Hoppa yfir valmynd
Úrskurðir og álit á sviði samgöngu- og sveitarstjórnarmála frá 1996 til 1. janúar 2011

Ísafjarðarbær - Kjörgengi forstöðumanns Svæðisskrifstofu fatlaðra á Vestfjörðum til setu í félagsmálanefnd

Ísafjarðarbær                                                                       5. mars 2001                                   Tilvísun: FEL01020103/1001

Halldór Halldórsson, bæjarstjóri

Hafnarstræti 1, pósthólf 56

400 Ísafjörður

 

 

 

Vísað er til erindis yðar dags. 20. febrúar sl., þar sem óskað er álits ráðuneytisins á hæfi formanns félagsmálaráðs Ísafjarðarbæjar til setu í ráðinu, en hún er jafnframt framkvæmdastjóri Svæðisskrifstofu málefna fatlaðra. Vísað er til þess að í bréfi ráðuneytisins til yðar dags. 18. október 2000 var fjallað um hæfi formannsins til að taka þátt í meðferð tiltekins máls en nú sé spurt um almennt hæfi hennar.

          Í 42. gr. sveitarstjórnarlaga er að finna ákvæði sem takmarkar kjörgengi í nefndir á vegum sveitarfélags.  Segir þar að starfsmenn fyrirtækja og stofnana sveitarfélags eru ekki kjörgengir í nefndir, ráð og stjórnir þeirra fyrirtækja eða stofnana sem þeir starfa hjá. Svæðisskrifstofa málefna fatlaðra á Vestfjörðum fellur ekki undir fyrrgreint ákvæði, enda lýtur hún stjórn félagsmálaráðuneytisins. Þegar af þeirri ástæðu er ljóst að formaður félagsmálaráðs Ísafjarðarbæjar nýtur kjörgengis til setu í nefndinni samkvæmt fyrrgreindu ákvæði.

          Um hæfi formanns félagsmálanefndar gilda því ákvæði 19. gr. sveitarstjórnarlaga, sem kveða á um skyldu sveitarstjórnarmanna til að víkja sæti við meðferð einstakra mála. Ef fyrir nefndina koma mál sem sérstaklega varða samskipti svæðisskrifstofunnar við Ísafjarðarbæ eða einstaka skjólstæðinga svæðisskrifstofunnar ber henni því væntanlega að víkja sæti við meðferð þeirra mála. Ekki kemur hins vegar fram í bréfi yðar að slík tilvik séu svo tíð að formaðurinn þurfi oft að víkja sæti. Ef um slíkt væri að ræða má segja að um almennt vanhæfi geti verið að ræða til setu í nefndinni, þ.e.a.s. ef hagsmunaárekstrar eru svo tíðir að formanninum sé í raun ókleift að gegna setu í ráðinu. Ráðuneytið telur hins vegar ljóst að ekki geti verið um slíkt að ræða í því máli sem hér er til umfjöllunar, enda eru málefni fatlaðra einungis einn af fjölmörgum málaflokkum sem undir félagsmálaráð heyra samkvæmt núgildandi samþykkt um stjórn Ísafjarðarbæjar og fundarsköp bæjarstjórnar, nr. 173/1998.

          Samkvæmt framansögðu er það álit ráðuneytisins að formaður félagsmálaráðs Ísafjarðarbæjar nýtur kjörgengis til setu í ráðinu, þrátt fyrir að gegna jafnframt starfi framkvæmdastjóra Svæðisskrifstofu málefna fatlaðra á Vestfjörðum.

         

 

 

F. h. r.

Ingi Valur Jóhannsson (sign.)

Guðjón Bragason (sign.)

 

 

 

 

 

 

 




Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta