Rangárvallarhreppur - Álagning fasteignaskatts á heilsugæslustöðvar og fasteignir tengdar slíkum rekstri
Rangárvallahreppur 19. ágúst 1999 99070045
Guðmundur Ingi Gunnlaugsson, sveitarstjóri 1100
Laufskálum 2
850 Hella
Vísað er til erindis yðar til félagsmálaráðuneytisins, dagsett 14. júlí 1999, þar sem óskað er eftir túlkun ráðuneytisins á lögum um heilbrigðisþjónustu nr. 97/1990 og lögum um tekjustofna sveitarfélaga nr. 4/1995 varðandi heilsugæslustöðvar sem ekki eru reknar í sjúkrahúsi eða í starfstengslum við það. Ennfremur er spurst fyrir um það hvort eingöngu það húsnæði sem viðkomandi starfsemi fer fram í er undanþegið fasteignaskatti eða hvort fasteignir sem tengdar eru rekstrinum, svo sem íbúðarhúsnæði og geymsluhúsnæði, geti fallið undir undanþágu 1. mgr. 5. gr. laga um tekjustofna sveitarfélaga.
Í meðfylgjandi bréfi ráðuneytisins frá 26. júní 1992 var fjallað um heilsugæslustöðvar og dvalarheimili aldraðra í þessu sambandi. Þar var niðurstaðan sú að heilsugæslustöðvar væru „sjúkrastofnanir samkvæmt heilbrigðislögum“ og þar með undanþegnar fasteignaskatti.
Ákvæði 1. mgr. 5. gr. laga um tekjustofna sveitarfélaga er undantekningarákvæði, þ.e. tilteknar fasteignir eru þar undanþegnar fasteignaskatti. Slík ákvæði ber að öðru jöfnu að skýra eftir orðanna hljóðan, þ.e. aðrar fasteignir en þær sem beinlínis eru tilgreindar í ákvæðinu falla ekki undir það.
Þess ber þó að geta að samkvæmt upplýsingum frá Fasteignamati ríkisins hafa ekki komið til úrskurðar hjá yfirfasteignamatsnefnd mál sem unnt er að nota sem fordæmi í þessum tilvikum. Sveitarfélagið getur í slíkum tilvikum bent gjaldanda á að kæra ákvörðun sveitarstjórnar um álagningu til yfirfasteignamatsnefndar, sbr. 3. mgr. 4. gr. laga um tekjustofna sveitarfélaga.
F. h. r.
Húnbogi Þorsteinsson (sign.)
Sesselja Árnadóttir (sign.)