Eyrarsveit - Álagning b-gatnagerðargjalds árið 1984 og framkvæmdahraði við lagningu gangstéttar
Hafsteinn Garðarsson 18. febrúar 1999 98110081
Grundargötu 92 122
350 Grundarfjörður
Vísað er til erindis yðar til félagsmálaráðuneytisins, dagsett 23. nóvember 1998, varðandi álagningu B-gatnagerðargjalds í Eyrarsveit.
Um álagningu gatnagerðargjalds í Eyrarsveit á árinu 1984 giltu lög um gatnagerðargjöld nr. 51/1974, sbr. lög nr. 31/1975, og samþykkt um gatnagerðargjöld í Grundarfirði nr. 399/1975.
Umrætt gjald var lagt á yður árið 1984. Samkvæmt 2. mgr. 28. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 skal kæru ekki sinnt ef meira en ár er liðið frá því að ákvörðun var tilkynnt aðila máls. Ráðuneytið lítur svo á að ákvæði þetta eigi við í máli þessu og mun það því ekki taka til efnislegrar meðferðar álagningu B-gatnagerðargjalds í Eyrarsveit á árinu 1984, né kröfu um endurgreiðslu hluta þess gjalds.
Í öðru lagi er í erindi yðar fjallað um framkvæmdahraða vegna lagningar gangstéttar. Fram kemur í gögnum málsins að kostnaður vegna lagningar gangstétta var innifalinn í þeim gatnagerðargjöldum sem innheimt voru hjá fasteignareigendum við Grundargötu árið 1984. Ráðuneytið telur að 2. mgr. 6. gr. laga um gatnagerðargjöld sé skýr hvað það varðar, en samkvæmt ákvæðinu er B-gatnagerðargjald fyrst gjaldkræft þegar lagningu gangstéttar er lokið. Þó skal sveitarstjórn heimilt að ákveða í samþykkt sem hún setur og ráðherra staðfestir að greiðslu slíks gjalds skuli dreift á tiltekið árabil.
Þar sem hreppsnefnd Eyrarsveitar nýtti sér framangreinda heimild, sbr. 9. gr. samþykktar nr. 399/1975, til að innheimta að fullu eftirstöðvar B-gatnagerðargjalds með jöfnum afborgunum í 4 ár, telur ráðuneytið að hreppsnefnd hefði verið heimilt að ljúka við lagningu gangstétta við Grundargötu innan fjögurra ára. Verður að telja verulega aðfinnsluvert að þeim framkvæmdum lauk ekki fyrr en 13 árum eftir álagningu B-gatnagerðargjalds.
F. h. r.
Sigríður Lillý Baldursdóttir (sign.)
Sesselja Árnadóttir (sign.)
Afrit:
Eyrarsveit
Neytendasamtökin