Hoppa yfir valmynd
Úrskurðir velferðarráðuneytisins 2011-2018

Synjun Vinnumálastofnunar frá 19. desember 2005 staðfest

Fimmtudaginn 21. desember 2006 var í félagsmálaráðuneytinu kveðinn upp svohljóðandi

ú r s k u r ð u r:

 

Með erindi, dags. 9. janúar 2006, kærðu Samtök atvinnulífsins, f.h. A ehf., synjanir Vinnumálastofnunar, dags. 19. desember 2005, á veitingu atvinnuleyfa fyrir B og C, sem eru filippseyskir ríkisborgarar.

 

I. Málavextir og málsástæður.

Mál þetta varðar synjun Vinnumálastofnunar á veitingu atvinnuleyfa til handa A ehf. í því skyni að ráða til starfa B og C, sem eru filippseyskir ríkisborgarar. Vinnumálastofnun synjaði um veitingu atvinnuleyfanna með vísan til a-liðar 1. mgr. 7. gr. laga nr. 97/2002, um atvinnuréttindi útlendinga.

Þeirri ákvörðun vildi kærandi ekki una og kærði hana til ráðuneytisins. Að sögn kæranda hefur hann leitað eftir starfsfólki frá því í september 2005, bæði á Íslandi og á EES svæðinu, meðal annars með auglýsingum í Fréttablaðinu og á netinu. Fram kemur að í nóvember 2005 hafi kærandi auglýst eftir starfsfólki með milligöngu Eures, vinnumiðlunar á Evrópska efnahagssvæðinu. Í auglýsingunni hafi verið sett þau skilyrði fyrir ráðningu í starfið að viðkomandi hefði bílpróf, hreint sakavottorð og kunnáttu í ensku. Tveir aðilar hafi svarað auglýsingunni og hafi annar þeirra hafnað starfinu en hinn umsækjandinn hafi enn ekki sent kæranda umbeðin gögn. Enn fremur hafi verið leitað umsækjenda í almennum umsóknum og eldri umsóknum Eures, vinnumiðlunar á Evrópska efnahagssvæðinu, um hreingerningarstörf hjá öðrum íslenskum fyrirtækjum. Að sögn kæranda hafi Eures, vinnumiðlun á Evrópska efnahagssvæðinu, áframsent tíu umsóknir til kæranda fram til 19. desember 2005 en eins og fylgigögn umræddrar kæru beri með sér þá hafi flestir þeirra umsækjenda ekki uppfyllt sett skilyrði, ekki haft áhuga á þeim störfum er í boði voru hjá kæranda eða ekki svarað símtölum og tölvupóstum. Frá 22. desember 2005 hafi kæranda borist átján umsóknir til viðbótar frá Eures, vinnumiðlun á Evrópska efnahagssvæðinu. Kæranda hafi þrátt fyrir það ekki tekist að ráða neinn þessara umsækjenda í umrædd störf og vanti tvo til fjóra starfsmenn til vinnu strax. Af þeim sökum hafi verið óskað eftir atvinnuleyfum fyrir fjóra einstaklinga en umsóknir varðandi tvo þeirra séu enn í umsóknarferli hjá Útlendingastofnun eða Vinnumálastofnun. Í raun vanti kæranda átta til tíu starfsmenn í fullt starf og því haldi leit hans að starfsfólki innan Evrópska efnahagssvæðisins áfram.

Erindi kæranda var sent Vinnumálastofnun til umsagnar með bréfi ráðuneytisins, dags. 11. janúar sl., og barst ráðuneytinu svarbréf stofnunarinnar 5. apríl sl. Í umsögn sinni ítrekar stofnunin afstöðu sína til málsins þess efnis að samkvæmt viðauka B við aðildarsamning EES sé núverandi aðildarríkjum gert að veita ríkisborgurum hinna nýju aðildarríkja, sem gengu til liðs við Evrópusambandið sem og Evrópska efnahagssvæðið 1. maí 2004, forgang fram yfir ríkisborgara annarra ríkja að því er varðar aðgengi að vinnumörkuðum sínum. Því beri að leita aðstoðar vinnumiðlunar á Evrópska efnahagssvæðinu fáist ekki vinnuafl innan lands. Enn fremur bendir stofnunin á að skv. 7. gr. laga nr. 97/2002, um atvinnuréttindi útlendinga, sé heimilt að veita leyfi til að ráða útlendinga til starfa hérlendis að uppfylltum tilteknum skilyrðum, svo sem að kunnáttumenn verði ekki fengnir innan lands eða að atvinnuvegi landsins skorti vinnuafl. Því beri atvinnurekanda að hafa leitað til svæðisvinnumiðlunar eftir vinnuafli áður en Vinnumálastofnun geti veitt atvinnuleyfi.

Í umsögn Vinnumálastofnunar kemur fram að ekki hafi tekist að ráða í umrædd störf með milligöngu Svæðisvinnumiðlunar höfuðborgarsvæðisins. Hins vegar kemur fram að kærandi hafi fengið upplýsingar um að minnsta kosti tuttugu atvinnuleitendur með milligöngu Eures, vinnumiðlunar á Evrópska efnahagssvæðinu, en kærandi hafi talið að enginn þeirra hentaði til að gegna umræddum störfum án þess að færa fullnægjandi rök fyrir þeirri afstöðu sinni að mati stofnunarinnar. Jafnframt kemur fram að Eures, vinnumiðlun á Evrópska efnahagssvæðinu, telji auðvelt að útvega fólk af Evrópska efnahagssvæðinu í ósérhæfð störf hér á landi og að í tilfelli kæranda hafi ekki verið fullreynt að fá starfskraft af því svæði.

Þá vísar stofnunin í umsögn sinni til tveggja úrskurða félagsmálaráðuneytis þar sem vísað hafi verið til þess að kærendur hafi ekki fullreynt að ráða ríkisborgara aðildarríkja að samningnum um Evrópska efnahagssvæðið og að þar með hafi ekki verið sýnt fram á nauðsyn þess að ráða viðkomandi útlendinga til starfa. Telur stofnunin að umræddir úrskurðir hafi fordæmisgildi í því máli sem hér um ræðir.

Með vísan til framangreinds og yfirlýsinga félagsmálaráðherra og dómsmálaráðherra frá 7. september 2005 telur Vinnumálastofnun í umsögn sinni að kærandi hafi ekki reynt til fulls að ráða fólk í umrædd störf annaðhvort innan lands eða af Evrópska efnahagssvæðinu og því hafi stofnuninni borið að synja um umrædd atvinnuleyfi.

Með bréfi, dags. 5. apríl sl., var kæranda gefinn kostur á að gera athugasemdir við umsögn Vinnumálastofnunar. Jafnframt óskaði ráðuneytið eftir nánari upplýsingum um ástæður þess að enginn þeirra umsækjenda sem kærandi hafi fengið upplýsingar um með milligöngu Eures, vinnumiðlunar á Evrópska efnahagssvæðinu, hafi verið talinn hæfur til að gegna umræddum störfum. Svarbréf kæranda barst ráðuneytinu 26. apríl sl. þar sem fram kemur það mat kæranda að þau skilyrði sem sett hafi verið fyrir ráðningu í umrædd störf geti ekki talist óeðlileg. Starfsmenn kæranda starfi á fleiri en einum vinnustað og fái bifreið hjá fyrirtækinu til að ferðast á milli staða og því sé bílpróf nauðsynlegt. Þar sem kærandi starfi fyrir fyrirtæki þar sem trúnaður og þagmælska sé mikilvægur þáttur í starfseminni geri þau fyrirtæki kröfu um að starfsmenn kæranda séu með hreint sakavottorð. Það verði einnig að teljast eðlileg krafa að læknir í heimalandi votti að umsækjandi geti unnið við hreingerningarstörf þar sem starfsmenn kæranda verði að þola þau efni sem unnið er með sem og ryk og önnur óhreinindi. Enn fremur sé mikilvægt að starfsmenn kæranda geti tjáð sig við starfsmenn verkkaupa. Auk framangreinds hafi verið óskað eftir persónuupplýsingum um umsækjendur, upplýsingum um fyrri störf þeirra, tveimur litmyndum, ljósriti af vegabréfi, skólavottorði og meðmælabréfum. Ekki hafi verið talin ástæða til að víkja frá þeim skilyrðum sem starfmenn kæranda þurfi að uppfylla eingöngu vegna þess að starfsfólkið komi erlendis frá heldur þurfi erlendir starfsmenn hans að uppfylla sömu skilyrði og núverandi starfsmenn kæranda.

Fram kemur að tveir einstaklingar hafi sótt um starf hjá kæranda eftir að kærandi hafi auglýst störfin laus til umsóknar á Evrópska efnahagssvæðinu. Annar þeirra hafi hafnað starfinu en hinn hafi ekki getað framvísað heilbrigðisvottorði þar sem hann hafi haft ofnæmi fyrir ryki og frjókornum. Auk umræddra tveggja umsókna hafi Eures, vinnumiðlun á Evrópska efnahagssvæðinu, sent kæranda opnar umsóknir úr gagnagrunni vinnumiðlunarinnar svo og gamlar umsóknir um störf hjá öðrum innlendum atvinnurekendum. Enn fremur kemur fram að raunin hafi alls ekki verið sú að öllum þessum einstaklingum hafi verið neitað um ráðningu hjá kæranda eða að þeir hafi ekki uppfyllt þau skilyrði sem sett hafi verið fyrir ráðningu. Það mat Vinnumálastofnunar að kærandi hafi talið að enginn þeirra umsækjenda sem hann hafi fengið upplýsingar um með milligöngu Eures, vinnumiðlunar á Evrópska efnahagssvæðinu, hafi hentað til að gegna umræddum störfum sé ekki rétt. Eins og fram komi í þeim gögnum er fylgt hafi umræddri kæru hafi verið erfitt að ná sambandi við umrædda umsækjendur. Ítrekað hafi verið sendur tölvupóstur til þeirra en frá 22. desember 2005 hafi afrit af öllum þessum tölvupósti verið send til Eures, vinnumiðlunar á Evrópska efnahagssvæðinu. Fram kemur að kærandi hafi verið í miklu sambandi við vinnumiðlunina og hafi henni verið fullkunnugt um vandamál tengd ráðningu í störf hjá kæranda. Vinnumiðlunin hafi sjálf gefið yfirlýsingu þess efnis að fullreynt væri að fá starfsfólk af Evrópska efnahagssvæðinu, eftir að óskað hafi verið eftir slíkri yfirlýsingu af hálfu Vinnumálastofnunar. Sú yfirlýsing lýsi vel þeim vandamálum sem kærandi hafi staðið frammi fyrir við að ná sambandi við þá aðila sem hann hafi fengið upplýsingar um í gegnum Eures, vinnumiðlun á Evrópska efnahagssvæðinu.

Þá kemur fram að kærandi hafi ráðið einn pólskan starfsmann til starfa frá því umrædd stjórnsýslukæra var send ráðuneytinu. Hins vegar vanti kæranda enn sjö starfsmenn til starfa og því muni hann leita áfram eftir starfsfólki. Tekur kærandi fram að hann hafi leitað eftir starfsfólki á íslenskum vinnumarkaði í rúmlega tvo mánuði og á Evrópska efnahagssvæðinu í rúmlega mánuð áður en óskað hafi verið eftir atvinnuleyfi fyrir ríkisborgara utan Evrópska efnahagssvæðisins. Eftir margra mánaða skort á vinnuafli og mikið vinnuálag á aðra starfsmenn kæranda hafi ekki verið annað úrræði tækt en að leita út fyrir Evrópska efnahagssvæðið eftir starfsfólki.

 

II. Niðurstaða.

Ákvarðanir Vinnumálastofnunar sem teknar eru á grundvelli laga nr. 97/2002, um atvinnuréttindi útlendinga, eru kæranlegar til félagsmálaráðuneytisins, sbr. 24. gr. laganna.

Atvinnuleyfi vegna starfa útlendinga eru veitt í samræmi við lög, reglugerðir settar með heimild í þeim og stefnu íslenskra stjórnvalda hverju sinni að teknu tilliti til alþjóðlegra skuldbindinga þeirra. Samkvæmt a-lið 1. mgr. 7. gr. laga um atvinnuréttindi útlendinga er það gert að skilyrði fyrir veitingu atvinnuleyfis að kunnáttumenn verði ekki fengnir innan lands, atvinnuvegi landsins skorti vinnuafl eða aðrar sérstakar ástæður mæli með veitingu atvinnuleyfis. Þá er tekið fram að áður en atvinnuleyfi er veitt beri atvinnurekanda að hafa leitað til svæðisvinnumiðlunar eftir vinnuafli nema slík leit verði fyrirsjáanlega árangurslaus að mati Vinnumálastofnunar.

Í athugasemdum við 7. gr. frumvarps þess er varð að gildandi lögum um atvinnuréttindi útlendinga kemur fram að ákvæðið sé efnislega samhljóða ákvæðum eldri laga. Þessi skilyrði komu inn sem nýmæli í lög nr. 26/1982, um sama efni. Í athugasemdum við 4. gr. frumvarps þess er varð að þeim lögum kemur fram að færa skuli „rök fyrir nauðsyn þess að nota erlent starfsfólk og gera grein fyrir því hvaða tilraunir hafi verið gerðar til þess að ráða innlent starfsfólk í starfið. Gert er ráð fyrir því að vinnumálaskrifstofa félagsmálaráðuneytisins kanni síðan sjálfstætt áður en atvinnuleyfi er veitt, hvert atvinnuástand er á viðkomandi stað og leiti til sambanda aðila vinnumarkaðarins um almenna stefnumörkun í innflutningi erlends starfsfólks með sérstöku tilliti til atvinnuástands í landinu og á ákveðnum landssvæðum.“Enn fremur var það talið lögbundið hlutverk vinnumálaskrifstofu félagsmálaráðuneytisins að „fylgjast náið með atvinnuástandi í landinu og reyna að koma í veg fyrir atvinnuleysi eftir bestu getu. Rétt þótti því að tengja veitingu atvinnuleyfa vegna erlendra starfsmanna þeim upplýsingum og því starfi sem unnið er á skrifstofunni að öðru leyti hvað varðar atvinnuástand í landinu.“

Verður ekki annað séð en að tilgangur skilyrðis a-liðar 1. mgr. 7. gr. gildandi laga um atvinnuréttindi útlendinga sé í meginatriðum sá sami og áður enda ekkert annað komið fram í lögskýringargögnum. Þá var Vinnumálastofnun falið hlutverk vinnumálaskrifstofu félagsmálaráðuneytisins með lögum nr. 13/1997, um vinnumarkaðsaðgerðir, sbr. einnig lög nr. 55/2006, um sama efni. Með síðarnefndu lögunum voru svæðisvinnumiðlanir lagðar niður en skv. 10. gr. laganna var Vinnumálastofnun falið hlutverk þeirra. Af efni ákvæðis a-liðar 1. mgr. 7. gr. laga um atvinnuréttindi útlendinga má því ráða að mat Vinnumálastofnunar um hvort skilyrði þess fyrir veitingu tímabundinna atvinnuleyfa sé fullnægt skuli aðallega byggjast á aðstæðum á innlendum vinnumarkaði hverju sinni. Þar á meðal er átt við hið lögbundna hlutverk Vinnumálastofnunar að meta hvort leit atvinnurekanda að starfsmanni, sem þegar hefur aðgengi að íslenskum vinnumarkaði, sé fyrirsjáanlega árangurslaus og þar með ekki nauðsynlegt skilyrði fyrir veitingu tímabundins atvinnuleyfis.

Í nóvember 2005 voru að meðaltali 2.247 einstaklingar á atvinnuleysisskrá hér á landi samkvæmt upplýsingum frá Vinnumálastofnun, sbr. yfirlit stofnunarinnar yfir atvinnuástand, nr. 11/2005, en það jafngildir 1,5% af áætlun efnahagsskrifstofu fjármálaráðuneytis um mannafla á vinnumarkaði á þeim tíma. Á sama tíma var atvinnuleysi á höfuðborgarsvæðinu 1,4% af áætluðum mannafla sem svarar til 1.313 einstaklinga að meðaltali.

Í máli þessu taldi Vinnumálastofnun meginreglu ákvæðis a-liðar 1. mgr. 7. gr. laga um atvinnuréttindi útlendinga eiga við og því nauðsynlegt skilyrði fyrir veitingu atvinnuleyfis að umsækjandi hefði áður leitað aðstoðar svæðisvinnumiðlunar. Í ljósi þess að ekki er um sérhæfð störf að ræða verður ekki annað séð en að mat Vinnumálastofnunar um að atvinnurekanda hafi borið að leita til vinnumiðlunarinnar eftir starfsfólki á innlendum vinnumarkaði hafi byggst á málefnalegum sjónarmiðum þrátt fyrir tiltölulega lítið atvinnuleysi hér á landi í nóvember 2005.

Við mat á því hvort skilyrðum a-liðar 1. mgr. 7. gr. laga um atvinnuréttindi útlendinga sé fullnægt ber Vinnumálastofnun jafnframt að líta til skuldbindinga íslenskra stjórnvalda samkvæmt samningnum um Evrópska efnahagssvæðið, sbr. 2. gr. laga nr. 97/2002, um atvinnuréttindi útlendinga, og b-lið 1. mgr. 9. gr. reglugerðar nr. 339/2005, um atvinnuréttindi útlendinga. Með samningnum um Evrópska efnahagssvæðið hafa íslensk stjórnvöld skuldbundið sig til að skapa skilyrði fyrir fulla atvinnu, bætt lífskjör og bætt starfsskilyrði á Evrópska efnahagssvæðinu, sbr. einnig lög nr. 2/1993, um Evrópska efnahagssvæðið, með síðari breytingum. Ákvæði 28.–30. gr. samningsins um Evrópska efnahagssvæðið fjalla síðan sérstaklega um frjálsa för launafólks sem nánar eru útfærð í gerðum um þetta efni og hafa verið felldar undir V. viðauka við samninginn. Samkvæmt reglugerð nr. 1612/68/EBE, um frelsi launþega til flutninga innan Evrópska efnahagssvæðisins, sem innleidd var í íslenskan rétt með lögum nr. 47/1993, um frjálsan atvinnu- og búseturétt launafólks innan Evrópska efnahagssvæðisins, skal sérhver ríkisborgari annars aðildarríkis njóta þeirra réttinda að ráða sig til vinnu á yfirráðasvæði annars aðildarríkis með sama forgangsrétti og ríkisborgarar þess ríkis. Er þar jafnframt kveðið á um náið samstarf vinnumiðlana aðildarríkjanna um miðlun lausra starfa innan svæðisins. Það telst því felast í skuldbindingum íslenskra stjórnvalda samkvæmt framangreindum samningi að þau veiti launamönnum sem eru ríkisborgarar annarra aðildarríkja innan Evrópska efnahagssvæðisins forgang fram yfir ríkisborgara ríkja utan svæðisins að því er varðar aðgengi að innlendum vinnumarkaði.

Stækkun Evrópska efnahagssvæðisins tók gildi 1. maí 2004 er tíu ríki gerðust aðilar að samningnum um Evrópska efnahagssvæðið til viðbótar þeim sem fyrir voru, sbr. aðildarsamning EES. Þessi ríki voru Eistland, Lettland, Litháen, Kýpur, Malta, Pólland, Slóvakía, Slóvenía, Tékkland og Ungverjaland. Reglum samningsins er í meginatriðum ætlað að gilda á öllu svæðinu en gerður var fyrirvari um gildistöku ákvæða 1.–6. gr. reglugerðar nr. 1612/68/EBE, um frelsi launþega til flutninga innan Evrópska efnahagssvæðisins, með síðari breytingum. Samningarnir um inngöngu Eistlands, Lettlands, Litháens, Póllands, Slóvakíu, Slóveníu, Tékklands og Ungverjalands í Evrópska efnahagssvæðið gerðu því ekki ráð fyrir að þau ákvæði giltu fyrst um sinn að því er varðar frjálsa för ríkisborgara þessara landa sem launamanna innan svæðisins. Íslensk stjórnvöld nýttu sér þennan fyrirvara með lögum nr. 19/2004, um breytingu á lögum nr. 47/1993, um frjálsan atvinnu- og búseturétt launafólks innan Evrópska efnahagssvæðisins, og lögum nr. 97/2002, um atvinnuréttindi útlendinga, með síðari breytingum.

Þrátt fyrir að sækja hafi þurft um atvinnuleyfi og dvalarleyfi fyrir ríkisborgara framangreindra aðildarríkja fram til 1. maí 2006 skuldbundu stjórnvöld sig eigi síður til að veita launamönnum sem eru ríkisborgarar hinna nýju aðildarríkja forgang fram yfir ríkisborgara ríkja utan svæðisins að því er varðar aðgengi að vinnumarkaði sínum á aðlögunartímabilinu, sbr. viðauka B við aðildarsamning EES, sem lögfestur var með lögum nr. 8/2004, um breytingu á lögum um Evrópska efnahagssvæðið, nr. 2/1993, með síðari breytingum. Sá forgangur var enn frekar undirstrikaður með lögum nr. 21/2006, um breytingu á lögum nr. 47/1993, um frjálsan atvinnu- og búseturétt launafólks innan Evrópska efnahagssvæðisins, og lögum nr. 97/2002, um atvinnuréttindi útlendinga, sem tóku gildi 1. maí 2006 en með þeim var ríkisborgurum framangreindra ríkja veitt heimild til frjálsrar atvinnuleitar hér á landi og til að ráða sig til starfa án sérstakra atvinnuleyfa. Þar með njóta ríkisborgarar þessara ríkja réttinda til að ráða sig til starfa hér á landi með sama forgangsrétti og íslenskir ríkisborgarar.

Stjórnvöld leggja því ríka áherslu á að í þeim tilvikum er vinnuafl skortir á innlendum vinnumarkaði þá leiti atvinnurekendur eftir starfsfólki á hinum sameiginlega vinnumarkaði Evrópska efnahagssvæðisins áður en leitað er út fyrir svæðið eftir launafólki. Á það ekki síst við í ljósi skuldbindinga stjórnvalda um miðlun lausra starfa innan svæðisins sem og langtímaáhrifa veitingar tímabundinna atvinnuleyfa á innlendan vinnumarkað, sbr. c-lið 1. mgr. 9. gr. reglugerðar nr. 339/2005, um atvinnuréttindi útlendinga. Það er því niðurstaða ráðuneytisins að það sé nauðsynlegt skilyrði fyrir veitingu tímabundins atvinnuleyfis að umsækjandi hafi áður leitað aðstoðar Vinnumálastofnunar við leit að starfsfólki innan Evrópska efnahagssvæðisins með milligöngu Eures, vinnumiðlunar á Evrópska efnahagssvæðinu, eftir að leit hans innan lands hefur ekki skilað árangri. Jafnframt eru gerðar ríkar kröfur til atvinnurekanda svo talið verði fullreynt að finna starfsfólk með aðstoð stofnunarinnar sem þegar hefur aðgengi að innlendum vinnumarkaði.

Framangreindar kröfur eiga ekki síst við þegar ráða á starfsfólk í ósérhæfð störf. Ráða má af umsókn kæranda um atvinnuleyfi fyrir umrædda útlendinga og ráðningarsamningum er fylgdu fyrrnefndri umsókn um atvinnuleyfi að um slík störf sé að ræða í máli þessu því fram kemur að um sé að ræða störf við hreingerningar. Í gögnum málsins kemur fram að kærandi hafi frá því í september 2005 leitað að starfsfólki bæði á Íslandi og af Evrópska efnahagssvæðinu meðal annars með auglýsingu í Fréttablaðinu, á netinu og með milligöngu Vinnumálastofnunar. Sú leit hafi hins vegar ekki borið árangur. Þá kemur fram í umsögn Vinnumálastofnunar að Eures, vinnumiðlun á Evrópska efnahagssvæðinu, telji auðvelt að útvega fólk af því svæði í ósérhæfð störf hér á landi og að í tilfelli kæranda hafi ekki verið fullreynt að fá starfsfólk af því svæði. Þessu mótmælir kærandi og bendir máli sínu til stuðnings á að hann hafi reynt að ráða í umrædd störf úr hópi þeirra atvinnuleitenda sem hann fékk vitneskju um með milligöngu Vinnumálastofnunar. Það hafi hins vegar ekki tekist þar sem umræddir atvinnuleitendur hafi margir hverjir ekki uppfyllt þau skilyrði sem sett hafi verið fyrir ráðningu og að þeir sem uppfyllt hafi umrædd skilyrði hafi ýmist ekki viljað starf þegar til átti að taka eða erfitt hafi reynst fyrir kæranda að ná í viðkomandi.

Fullyrðing kæranda þess efnis að honum hafi reynst erfitt að ráða fólk af Evrópska efnahagssvæðinu í laus störf fer ekki saman við þá reynslu sem fengist hefur á innlendum vinnumarkaði. Fjöldi ríkisborgara ríkja innan Evrópska efnahagssvæðisins hefur ráðið sig til starfa hér á landi á undanförnum tveimur árum en á árinu 2005 voru 2.765 launamenn frá nýju aðildarríkjunum ráðnir til starfa hjá atvinnurekendum á innlendum vinnumarkaði og voru flestir þeirra ráðnir í ósérhæfð störf. Nokkur hreyfanleiki hefur því verið meðal ríkisborgara hinna nýju aðildarríkja að samningnum um Evrópska efnahagssvæðið enda atvinnuleysi þar nokkuð. Þegar litið er til reynslunnar, skuldbindinga íslenskra stjórnvalda samkvæmt samningnum um Evrópska efnahagssvæðið, samanber lög um frjálsan atvinnu- og búseturétt launafólks innan Evrópska efnahagssvæðisins, og gagna málsins í heild er það mat ráðuneytisins að í máli þessu hafi ekki verið nægjanlega sýnt fram á að fullreynt hafi verið að ráða einstakling í starfið af Evrópska efnahagssvæðinu, sem þegar hefur aðgengi að innlendum vinnumarkaði.

Þá kemur fram í gögnum málsins að í auglýsingu þeirri sem birt var á Evrópska efnahagssvæðinu með milligöngu Vinnumálastofnunar hafi komið fram þau skilyrði fyrir ráðningu í störfin að viðkomandi hefði bílpróf, hreint sakavottorð, heilbrigðisvottorð og kunnáttu í ensku. Enn fremur kemur fram að kærandi hafi óskað eftir ýmsum persónuupplýsingum um umsækjendur svo sem upplýsingum um fyrri störf þeirra, meðmælabréfum frá þremur fyrrverandi atvinnurekendum, skólaskírteinum og fleiru. Í gögnum málsins er einungis að finna upplýsingar um enskukunnáttu umræddra útlendinga án þess að sú kunnátta sé studd frekari gögnum en að öðru leyti er ekki finna neitt í gögnum málsins sem staðfestir að umræddir útlendingar uppfylli þau skilyrði sem kærandi setur fyrir ráðningu. Hins vegar kemur fram að sá einstaklingur sem tilgreindur er í ráðningarsamningi kæranda við umrædda útlendinga sem nánasti aðstandandi þeirra er jafnframt framkvæmdastjóri kæranda. Ráðuneytið hefur almennt litið svo á að fjölskyldutengsl útlendinga við fólk hér á landi teljist ekki til málefnalegra sjónarmiða sem réttlæta að atvinnurekendur geti haft sérstakan hag af því að ráða tiltekinn útlending til starfa. Það er álit ráðuneytisins að hið sama eigi við í máli þessu enda um að ræða hefðbundin ósérhæfð störf.

Með vísan til framangreinds er það því niðurstaða ráðuneytisins að skilyrðum laga um atvinnuréttindi útlendinga um veitingu tímabundins atvinnuleyfis sé ekki fullnægt í máli þessu.

Uppkvaðning úrskurðar þessa hefur dregist vegna mikilla anna í ráðuneytinu.

 

Ú R S K U R Ð A R O R Ð:

 

Synjanir Vinnumálastofnunar, dags. 19. desember 2005, á veitingu atvinnuleyfa til handa A ehf. í því skyni að ráða til starfa B og C, sem eru filippseyskir ríkisborgarar, skal standa.

 

Fyrir hönd ráðherra

 

Sesselja Árnadóttir

Bjarnheiður Gautadóttir




Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta