Hoppa yfir valmynd
Úrskurðir velferðarráðuneytisins 2011-2018

Úrskurður velferðarráðuneytisins

Þriðjudaginn 5. apríl 2011 var í velferðarráðuneytinu kveðinn upp svohljóðandi

 

ú r s k u r ð u r:

Með erindi til félags- og tryggingamálaráðuneytis, síðar velferðarráðuneytis, sbr. lög nr. 121/2010, um breytingu á lögum um Stjórnarráð Íslands, nr. 73/1969, með síðari breytingum, dags. 24. desember 2008, kærði Falcon Nordica ehf., kt. 571105-0470, ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 19. desember 2008, um synjun á veitingu tímabundins atvinnuleyfis til handa  […], sem er indónesískur ríkisborgari, fd.  […], í því skyni að ráða sig til starfa hjá Falcon Nordica ehf.

I. Málavextir og málsástæður.

Mál þetta varðar synjun Vinnumálastofnunar á veitingu tímabundins atvinnuleyfis, til handa  […], sem er indónesískur ríkisborgari, í því skyni að ráða sig til starfa hjá Falcon Nordica ehf. Vinnumálastofnun synjaði um veitingu atvinnuleyfisins með vísan til 9. gr. laga nr. 97/2002, um atvinnuréttindi útlendinga, með síðari breytingum, sbr. a-lið 1. mgr. 7. gr. sömu laga.

Þeirri ákvörðun vildi kærandi ekki una og kærði hana til ráðuneytisins. Í erindi kæranda kemur fram að þar sem hann sé heyrnarskertur og því háður táknmáli við rekstur fyrirtækis síns telji hann nauðsynlegt að ráða umræddan útlending til starfa sem túlk. Enn fremur tekur kærandi fram að umræddur útlendingur kunni skil á ensku og indónesísku ásamt því að vera táknmálstúlkur. Að sögn kæranda hefur honum ekki tekist að finna starfsmann innan Evrópska efnahagssvæðisins sem bæði kunni skil á índónesísku og táknmálstúlkun líkt og umræddur útlendingur. Jafnframt kemur fram að aðalviðskipti fyrirtækis kæranda séu við fyrirtæki sem hafa staðfestu í Indónesíu og Malasíu og að oft þurfi að eiga samskipti við þessi fyrirtæki í gegnum síma, ekki síst þar sem unnið sé að því að opna kaffihúsakeðju á Norðurlöndunum í samvinnu við þau. Þá kemur fram að kærandi telji að umræddur útlendingur muni nýtast starfsemi fyrirtækis hans vel, ekki síst þar sem hann geti ekki sjálfur átt samskipti í gegnum síma sökum heyrnarskerðingar sinnar.

Ráðuneytið sendi hlutaðeigandi atvinnurekanda bréf, dags. 30. desember 2008, þar sem athygli var vakin á því að samkvæmt 1. mgr. 34. gr. laga nr. 97/2002, um atvinnuréttindi útlendinga, með síðari breytingum, skulu hlutaðeigandi atvinnurekandi og viðkomandi útlendingur báðir undirrita stjórnsýslukæru til ráðuneytisins vegna ákvarðana Vinnumálastofnunar um synjun eða afturköllun tímabundins atvinnuleyfis hér á landi. Þeir geti þó veitt öðrum umboð sitt til að fara með málið fyrir sína hönd, sbr. sama ákvæði. Í fyrrnefndu bréfi óskaði ráðuneytið því eftir staðfestingu á að hlutaðeigandi atvinnurekandi hefði umboð frá umræddum útlendingi til að kæra fyrrnefnda synjun Vinnumálastofnunar til ráðuneytisins og var frestur veittur til 16. janúar 2009. Ráðuneytinu barst umbeðið umboð 7. janúar 2009.

Erindi kæranda var í kjölfarið sent Vinnumálastofnun til umsagnar með bréfi ráðuneytisins, dags. 7. janúar 2009. Með bréfi, dags. 28. janúar 2009, ítrekaði ráðuneytið beiðni sína til Vinnumálastofnunar um umsögn vegna umræddrar stjórnsýslukæru og barst ráðuneytinu svarbréf stofnunarinnar 2. febrúar sama ár. Í umsögn Vinnumálastofnunar kemur fram að stofnunin telji að líta verði til þess að skráð atvinnuleysi hafi aukist hröðum skrefum en í byrjun árs 2009 hafi um tólf þúsund einstaklingar verið skráðir atvinnulausir sem og að mjög slæmar horfur séu á innlendum vinnumarkaði í náinni framtíð. Þá ítrekar Vinnumálastofnun í umsögn sinni afstöðu sína til málsins sem fram kemur í synjunarbréfi stofnunarinnar, dags. 19. desember 2008, þess efnis að samkvæmt lögum nr. 97/2002, um atvinnuréttindi útlendinga, með síðari breytingum, sé heimilt að veita leyfi til að ráða útlendinga til starfa hérlendis að uppfylltum tilteknum skilyrðum svo sem að kunnáttumenn verði ekki fengnir innanlands eða að atvinnuvegi landsins skorti vinnuafl. Bendir stofnunin á að íslenskur vinnumarkaður sé hluti af sameiginlegum vinnumarkaði innan Evrópska efnahagssvæðisins á grundvelli samningsins um Evrópska efnahagssvæðið. Samkvæmt ákvæðum laga nr. 47/1993, um frjálsan atvinnu- og búseturétt launafólks innan Evrópska efnahagssvæðisins, með síðari breytingum, þurfi ríkisborgarar aðildarríkja að samningnum um Evrópska efnahagssvæðið ekki atvinnuleyfi hér á landi og njóti þeir forgangs að lausum störfum á innlendum vinnumarkaði fram yfir ríkisborgara annarra ríkja. Eigi það einnig við um ríkisborgara ríkja sem urðu aðilar að samningnum um Evrópska efnahagssvæðið 1. maí 2004, sbr. viðauka B við aðildarsamning EES. Áður en Vinnumálastofnun geti veitt atvinnuleyfi beri atvinnurekanda því að hafa óskað eftir aðstoð stofnunarinnar við leit að vinnuafli, þar á meðal aðstoð vinnumiðlunar á Evrópska efnahagssvæðinu. Að mati stofnunarinnar hafi umrædd skilyrði ekki verið uppfyllt í máli þessu. Tekur stofnunin fram að samkvæmt upplýsingum frá Eures,vinnumiðlun á Evrópska efnahagssvæðinu, hafi hlutaðeigandi atvinnurekandi ekki óskað eftir aðstoð vinnumiðlunarinnar við leit að starfsmanni í umrætt starf en eitthvað sé um að einstaklingar með þekkingu á táknmáli séu skráðir hjá vinnumiðluninni. Stofnunin telji því ekki fullreynt að ráða einstakling í starfið sem þegar hefur aðgengi að innlendum vinnumarkaði.

Vinnumálastofnun bendir í umsögn sinni á að enska sé útbreidd í Indónesíu og að leiða megi að því líkur að fyrirtæki þar í landi sem starfi við útflutning á vörum og þjónustu hafi á að skipa starfsmönnum sem tali ensku. Vinnumálastofnun bendir jafnframt á að verði af ráðningu umrædds útlendings verði starfsheiti hans aðstoðarkona, ræstingakona og tákntúlkur sem og að launin verði 145.000 krónur á mánuði, samanber þær upplýsingar sem fram komi í ráðningasamningi þeim sem fylgdi umsókninni til stofnunarinnar um umrætt atvinnuleyfi. Að mati Vinnumálastofnunar megi af þessu ráða að táknmálstúlkun sé einungis hluti af starfinu auk þess sem fyrirhuguð laun gefi ekki tilefni til að ætla að umræddur útlendingur hafi yfir sértækri þekkingu að ráða.

Jafnframt bendir stofnunin á að íslensk stjórnvöld hafi áréttað þær skuldbindingar sem felast í samningnum um Evrópska efnahagssvæðið um forgang ríkisborgara ríkja innan Evrópska efnahagssvæðisins umfram ríkisborgara ríkja utan svæðisins til starfa hér á landi. Stofnunin vísar í þessu sambandi til yfirlýsingar félagsmálaráðherra og dómsmálaráðherra frá 7. september 2005 sem og fréttatilkynningar félagsmálaráðherra frá 3. maí 2006. Enn fremur vísar stofnunin til úrskurða félags- og tryggingamálaráðuneytisins sem kveðnir hafa verið upp frá því í september 2005 þar sem komist hafi verið að þeirri niðurstöðu að kærendur hafi ekki fullreynt að ráða ríkisborgara aðildarríkja að samningnum um Evrópska efnahagssvæðið og þar með hafi ekki verið sýnt fram á nauðsyn þess að ráða viðkomandi útlendinga til starfa. Telur stofnunin að umræddir úrskurðir hafi fordæmisgildi í því máli sem hér um ræðir.

Í ljósi þess sem að framan greinir og stefnu stjórnvalda telur Vinnumálastofnun því ekki heimilt að veita atvinnuleyfi til útlendinga sem eru ríkisborgarar ríkja utan Evrópska efnahagssvæðisins nema mjög ríkar ástæður séu fyrir hendi. Með tilliti til vinnumarkaðssjónarmiða telur stofnunin slíkar ástæður ekki vera fyrir hendi í máli þessu.

Með vísan til framangreinds telur Vinnumálastofnun að stofnuninni hafi borið að synja um umrætt atvinnuleyfi.

Með bréfi, dags. 2. febrúar 2009, var kæranda gefinn kostur á að gera athugasemdir við umsögn Vinnumálastofnunar. Í svarbréfi kæranda, dags. 6. febrúar 2009, ítrekar kærandi áður framkomin sjónarmið sín í málinu. Jafnframt tekur kærandi fram að það sé hæfni umrædds útlendings sem táknmálstúlks sem komi til með að nýtast í því starfi sem hér um ræðir en síður enskukunnátta viðkomandi. Enn fremur tekur kærandi fram að laun umrædds útlendings miðist við launatöflu stéttarfélagsins Eflingar og muni hækka í samræmi við umsamdar launahækkanir fyrir félagsmenn Eflingar. Fram kemur að auk 145.000 króna í laun á mánuði sé gert ráð fyrir að umræddur útlendingur fái húsnæði án endurgjalds sem kosti um 79.000 krónur á mánuði. Jafnframt muni flug umrædds útlendings hingað til lands verða greitt sem og sjúkratrygging fyrir viðkomandi hjá tryggingarfélaginu Sjóvá-Almennar tryggingar hf. Þá tekur hlutaðeigandi atvinnurekandi fram að hann hafi með aðstoð Eures, vinnumiðlunar á Evrópska efnahagssvæðinu, leitað án árangurs eftir starfsmanni sem hafi kunnáttu í táknmálstúlkun auk kunnáttu í indónesísku.

Þar sem ekki þótti ljóst af gögnum málsins hvort hlutaðeigandi atvinnurekandi hefði óskað eftir aðstoð Eures, vinnumiðlunar á Evrópska efnahagssvæðinu, við leit að starfsmanni í umrætt starf óskaði ráðuneytið með tölvubréfi til vinnumiðlunarinnar, dags. 29. nóvember 2010, eftir nánari upplýsingum um hvort hlutaðeigandi atvinnurekandi hefði óskað eftir aðstoð vinnumiðlunarinnar við leit að starfsmanni í umrætt starf. Í svari vinnumiðlunarinnar, sem barst ráðuneytinu samdægurs, kemur fram að ekki finnist upplýsingar um hlutaðeigandi atvinnurekanda í gagnagrunni vinnumiðlunarinnar og því verði ekki séð að hann hafi óskað eftir aðstoð vinnumiðlunarinnar við leit að starfsmanni.

Þar sem engar nánari upplýsingar komu fram í gögnum málsins hvað varðar hæfni umrædds útlendings sem táknmálstúlks þrátt fyrir að fram kæmi í gögnunum að umrædd kunnátta kæmi til með að nýtast vel í því starfi sem hér um ræðir að mati kæranda óskaði ráðuneytið með bréfi, dags. 3. mars 2011, eftir staðfestingu á fyrrnefndri kunnáttu umrædds útlendings sem og í hvaða táknmáli sú kunnátta í táknmálstúlkun væri. Enn fremur óskaði ráðuneytið eftir upplýsingum um hvort kærandi hefði kunnáttu í því tiltekna táknmáli.

Í ljósi þess að misvísandi upplýsingar komu fram í gögnum málsins hvað varðar leit kæranda að starfsmanni í umrætt starf með aðstoð Vinnumálastofnunar óskaði ráðuneytið í fyrrnefndu bréfi enn fremur eftir nánari upplýsingum sem og gögnum um samskipti kæranda við Eures, vinnumiðlun á Evrópska efnahagssvæðinu, við leit að starfsmanni í umrætt starf.

Var kæranda veittur frestur til 16. mars 2011 til að veita ráðuneytinu umbeðnar upplýsingar en svarbréf barst ekki frá kæranda. Ráðuneytið sendi því bréf til kæranda, 23. mars 2011, þar sem upplýst var að ráðuneytið tæki málið til efnislegrar afgreiðslu hefðu umbeðnar upplýsingar og gögn ekki borist fyrir 30. mars sama ár. Hvorki frekari upplýsingar né gögn bárust frá kæranda og er málið því tekið til efnislegrar afgreiðslu.

II. Niðurstaða.

Samkvæmt 34. gr. laga nr. 97/2002, um atvinnuréttindi útlendinga, með síðari breytingum, er heimilt að kæra ákvörðun Vinnumálastofnunar um synjun eða afturköllun atvinnuleyfis til velferðarráðuneytis, áður félags- og tryggingamálaráðuneytis, sbr. lög nr. 162/2010, um breytingar á ýmsum lögum vegna sameiningar ráðuneyta, sbr. lög nr. 121/2010, um breytingu á lögum um Stjórnarráð Íslands, nr. 73/1969, með síðari breytingum.

Atvinnuleyfi vegna starfa útlendinga eru veitt í samræmi við lög, reglugerðir settar með heimild í þeim og stefnu íslenskra stjórnvalda hverju sinni að teknu tilliti til alþjóðlegra skuldbindinga þeirra. Samkvæmt 9. gr. laga nr. 97/2002, um atvinnuréttindi útlendinga, með síðari breytingum, er heimilt að veita tímabundið atvinnuleyfi vegna tiltekins starfs hér á landi vegna skorts á vinnuafli þegar starfsfólk fæst hvorki á innlendum vinnumarkaði né innan Evrópska efnahagssvæðisins, í EFTA-ríkjum eða í Færeyjum. Skilyrði fyrir veitingu atvinnuleyfis samkvæmt ákvæðinu eru meðal annars að skilyrði 1. mgr. 7. gr. laganna séu uppfyllt. Samkvæmt a-lið 1. mgr. 7. gr. laganna er það skilyrði fyrir veitingu atvinnuleyfis að starfsfólk fáist hvorki á innlendum vinnumarkaði né innan Evrópska efnahagssvæðisins eða aðrar sérstakar ástæður mæli með veitingu atvinnuleyfis. Þá er tekið fram að áður en atvinnuleyfi er veitt beri atvinnurekanda að hafa leitað eftir starfsfólki með aðstoð Vinnumálastofnunar nema slík leit verði fyrirsjáanlega árangurslaus að mati stofnunarinnar.

Í athugasemdum við 7. gr. a frumvarps þess er varð að gildandi 9. gr. laga um atvinnuréttindi útlendinga, sbr. lög nr. 78/2008, um breytingu á lögum nr. 97/2002, um atvinnuréttindi útlendinga, og lögum nr. 47/1993, um frjálsan atvinnu- og búseturétt launafólks innan Evrópska efnahagssvæðisins, með síðari breytingum, kemur fram að ákvæðið fjalli um tímabundið atvinnuleyfi sem ætlað er að mæta tímabundnum sveiflum í íslensku atvinnulífi. Gert sé „ráð fyrir að einungis reyni á ákvæði þetta við sérstakar aðstæður enda mikil áhersla lögð á að atvinnurekendur leiti fyrst eftir starfsfólki innan Evrópska efnahagssvæðisins. Áfram er því gert ráð fyrir að atvinnurekandi þurfi að færa sérstök rök fyrir nauðsyn þess að ráða til sín erlent starfsfólk frá ríkjum utan Evrópska efnahagssvæðisins enda verði höfð hliðsjón af aðstæðum á innlendum vinnumarkaði við veitingu atvinnuleyfa sem og hvort vinnuafl fáist frá aðildarríkjum að samningnum um Evrópska efnahagssvæðið, EFTA-ríkjum eða Færeyjum. Er gert ráð fyrir að ríkar kröfur verði gerðar til atvinnurekanda svo talið verði fullreynt að finna starfsfólk með aðstoð Vinnumálastofnunar sem þegar hefur aðgengi að innlendum vinnumarkaði en mat á þörf eftir vinnuafli verður áfram á ábyrgð Vinnumálastofnunar.“ Er jafnframt vísað til athugasemda við 5. gr. frumvarpsins er varð að gildandi 7. gr. laga um atvinnuréttindi útlendinga. Þar er tekið fram að atvinnurekandi verði að gera grein fyrir þeim tilraunum sem hann hefur gert til að ráða fólk sem þegar hefur aðgengi að íslenskum vinnumarkaði og að atvinnurekendur leiti eftir starfsfólki innan svæðisins með aðstoð Vinnumálastofnunar með milligöngu Eures, vinnumiðlunar á Evrópska efnahagssvæðinu. Þá segir að það falli „í hlut Vinnumálastofnunar að kanna sjálfstætt áður en atvinnuleyfi er veitt hvert atvinnuástandið innan lands er á hverjum tíma og hvort útséð er um að vinnuafl fáist innan Evrópska efnahagssvæðisins, frá EFTA-ríkjum eða Færeyjum, sbr. a-lið 1. mgr. ákvæðis þessa, enda hlutverk stofnunarinnar að fylgjast með atvinnuástandi í landinu í því skyni að koma í veg fyrir atvinnuleysi eins og frekast er unnt.

Af efni ákvæðis a-liðar 1. mgr. 7. gr. laga um atvinnuréttindi útlendinga má því ráða að mat Vinnumálastofnunar á því hvort skilyrði ákvæðisins fyrir veitingu tímabundinna atvinnuleyfa séu uppfyllt skuli aðallega byggjast á aðstæðum á innlendum vinnumarkaði hverju sinni sem og hvort starfsfólk fáist innan Evrópska efnahagssvæðisins, EFTA-ríkja eða Færeyja. Þar á meðal er átt við hið lögbundna hlutverk Vinnumálastofnunar að meta hvort leit atvinnurekanda að starfsmanni, sem þegar hefur aðgengi að íslenskum vinnumarkaði, sé fyrirsjáanlega árangurslaus og þar með ekki nauðsynlegt skilyrði fyrir veitingu tímabundins atvinnuleyfis.

Beiðni um aðstoð Vinnumálastofnunar við leit að starfsfólki sem þegar hefur aðgengi að innlendum vinnumarkaði er því lögbundið skilyrði fyrir veitingu atvinnuleyfis enda telji stofnunin leitina ekki fyrirsjáanlega árangurslausa. Í nóvember 2008 voru að meðaltali 5.445 einstaklingar skráðir á atvinnuleysisskrá hér á landi samkvæmt upplýsingum frá Vinnumálastofnun, sbr. skýrslu stofnunarinnar yfir atvinnuástand, nr. 11/2008, en það jafngildir því að skráð atvinnuleysi hafi verið 3,3% á þeim tíma. Á sama tíma var skráð atvinnuleysi á höfuðborgarsvæðinu 3,3% sem svarar til 3.441 einstaklings að meðaltali.

Við mat á því hvort skilyrðum a-liðar 1. mgr. 7. gr. laga um atvinnuréttindi útlendinga sé fullnægt ber Vinnumálastofnun jafnframt að líta til skuldbindinga íslenskra stjórnvalda samkvæmt samningnum um Evrópska efnahagssvæðið, sbr. einnig 2. gr. sömu laga. Með samningnum um Evrópska efnahagssvæðið hafa íslensk stjórnvöld skuldbundið sig til að skapa skilyrði fyrir fulla atvinnu, bætt lífskjör og bætt starfsskilyrði á Evrópska efnahagssvæðinu, sbr. einnig lög nr. 2/1993, um Evrópska efnahagssvæðið, með síðari breytingum. Ákvæði 28.–30. gr. samningsins um Evrópska efnahagssvæðið fjalla síðan sérstaklega um frjálsa för launafólks sem nánar eru útfærð í gerðum um þetta efni og hafa verið felldar undir V. viðauka við samninginn. Samkvæmt reglugerð nr. 1612/68/EBE, um frelsi launþega til flutninga innan Evrópska efnahagssvæðisins, sem innleidd var í íslenskan rétt með lögum nr. 47/1993, um frjálsan atvinnu- og búseturétt launafólks innan Evrópska efnahagssvæðisins, með síðari breytingum, skal sérhver ríkisborgari annars aðildarríkis njóta þeirra réttinda að ráða sig til starfa á yfirráðasvæði annars aðildarríkis með sama forgangsrétti og ríkisborgarar þess ríkis. Er þar jafnframt kveðið á um náið samstarf vinnumiðlana aðildarríkjanna um miðlun lausra starfa innan svæðisins. Það telst því felast í skuldbindingum íslenskra stjórnvalda samkvæmt framangreindum samningi að þau veiti launamönnum sem eru ríkisborgarar annarra aðildarríkja innan Evrópska efnahagssvæðisins sama aðgang og íslenskir ríkisborgarar hafa að lausum störfum á innlendum vinnumarkaði og þar með forgang fram yfir ríkisborgara ríkja utan svæðisins að þeim störfum.

Það er því jafnframt lögbundið skilyrði fyrir veitingu tímabundins atvinnuleyfis vegna skorts á vinnuafli að atvinnurekandi hafi áður leitað aðstoðar Vinnumálastofnunar við leit að starfsfólki innan Evrópska efnahagssvæðisins með milligöngu Eures, vinnumiðlunar á Evrópska efnahagssvæðinu, eftir að leit hans innanlands hefur ekki skilað árangri. Jafnframt eru gerðar ríkar kröfur til atvinnurekenda svo talið verði fullreynt að finna starfsfólk með aðstoð Vinnumálastofnunar sem þegar hefur aðgengi að innlendum vinnumarkaði.

Í máli þessu taldi Vinnumálastofnun meginreglu ákvæðis a-liðar 1. mgr. 7. gr. laga um atvinnuréttindi útlendinga, með síðari breytingum, eiga við og því nauðsynlegt skilyrði fyrir veitingu atvinnuleyfis að umsækjandi hefði áður óskað eftir aðstoð stofnunarinnar við leit að starfsfólki. Verður ekki annað séð en að mat Vinnumálastofnunar um að hlutaðeigandi atvinnurekanda hafi borið að óska eftir aðstoð stofnunarinnar við leit að starfsmanni á innlendum vinnumarkaði hafi byggst á málefnalegum sjónarmiðum ekki síst í ljósi þess að í nóvember 2008 fór skráð atvinnuleysi ört vaxandi hér á landi. 

Í svarbréfi sínu til ráðuneytisins, dags. 6. febrúar 2009, tekur hlutaðeigandi atvinnurekandi meðal annars fram, án þess að styðja það frekari gögnum, að hann hafi með aðstoð Eures, vinnumiðlunar á Evrópska efnahagssvæðinu, leitað án árangurs eftir starfsmanni sem hefði táknmálskunnáttu sem og kunnáttu í indónesísku. Hins vegar kemur fram í umsögn Vinnumálastofnunar, sem barst ráðuneytinu 2. febrúar 2009, að hlutaðeigandi atvinnurekandi hafi ekki óskað eftir aðstoð stofnunarinnar við leit að starfsmanni til að gegna umræddu starfi, hvorki innanlands né af Evrópska efnahagssvæðinu með milligöngu Eures, vinnumiðlunar á Evrópska efnahagssvæðinu. Er það í samræmi við það sem fram kemur í svari Eures, vinnumiðlunar á Evrópska efnahagssvæðinu, dags. 29. nóvember 2010, við fyrirspurn ráðuneytisins, dags. sama dag, varðandi það hvort kærandi hefði óskað eftir aðstoð vinnumiðlunarinnar við leit að starfsmanni í umrætt starf.

Við framkvæmd laganna um atvinnuréttindi útlendinga hefur verið lögð áhersla á mikilvægi þess að jafnvægi milli framboðs og eftirspurnar eftir vinnuafli á innlendum vinnumarkaði sé viðhaldið. Er því jafnframt þýðingarmikið að horfa til þeirra langtímaáhrifa sem útgáfa tímabundinna atvinnuleyfa getur haft á jafnvægi á vinnumarkaði. Ljóst er að aðstæður á innlendum vinnumarkaði breyttust mjög hratt á haustmánuðum 2008 þegar skráð atvinnuleysi jókst umtalsvert. Í því sambandi má nefna að skráð atvinnuleysi fór úr 1,3% í september 2008 í 6,6% í janúar 2009 og hélt skráð atvinnuleysi áfram að aukast hér á landi þar til í apríl 2009 er það mældist 9,1%. Nokkrar sveiflur hafa verið í skráðu atvinnuleysi á þessu tímabili en það hefur þó ekki mælst lægra en 7% síðan í febrúar 2009. Í febrúar 2011 var skráð atvinnuleysi 8,6% á innlendum vinnumarkaði sem jafngildir því að 13.772 einstaklingar hafi að meðaltali verið án atvinnu þann mánuðinn, sbr. skýrslu Vinnumálastofnunar yfir atvinnuástand nr. 2/2011.

Í erindi kæranda til ráðuneytisins, dags. 24. desember 2008, sem og í svarbréfi kæranda til ráðuneytisins, dags. 6. febrúar 2009, kemur meðal annars fram að hlutaðeigandi atvinnurekandi telur að hæfni umrædds útlendings sem táknmálstúlks komi til með að nýtast vel í því starfi sem hér um ræðir þar sem hlutaðeigandi atvinnurekandi sé heyrnarskertur og því háður táknmáli við rekstur fyrirtækis síns. Auk þess eigi fyrirtæki hans nokkur samskipti í gegnum síma við fyrirtæki sem hafa staðfestu í Indónesíu og Malasíu og því komi sér vel að umræddur útlendingur kunni skil á ensku og indónesísku. Í ráðningarsamningi þeim, sem fylgdi með umsókninni til Vinnumálastofnunar um umrætt atvinnuleyfi, kemur hins vegar fram að starfsheiti þess sem ráðinn verði í starfið verði aðstoðarkona, ræstingakona og tákntúlkur og að komi til ráðningar verði stéttarfélag viðkomandi starfsmanns Efling stéttarfélag. Að mati ráðuneytisins þykja þessar upplýsingar sem fram koma í fyrrnefndum ráðningarsamningi benda til að ekki sé um mjög sérhæft starf að ræða. Í því sambandi verður jafnframt að líta til þess að fram kemur í fyrrnefndum ráðningarsamningi hvaða námi umræddur útlendingur hafi lokið en um sé að ræða annars vegar sex ára grunnskólanám og hins vegar sex ára framhaldsskólanám. Ráðuneytinu hafa hvorki borist frekari upplýsingar né gögn frá kæranda hvað varðar hæfni umrædds útlendings sem táknmálstúlks né í hvaða táknmáli sú kunnátta er þrátt fyrir að hafa ítrekað óskað eftir slíkum upplýsingum og gögnum. Enn fremur hefur kærandi ekki orðið við beiðni ráðuneytisins hvað varðar upplýsingar um hvort kærandi hafi kunnáttu í því tiltekna táknmáli sem umræddur útlendingur er sagður hafa kunnáttu í. Þá hefur kærandi ekki orðið við beiðni ráðuneytisins hvað varðar nánari upplýsingar sem og gögn um samskipti kæranda við Eures, vinnumiðlun á Evrópska efnahagssvæðinu, við leit að starfsmanni í umrætt starf en í ljósi þess að misvísandi upplýsingar koma fram í gögnum málsins í tengslum við leit kæranda að starfsmanni í umrætt starf með aðstoð Vinnumálastofnunar óskaði ráðuneytið eftir frekari upplýsingum frá kæranda hvað það varðar.

Þegar litið er til núverandi aðstæðna á innlendum vinnumarkaði, skuldbindinga íslenskra stjórnvalda samkvæmt samningnum um Evrópska efnahagssvæðið, sbr. einnig lög um frjálsan atvinnu- og búseturétt launafólks innan Evrópska efnahagssvæðisins, þess að ekki verður séð af þeim gögnum sem liggja fyrir í málinu að hlutaðeigandi atvinnurekandi hafi óskað eftir aðstoð Vinnumálastofnunar við leit að starfsmanni til að gegna umræddu starfi, hvorki innanlands né af Evrópska efnahagssvæðinu með milligöngu Eures, vinnumiðlunar á Evrópska efnahagssvæðinu, sem og gagna málsins í heild, er það mat ráðuneytisins að í máli þessu hafi ekki verið nægjanlega sýnt fram á að fullreynt hafi verið að ráða einstakling í starfið af innlendum vinnumarkaði eða af Evrópska efnahagssvæðinu sem þegar hefur aðgengi að innlendum vinnumarkaði.

Með vísan til framangreinds er það því niðurstaða ráðuneytisins að skilyrðum laga um atvinnuréttindi útlendinga um veitingu tímabundins atvinnuleyfis sé ekki fullnægt í máli þessu.

Uppkvaðning úrskurðar þessa hefur dregist vegna mikilla anna í ráðuneytinu.

 

Ú R S K U R Ð A R O R Ð:

Ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 19. desember 2008, um synjun á veitingu tímabundins atvinnuleyfis til handa  […], sem er indónesískur ríkisborgari, í því skyni að ráða sig til starfa hjá Falcon Nordica, ehf., skal standa.


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta