Úrskurður varðandi samþykki foreldris vegna þátttöku barns í verkefninu Skólapúlsinn
Vakin er athygli á úrskurði Persónuverndar sem felldur var 9. nóvember 2010 í máli þar sem grunnskóla er gerð óheimil öflun viðkvæmra persónupplýsinga um ólögráða barn án samþykkis foreldris, sbr. 7. tl. 2. gr. laga nr. 77/2000 um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga í þágu sjálfsmatskerfisins Skólapúlsinn. Afriti af úrskurðinum hefur verið komið á framfæri við grunnskóla, framhaldsskóla og ýmissa hagsmunaaðila