Hoppa yfir valmynd
Úrskurðir landskjörstjórnar

Úrskurður 65/2024 Framboð til Alþingis

Tilvísun lks2024110006

 

Árið 2024, 3. nóvember kl. 15:00 kom landskjörstjórn saman til fundar í Þjóðminjasafni Íslands við Suðurgötu í Reykjavík til að úrskurða um gildi framboða við kosningar til Alþingis þann 30. nóvember 2024.

 

Fyrir er tekið framboð J-lista Sósíalistaflokks Íslands í Reykjavíkurkjördæmi norður og kveðinn upp svofelldur

úrskurður nr. 65/2024:

 

Hinn 31. október 2024 klukkan 11:44 mætti fulltrúi Sósíalistaflokks Íslands í Hörpu og afhenti landskjörstjórn framboð J-lista Sósíalistaflokks Íslands í Reykjavíkurkjördæmi norður við alþingiskosningar 30. nóvember 2024. Framboðið skilaði jafnframt inn tilkynningu um einn umboðsmann listans sem taki við athugasemdum um ágalla sem kunna að vera á framboðinu og muni gæta réttar listans við undirbúning og framkvæmd kosninga ásamt samþykki hans auk meðmæla til stuðnings framboðslistans og fyrir hvaða stjórnmálasamtök hann er boðinn fram, öll rituð með eigin hendi á pappír, samtals 24 blaðsíður. Einnig var skilað inn samþykki eins frambjóðanda, ritað eigin hendi um að hann tæki sæti á framboðslistanum. 

 

Sama dag klukkan 11:56 var framboðslista með 22 nöfnum frambjóðenda skilað rafrænt til landskjörstjórnar, f.h. Sósíalistaflokks Íslands í Reykjavíkurkjördæmi norður, ásamt 18 fullgildum rafrænum undirskriftum frambjóðenda þar sem þeir samþykkja að nöfn þeirra séu sett á framboðslistann. Framboðið safnaði einnig meðmælum rafrænt á Ísland.is.

 

Síðar sama dag kannaði landskjörstjórn tilkynningu um framboð og framboðslista J-lista Sósíalistaflokks Íslands í Reykjavíkurkjördæmi norður til kosninga til Alþingis, þau meðmæli sem framboðslistanum fylgdu og önnur fylgigögn. Könnunin leiddi í ljós að yfirlýsingar þriggja frambjóðenda um að þeir hafi leyft að setja nöfn sín á framboðslistann, undirrituð eigin hendi eða með fullgildri rafrænni undirskrift í samræmi við a. lið 1. mgr. 39. gr. kosningalaga nr. 112/2021, skorti.

 

Á grundvelli 1. mgr. 44. gr. kosningalaga nr. 112/2021 hélt landskjörstjórn fund klukkan 21:00 þann 31. október 2024 þar sem umboðsmönnum allra þeirra framboða sem skilað höfðu framboðslistum var veittur kostur á að vera viðstaddir. Á þeim fundi var m.a. tilkynnt að komið hefðu fram gallar á  J-lista Sósíalistaflokks Íslands í Reykjavíkurkjördæmi norður og að umboðsmönnum listans væri gefinn kostur á að bæta úr þeim göllum, sem lutu að því að yfirlýsingar þriggja frambjóðenda skorti.

 

Síðar sama kvöld, klukkan 22:55, sendi landskjörstjórn öllum umboðsmönnum J-lista Sósíalistaflokks Íslands tölvupóst með nánari upplýsingum um þá galla sem komið höfðu fram við yfirferð landskjörstjórnar á framboðslistum í öllum kjördæmum landsins og veitti þeim frest til klukkan 21:00 þann 1. nóvember 2024, í því skyni að bæta úr göllunum, í samræmi við heimild 1. mgr. 44. gr. kosningalaga nr. 112/2021.

 

Klukkan 15:22 þann 1. nóvember 2024 barst landskjörstjórn, í tölvupósti, samþykki þeirra þriggja frambjóðenda sem skorti, um að þeir hafi leyft að setja nöfn sín á framboðslistann, undirrituð með fullgildri rafrænni undirskrift.

 

Landskjörstjórn hefur á ný farið yfir öll gögn sem lögð hafa verið fram af J-lista Sósíalistaflokks Íslands í Reykjavíkurkjördæmi norður og leiddi könnunin í ljós að framboðslistinn uppfyllir skilyrði kosningalaga nr. 112/2021.

 

Á grundvelli framangreinds er það niðurstaða landskjörstjórnar að framboð J-lista Sósíalistaflokks Íslands í Reykjavíkurkjördæmi norður við kosningar til Alþingis þann 30. nóvember 2024 sé gilt. 

 

ÚRSKURÐARORÐ

Framboðslisti J-lista Sósíalistaflokks Íslands í Reykjavíkurkjördæmi norður við kosningar til Alþingis þann 30. nóvember 2024 er gildur.

 

Landskjörstjórn 

 

Kristín Edwald formaður

Arnar Kristinsson

Elín Ósk Helgadóttir

Hulda Katrín Stefánsdóttir

Magnús Karel Hannesson

 


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta