember kl. 18:30 varð landskjörstjórn við beiðni J-lista Sósíalistaflokks Íslands í Reykjavíkurkjördæmi suður, Suðvesturkjördæmi og Norðausturkjördæmi um fund þar sem fulltrúar framboðslistanna fóru yfir skriflegar athugasemdir sínar og ítrekuðu sjónarmið sín. 

II.

Í kosningalögum nr. 112/2021 er fjallað um framboð og kosningar til Alþingis. Í 1. mgr. 36. gr. laganna segir að þegar alþingiskosningar fara fram eftir tilkynningu um þingrof, eins og við á í þessum alþingiskosningum, skulu öll framboð tilkynnt eigi síðar en kl. 12 á hádegi 30 dögum fyrir kjördag. Tilkynningin getur verið undirrituð eigin hendi eða með fullgildri rafrænni undirskrift. Við alþingiskosningar rannsakar landskjörstjórn framlögð gögn og gengur úr skugga um að uppfyllt séu skilyrði framboðs, sbr. 37. og 39. gr. kosningalaga nr. 112/2021. 

Þann 23. október 2024 auglýsti landskjörstjórn hvenær hún tæki við framboðum vegna alþingiskosninga 2024. Í auglýsingunni kom fram að frestur til að skila inn framboðum væri til klukkan 12 á hádegi fimmtudaginn 31. október 2024. Í auglýsingunni kom fram að tekið væri við framboðum á ákveðnum tíma á tilteknum stöðum vítt og breitt um landið en einnig væri unnt að skila framboðum rafrænt. Í auglýsingunni var tekið fram að hægt væri að skila framboðum óháð kjördæmum. Sama dag, eða þann 23. október 2024, var opnað fyrir rafræn skil framboða á Ísland.is. 

Heilt yfir gengu rafræn skil framboða mjög vel, en landskjörstjórn er þó kunnugt um að af og til komu upp villur sem ávallt var brugðist við eins fljótt og auðið var.

Í málinu liggur fyrir að framboðslista J-lista Sósíalistaflokks Íslands í Reykjavíkurkjördæmi suður var skilað rafrænt tveimur mínútum eftir að framboðsfrestur rann út. Hins vegar voru fulltrúar listans mættir í Hörpu áður en framboðsfrestur rann út, en landskjörstjórn hafði auglýst að hún tæki þar við framboðum á milli klukkan 10:00-12:00 þann 31. október 2024. Þar afhentu fulltrúar J-lista Sósíalistaflokks Íslands landskjörstjórn meðmæli til stuðnings framboðslistanum sem öll voru rituð eigin hendi á pappír, samtals 19 blaðsíður. 

Við yfirferð gagnanna varð ljóst að framboðinu hefði verið unnt að skila tilkynningu um framboð, framboðslistanum og fylgigögnum með tölvupósti fyrir lok kærufrests.

Landskjörstjórn er skylt á grundvelli 7. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 að veita þeim sem til stjórnvaldsins leitar nauðsynlega aðstoð og leiðbeiningar. Í þeim málum sem um ræðir veitti landskjörstjórn ekki fullnægjandi leiðbeiningar um að jafnframt væri unnt að skila framboðum með tölvupósti

Öðrum framboðslista í sambærilegum aðstæðum, þ.e. þegar tæknileg villa kom upp, voru veittar þær leiðbeiningar af hálfu landskjörstjórnar mögulegt væri að skila framboði með tölvupósti. Með hliðsjón af jafnræðisreglu 11. gr. stjórnsýslulaga þá verður að líta svo á að um sambærileg tilvik hafi verið að ræða sem landskjörstjórn bar að afgreiða með sambærilegum hætti. 

Að bjóða fram til Alþingis eru grundvallar stjórnskipunarbundin réttindi og þurfa að vera fyrir hendi afar veigamiklar ástæður til þess að ógilda framboðslista. Ákvörðun um að ógilda framboðslista í heild sinni þegar framboðslistinn uppfyllir að öðru leyti lagaskilyrði er að mati landskjörstjórnar ekki í samræmi við sjónarmið um meðalhóf og þau grundvallar stjórnskipunarbundnu réttindi sem hér um ræðir. Þá ber að líta til þess að framboðslistinn uppfyllir skilyrði kosningalaga að öðru leyti.

Á grundvelli framangreinds telur landskjörstjórn að ekki séu fyrir hendi þeir gallar á framboðinu að það verði metið ógilt. Er það því niðurstaða landskjörstjórnar að framboð J-lista Sósíalistaflokks Íslands í Reykjavíkurkjördæmi suður við kosningar til Alþingis þann 30. nóvember 2024 sé gilt.

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Framboðslisti J-lista Sósíalistaflokks Íslands í Reykjavíkurkjördæmi suður til kosninga til Alþingis þann 30. nóvember 2024 er gildur.

Landskjörstjórn 

Kristín Edwald formaður

Arnar Kristinsson

Elín Ósk Helgadóttir

Hulda Katrín Stefánsdóttir

Magnús Karel Hannesson


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta