Hoppa yfir valmynd
Úrskurðir velferðarráðuneytisins 2011-2018

Synjun Vinnumálastofnunar frá 12. júní 2006 staðfest

Miðvikudaginn 28. mars 2007 var í félagsmálaráðuneytinu kveðinn upp svohljóðandi

ú r s k u r ð u r:

Með erindi, dags. 3. júlí 2006, kærði A, bæjarlögmaður B, fyrir hönd B, ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 12. júní 2006, um synjun á veitingu atvinnuleyfis fyrir C, sem er búlgarskur ríkisborgari.

 

I. Málavextir og málsástæður.

Mál þetta varðar synjun Vinnumálastofnunar á veitingu atvinnuleyfis til handa B í því skyni að ráða til starfa C, sem er búlgarskur ríkisborgari. Vinnumálastofnun synjaði um veitingu atvinnuleyfisins með vísan til a-liðar 1. mgr. 7. gr. laga nr. 97/2002, um atvinnuréttindi útlendinga.

Þeirri ákvörðun vildi kærandi ekki una og kærði hana til ráðuneytisins. Í erindi kæranda kemur fram að illa hafi gengið að ráða í laus störf í umræddri íþróttamiðstöð en auglýst hafi verið eftir starfsfólki í blöðum og á netinu auk þess sem leitað hafi verið til vinnumiðlana. Í kjölfarið hafi nokkrir erlendir ríkisborgarar sótt um laus störf en enginn þeirra hafi verið ráðinn þar sem þeir hafi ekki haft kunnáttu í íslensku en að mati kæranda er íslenskukunnátta starfsmanna á umræddum vinnustað nauðsynleg. Því hafi verið farin sú leið að ráða umræddan útlending til starfa og hafi hann hafið störf hjá kæranda í apríl 2006. Að sögn kæranda skilur umræddur útlendingur íslensku vel og talar hana ágætlega en hann býr hjá systur sinni sem búsett er hér á landi ásamt eiginmanni sínum. Að sögn kæranda hefur umræddur útlendingur lagt hart að sér við að læra íslensku með hjálp systur sinnar sem er tungumálakennari.

Erindi kæranda var sent Vinnumálastofnun til umsagnar með bréfi ráðuneytisins, dags. 4. júlí 2006. Þann 24. júlí barst ráðuneytinu bréf frá Vinnumálastofnun þar sem fram kemur að vegna mikilla anna hjá stofnuninni óski stofnunin eftir lengri fresti til að veita ráðuneytinu umsögn í umræddu máli. Með bréfi ráðuneytisins, dags. 31. júlí 2006, var Vinnumálastofnun veittur frestur til 15. ágúst 2006 til að veita ráðuneytinu umbeðna umsögn. Með bréfi til Vinnumálastofnunar, dags. 4. september 2006, ítrekaði ráðuneytið fyrri beiðni sína þess efnis að stofnunin veitti ráðuneytinu umsögn vegna umræddrar stjórnsýslukæru og barst ráðuneytinu svarbréf stofnunarinnar 11. september 2006.

Í umsögn sinni ítrekar Vinnumálastofnun afstöðu sína til málsins þess efnis að samkvæmt viðauka B við aðildarsamning EES sé núverandi aðildarríkjum gert að veita ríkisborgurum hinna nýju aðildarríkja, sem gengu til liðs við Evrópusambandið sem og Evrópska efnahagssvæðið 1. maí 2004, forgang fram yfir ríkisborgara annarra ríkja að því er varðar aðgengi að vinnumörkuðum sínum. Því beri að leita aðstoðar vinnumiðlunar á Evrópska efnahagssvæðinu fáist ekki vinnuafl innan lands. Enn fremur bendir stofnunin á að skv. 7. gr. laga nr. 97/2002, um atvinnuréttindi útlendinga, sé heimilt að veita leyfi til að ráða útlendinga til starfa hérlendis að uppfylltum tilteknum skilyrðum, svo sem að kunnáttumenn verði ekki fengnir innan lands eða að atvinnuvegi landsins skorti vinnuafl. Því beri atvinnurekanda að hafa leitað til svæðisvinnumiðlunar eftir vinnuafli áður en Vinnumálastofnun geti veitt atvinnuleyfi.

Fram kemur í umsögn Vinnumálastofnunar að kærandi hafi í mars 2006 óskað eftir aðstoð Svæðisvinnumiðlunar höfuðborgarsvæðisins við leit að starfsmanni við baðvörslu í sundlaug og íþróttahúsi ásamt afgreiðslu sem og eftirlit með skólabörnum og öðrum gestum auk léttra þrifa. Enn fremur kemur fram að kærandi hafi ekki óskað eftir aðstoð EES vinnumiðlunar við leit að starfsmanni í umrætt starf. Þá kemur fram að fjöldi fólks af Evrópska efnahagssvæðinu leiti til EES vinnumiðlunarinnar á hverjum degi en vinnumiðlunin telji auðvelt að finna starfsfólk af því svæði í ósérhæfð störf hér á landi og að í máli þessu hafi ekki verið fullreynt að fá starfmann af því svæði.

Þá vísar stofnunin í umsögn sinni til tveggja úrskurða félagsmálaráðuneytisins þar sem vísað hafi verið til þess að kærendur hafi ekki fullreynt að ráða ríkisborgara aðildarríkja að samningnum um Evrópska efnahagssvæðið og þar með hafi ekki verið sýnt fram á nauðsyn þess að ráða umrædda útlendinga til starfa. Telur stofnunin að umræddir úrskurðir hafi fordæmisgildi í því máli sem hér um ræðir.

Með vísan til framangreinds og yfirlýsinga félagsmálaráðherra og dómsmálaráðherra frá 7. september 2005 telur Vinnumálastofnun í umsögn sinni að kærandi hafi ekki reynt til fulls að ráða starfsmann í umrætt starf annaðhvort innan lands eða af Evrópska efnahagssvæðinu og því hafi stofnuninni borið að synja um umrætt atvinnuleyfi.

Með bréfi, dags. 13. september 2006, var kæranda gefinn kostur á að gera athugasemdir við umsögn Vinnumálastofnunar og var frestur veittur til 27. september 2006. Í svarbréfi kæranda, sem barst ráðuneytinu 20. september 2006, kemur fram að kærandi hafi ekki auglýst eftir starfsmanni með aðstoð EES vinnumiðlunar þar sem kærandi telur að hann geti ekki ráðið einstakling í umrætt starf sem ekki hafi sæmilega gott vald á íslensku. Umræddur starfskraftur verði að geta haft lágmarks samskipti við gesti íþróttamiðstöðvarinnar og sundlaugarinnar til þess að fullnægja þjónustu- og öryggisþáttum en verulegur hluti umrædds starfs sé við öryggisgæslu. Að mati kæranda uppfylli atvinnuleitendur af Evrópska efnahagssvæðinu hins vegar ekki þær kröfur sem gera verði til valds á íslenskri tungu. Þá kemur fram að umræddur útlendingur hafi nú gegnt umræddu starfi í talsvert langan tíma og hafi reynsla kæranda af störfum hans verið mjög góð. Af þeim sökum og með vísan til aðstæðna umrædds útlendings að öðru leyti leggur kærandi þunga áhersla á að honum verði veitt atvinnuleyfi hér á landi.

 

II. Niðurstaða.

Ákvarðanir Vinnumálastofnunar sem teknar eru á grundvelli laga nr. 97/2002, um atvinnuréttindi útlendinga, eru kæranlegar til félagsmálaráðuneytisins, sbr. 24. gr. laganna.

Atvinnuleyfi vegna starfa útlendinga eru veitt í samræmi við lög, reglugerðir settar með heimild í þeim og stefnu íslenskra stjórnvalda hverju sinni að teknu tilliti til alþjóðlegra skuldbindinga þeirra. Samkvæmt a-lið 1. mgr. 7. gr. laga um atvinnuréttindi útlendinga er það gert að skilyrði fyrir veitingu atvinnuleyfis að kunnáttumenn verði ekki fengnir innan lands, atvinnuvegi landsins skorti vinnuafl eða aðrar sérstakar ástæður mæli með veitingu atvinnuleyfis. Þá er tekið fram að áður en atvinnuleyfi er veitt beri atvinnurekanda að hafa leitað til svæðisvinnumiðlunar eftir vinnuafli nema slík leit verði fyrirsjáanlega árangurslaus að mati Vinnumálastofnunar.

Í athugasemdum við 7. gr. frumvarps þess er varð að gildandi lögum um atvinnuréttindi útlendinga kemur fram að ákvæðið sé efnislega samhljóða ákvæðum eldri laga. Þessi skilyrði komu inn sem nýmæli í lög nr. 26/1982, um sama efni. Í athugasemdum við 4. gr. frumvarps þess er varð að þeim lögum kemur fram að færa skuli „rök fyrir nauðsyn þess að nota erlent starfsfólk og gera grein fyrir því hvaða tilraunir hafi verið gerðar til þess að ráða innlent starfsfólk í starfið. Gert er ráð fyrir því að vinnumálaskrifstofa félagsmálaráðuneytisins kanni síðan sjálfstætt áður en atvinnuleyfi er veitt, hvert atvinnuástand er á viðkomandi stað og leiti til sambanda aðila vinnumarkaðarins um almenna stefnumörkun í innflutningi erlends starfsfólks með sérstöku tilliti til atvinnuástands í landinu og á ákveðnum landssvæðum.“ Enn fremur var það talið lögbundið hlutverk vinnumálaskrifstofu félagsmálaráðuneytisins að „fylgjast náið með atvinnuástandi í landinu og reyna að koma í veg fyrir atvinnuleysi eftir bestu getu. Rétt þótti því að tengja veitingu atvinnuleyfa vegna erlendra starfsmanna þeim upplýsingum og því starfi sem unnið er á skrifstofunni að öðru leyti hvað varðar atvinnuástand í landinu.“

Verður ekki annað séð en að tilgangur skilyrðis a-liðar 1. mgr. 7. gr. gildandi laga um atvinnuréttindi útlendinga sé í meginatriðum sá sami og áður enda ekkert annað komið fram í lögskýringargögnum. Þá var Vinnumálastofnun falið hlutverk vinnumálaskrifstofu félagsmálaráðuneytisins með lögum nr. 13/1997, um vinnumarkaðsaðgerðir, sbr. einnig lög nr. 55/2006, um sama efni. Með síðarnefndu lögunum voru svæðisvinnumiðlanir lagðar niður en skv. 10. gr. laganna var Vinnumálastofnun falið hlutverk þeirra. Af efni ákvæðis a-liðar 1. mgr. 7. gr. laga um atvinnuréttindi útlendinga má því ráða að mat Vinnumálastofnunar um hvort skilyrði þess fyrir veitingu tímabundinna atvinnuleyfa sé fullnægt skuli aðallega byggjast á aðstæðum á innlendum vinnumarkaði hverju sinni. Þar á meðal er átt við hið lögbundna hlutverk Vinnumálastofnunar að meta hvort leit atvinnurekanda að starfsmanni, sem þegar hefur aðgengi að íslenskum vinnumarkaði, sé fyrirsjáanlega árangurslaus og þar með ekki nauðsynlegt skilyrði fyrir veitingu tímabundins atvinnuleyfis.

Í maí 2006 voru að meðaltali 2.062 einstaklingar á atvinnuleysisskrá hér á landi samkvæmt upplýsingum frá Vinnumálastofnun, sbr. yfirlit stofnunarinnar yfir atvinnuástand, nr. 5/2006, en það jafngildir 1,3% af áætlun efnahagsskrifstofu fjármálaráðuneytis um mannafla á vinnumarkaði á þeim tíma. Á sama tíma var atvinnuleysi á höfuðborgarsvæðinu 1,2% af áætluðum mannafla sem svarar til 1.222 einstaklinga að meðaltali.

Í máli þessu taldi Vinnumálastofnun meginreglu ákvæðis a-liðar 1. mgr. 7. gr. laga um atvinnuréttindi útlendinga eiga við og því nauðsynlegt skilyrði fyrir veitingu atvinnuleyfis að umsækjandi hefði áður leitað aðstoðar svæðisvinnumiðlunar. Í ljósi þess að ekki er um sérhæft starf að ræða verður ekki annað séð en að mat Vinnumálastofnunar um að kæranda hafi borið að leita til vinnumiðlunarinnar eftir starfsfólki á innlendum vinnumarkaði hafi byggst á málefnalegum sjónarmiðum þrátt fyrir tiltölulega lítið atvinnuleysi hér á landi í maí 2006.

Við mat á því hvort skilyrðum a-liðar 1. mgr. 7. gr. laga um atvinnuréttindi útlendinga sé fullnægt ber Vinnumálastofnun jafnframt að líta til skuldbindinga íslenskra stjórnvalda samkvæmt samningnum um Evrópska efnahagssvæðið, sbr. 2. gr. laga nr. 97/2002, um atvinnuréttindi útlendinga, og b-lið 1. mgr. 9. gr. reglugerðar nr. 339/2005, um atvinnuréttindi útlendinga. Með samningnum um Evrópska efnahagssvæðið hafa íslensk stjórnvöld skuldbundið sig til að skapa skilyrði fyrir fulla atvinnu, bætt lífskjör og bætt starfsskilyrði á Evrópska efnahagssvæðinu, sbr. einnig lög nr. 2/1993, um Evrópska efnahagssvæðið, með síðari breytingum. Ákvæði 28.–30. gr. samningsins um Evrópska efnahagssvæðið fjalla síðan sérstaklega um frjálsa för launafólks sem nánar eru útfærð í gerðum um þetta efni og hafa verið felldar undir V. viðauka við samninginn. Samkvæmt reglugerð nr. 1612/68/EBE, um frelsi launþega til flutninga innan Evrópska efnahagssvæðisins, sem innleidd var í íslenskan rétt með lögum nr. 47/1993, um frjálsan atvinnu- og búseturétt launafólks innan Evrópska efnahagssvæðisins, skal sérhver ríkisborgari annars aðildarríkis njóta þeirra réttinda að ráða sig til starfa á yfirráðasvæði annars aðildarríkis með sama forgangsrétti og ríkisborgarar þess ríkis. Er þar jafnframt kveðið á um náið samstarf vinnumiðlana aðildarríkjanna um miðlun lausra starfa innan svæðisins. Það telst því felast í skuldbindingum íslenskra stjórnvalda samkvæmt framangreindum samningi að þau veiti launamönnum sem eru ríkisborgarar annarra aðildarríkja innan Evrópska efnahagssvæðisins forgang fram yfir ríkisborgara ríkja utan svæðisins að því er varðar aðgengi að innlendum vinnumarkaði.

Stækkun Evrópska efnahagssvæðisins tók gildi 1. maí 2004 er tíu ríki gerðust aðilar að samningnum um Evrópska efnahagssvæðið til viðbótar þeim sem fyrir voru, sbr. aðildarsamning EES. Þessi ríki voru Eistland, Lettland, Litháen, Kýpur, Malta, Pólland, Slóvakía, Slóvenía, Tékkland og Ungverjaland. Reglum samningsins er í meginatriðum ætlað að gilda á öllu svæðinu en gerður var fyrirvari um gildistöku ákvæða 1.–6. gr. reglugerðar nr. 1612/68/EBE, um frelsi launþega til flutninga innan Evrópska efnahagssvæðisins, með síðari breytingum. Samningarnir um inngöngu Eistlands, Lettlands, Litháens, Póllands, Slóvakíu, Slóveníu, Tékklands og Ungverjalands í Evrópska efnahagssvæðið gerðu því ekki ráð fyrir að þau ákvæði giltu fyrst um sinn að því er varðar frjálsa för ríkisborgara þessara ríkja sem launamanna innan svæðisins. Íslensk stjórnvöld nýttu sér þennan fyrirvara með lögum nr. 19/2004, um breytingu á lögum nr. 47/1993, um frjálsan atvinnu- og búseturétt launafólks innan Evrópska efnahagssvæðisins, og lögum nr. 97/2002, um atvinnuréttindi útlendinga, með síðari breytingum.

Þrátt fyrir að sækja hafi þurft um atvinnuleyfi og dvalarleyfi fyrir ríkisborgara framangreindra aðildarríkja fram til 1. maí 2006 skuldbundu stjórnvöld sig eigi síður til að veita launamönnum sem eru ríkisborgarar hinna nýju aðildarríkja forgang fram yfir ríkisborgara ríkja utan svæðisins að því er varðar aðgengi að vinnumarkaði sínum á aðlögunartímabilinu, sbr. viðauka B við aðildarsamning EES, sem lögfestur var með lögum nr. 8/2004, um breytingu á lögum um Evrópska efnahagssvæðið, nr. 2/1993, með síðari breytingum. Sá forgangur var enn frekar undirstrikaður með lögum nr. 21/2006, um breytingu á lögum nr. 47/1993, um frjálsan atvinnu- og búseturétt launafólks innan Evrópska efnahagssvæðisins, og lögum nr. 97/2002, um atvinnuréttindi útlendinga, sem tóku gildi 1. maí 2006 en með þeim var ríkisborgurum framangreindra ríkja veitt heimild til frjálsrar atvinnuleitar hér á landi og til að ráða sig til starfa án sérstakra atvinnuleyfa. Þar með njóta ríkisborgarar þessara ríkja réttinda til að ráða sig til starfa hér á landi með sama forgangsrétti og íslenskir ríkisborgarar.

Stjórnvöld leggja því ríka áherslu á að í þeim tilvikum er vinnuafl skortir á innlendum vinnumarkaði þá leiti atvinnurekendur eftir starfsfólki á hinum sameiginlega vinnumarkaði Evrópska efnahagssvæðisins áður en leitað er út fyrir svæðið eftir launafólki. Á það ekki síst við í ljósi skuldbindinga stjórnvalda um miðlun lausra starfa innan svæðisins sem og langtímaáhrifa veitingar tímabundinna atvinnuleyfa á innlendan vinnumarkað, sbr. c-lið 1. mgr. 9. gr. reglugerðar nr. 339/2005, um atvinnuréttindi útlendinga. Það er því niðurstaða ráðuneytisins að það sé nauðsynlegt skilyrði fyrir veitingu tímabundins atvinnuleyfis að umsækjandi hafi áður leitað aðstoðar Vinnumálastofnunar við leit að starfsfólki innan Evrópska efnahagssvæðisins með milligöngu Eures, vinnumiðlunar á Evrópska efnahagssvæðinu, eftir að leit hans innan lands hefur ekki skilað árangri. Jafnframt eru gerðar ríkar kröfur til atvinnurekanda svo talið verði fullreynt að finna starfsfólk með aðstoð stofnunarinnar sem þegar hefur aðgengi að innlendum vinnumarkaði.

Í gögnum málsins kemur fram að kærandi hafi óskað eftir aðstoð Svæðisvinnumiðlunar höfuðborgarsvæðisins við leit að starfsfólki auk þess sem hann hafi auglýst eftir starfsfólki í dagblöðum og á netinu. Í kjölfarið hafi nokkrir erlendir ríkisborgarar sótt um laus störf en enginn þeirra hafi verið ráðinn til starfa þar sem þeir hafi ekki haft kunnáttu í íslensku en að mati kæranda er íslenskukunnátta starfsmanna hans nauðsynleg. Samkvæmt þeim upplýsingum sem ráðuneytið hefur aflað sér verður þó ekki séð að fram hafi komið í auglýsingum kæranda eða beiðni hans til Svæðisvinnumiðlunar höfuðborgarsvæðisins um aðstoð við leit að starfsmanni að kunnátta í íslensku væri skilyrði fyrir ráðningu.

Ráðuneytið hefur aflað upplýsinga hjá Vinnumálastofnun varðandi aðkomu stofnunarinnar við leit að starfsfólki í sambærileg störf og hér um ræðir. Samkvæmt þeim upplýsingum aðstoða Svæðisvinnumiðlun höfuðborgarsvæðisins og Eures, vinnumiðlun á Evrópska efnahagssvæðinu, almennt við leit atvinnurekenda að starfsfólki til að gegna sambærilegum störfum og hér um ræðir en til að tryggja öryggi eins og unnt er hafi þeir starfsmenn sem ráðnir hafa verið með milligöngu vinnumiðlananna annaðhvort haft kunnáttu í íslensku eða ensku. Að mati ráðuneytisins verður ekki séð að kæranda beri að gera ríkari kröfur til sinna starfsmanna hvað varðar kunnáttu í íslensku en aðrir atvinnurekendur gera með tilliti til öryggis í tengslum við sambærileg störf. Af umsókn kæranda um umrætt atvinnuleyfi má hins vegar ráða að útlendingurinn sem hér um ræðir hafi kunnáttu í búlgörsku, rússnesku og pólsku en hvorki í ensku né íslensku.

Enn fremur hefur Svæðisvinnumiðlun höfuðborgarsvæðisins upplýst ráðuneytið um að kærandi hafi síðast í febrúar 2007 óskað eftir aðstoð Svæðisvinnumiðlunar höfuðborgarsvæðisins við leit að starfsmanni. Í kjölfarið hafi meðal annars íslenskur atvinnuleitandi óskað eftir starfi hjá kæranda en hann hafi hins vegar ekki verið ráðinn. Þá kemur fram í gögnum málsins að Eures, vinnumiðlun á Evrópska efnahagssvæðinu, telji auðvelt að finna starfsfólk af því svæði í ósérhæfð störf hér á landi og að í máli þessu hafi ekki verið fullreynt að fá starfmann af því svæði þar sem kærandi hafi ekki óskað eftir aðstoð vinnumiðlunarinnar við leit að starfsfólki. Beiðni um aðstoð Vinnumálastofnunar við leit að starfsfólki sem þegar hefur aðgengi að innlendum vinnumarkaði er lögbundið skilyrði fyrir veitingu atvinnuleyfis enda telji stofnunin leitina ekki fyrirsjáanlega árangurslausa. Það er mat ráðuneytisins að umrætt skilyrði eigi við í máli þessu og geta þá ótilgreindar atvinnuauglýsingar í dagblöðum eða á netinu ekki leyst atvinnurekendur undan hinu lögbundna skilyrði. Jafnframt er það mat ráðuneytisins að atvinnuauglýsingar í dagblöðum eða á netinu verði ekki lagðar að jöfnu við leit atvinnurekanda að starfsfólki af Evrópska efnahagssvæðinu með milligöngu Eures, vinnumiðlunar á Evrópska efnahagssvæðinu.

Reynslan hefur sýnt að nokkur hreyfanleiki er meðal ríkisborgara hinna nýju aðildarríkja að samningnum um Evrópska efnahagssvæðið enda atvinnuleysi þar nokkuð. Fjöldi ríkisborgara þessara ríkja hefur ráðið sig til starfa hér á landi á undanförnum tveimur árum en á árinu 2005 voru 2.765 launamenn frá nýju aðildarríkjunum ráðnir til starfa hjá atvinnurekendum á innlendum vinnumarkaði en á tímabilinu janúar til maí 2006 var um að ræða 2.270 launamenn. Flestir þessara launamanna voru ráðnir í ósérhæfð störf hér á landi. Þegar litið er til reynslunnar, skuldbindinga íslenskra stjórnvalda samkvæmt samningnum um Evrópska efnahagssvæðið, samanber lög um frjálsan atvinnu- og búseturétt launafólks innan Evrópska efnahagssvæðisins, og gagna málsins í heild er það mat ráðuneytisins að í máli þessu hafi ekki verið nægjanlega sýnt fram á að fullreynt hafi verið að ráða einstakling í starfið af Evrópska efnahagssvæðinu, sem þegar hefur aðgengi að innlendum vinnumarkaði.

Samkvæmt ákvæði a-liðar 1. mgr. 7. gr. laganna um atvinnuréttindi útlendinga geta aðrar sérstakar ástæður en þær sem taldar eru upp í ákvæðinu mælt með leyfisveitingu. Í erindi kæranda til ráðuneytisins kemur fram að útlendingurinn sem sótt er um atvinnuleyfi fyrir eigi systur sem búsett er hér á landi. Það er álit ráðuneytisins að fjölskyldutengsl útlendings við fólk sem býr hér á landi verði ekki talin til málefnalegra sjónarmiða sem réttlæta að atvinnurekandi geti haft sérstakan hag af því að ráða tiltekinn útlending til starfa. Sérstök heimild er þó í 2. mgr. 7. gr. laganna sem og 14. gr. reglugerðar nr. 339/2005, um atvinnuréttindi útlendinga, til að veita tímabundið atvinnuleyfi vegna nánustu aðstandenda útlendings sem fengið hefur búsetuleyfi og óbundið atvinnuleyfi hér á landi. Skilyrði er að útlendingi þeim, sem sótt er um atvinnuleyfi fyrir, hafi áður verið veitt dvalarleyfi hér á landi samkvæmt ákvæðum laga um útlendinga um dvalarleyfi fyrir aðstandendur. Því skilyrði er ekki fullnægt í máli þessu og kemur því umrædd heimild ekki til álita.

Með vísan til alls framangreinds er það því niðurstaða ráðuneytisins að skilyrðum laga um atvinnuréttindi útlendinga um veitingu tímabundins atvinnuleyfis sé ekki fullnægt í máli þessu.

Fram kemur í gögnum málsins að umræddur útlendingur hafi starfað hjá kæranda síðan í apríl 2006. Ráðuneytið telur því ástæðu til að taka fram að skv. 1. mgr. 7. gr. laga nr. 97/2002, um atvinnuréttindi útlendinga, er atvinnurekanda veitt tímabundið atvinnuleyfi til að ráða útlending til starfa að uppfylltum nánar tilgreindum skilyrðum. Útlendingi er óheimilt að ráða sig til starfa nema atvinnuleyfi hafi verið veitt samkvæmt lögum um atvinnuréttindi útlendinga þurfi viðkomandi útlendingur atvinnuleyfi hér á landi samkvæmt lögunum, sbr. 3. mgr. 6. gr. laganna. Auk þess er atvinnurekanda óheimilt að ráða til starfa útlending án atvinnuleyfis ef viðkomandi útlendingur þarf atvinnuleyfi hér á landi samkvæmt lögum um atvinnuréttindi útlendinga, sbr. 2. mgr. 6. gr. laganna. Vilji útlendingur sem fengið hefur tímabundið atvinnuleyfi hjá ákveðnum atvinnurekanda skipta um starf verður nýi atvinnurekandinn að sækja um atvinnuleyfi til Vinnumálastofnunar áður en honum er heimilt að ráða viðkomandi útlending til starfa og er viðkomandi útlendingi óheimilt að hefja störf fyrr en stofnunin hefur veitt umrætt atvinnuleyfi. Sömu skilyrði 1. mgr. 7. gr. laganna um atvinnuréttindi útlendinga gilda um veitingu nýs atvinnuleyfis, sbr. 18. gr. reglugerðar nr. 339/2005, um atvinnuréttindi útlendinga, og giltu um veitingu fyrra leyfisins. Að auki telur ráðuneytið ástæðu til að benda á að brot gegn ákvæðum laga nr. 97/2002, um atvinnuréttindi útlendinga, geta varðað sektum eða fangelsi allt að sex mánuðum, sbr. 17. gr. laganna.

Uppkvaðning úrskurðar þessa hefur dregist vegna mikilla anna í ráðuneytinu.

 

Ú R S K U R Ð A R O R Ð:

 

Ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 12. júní 2006, um synjun á veitingu atvinnuleyfis til handa B í því skyni að ráða til starfa C, sem er búlgarskur ríkisborgari, skal standa.

 

Fyrir hönd ráðherra

 

Sesselja Árnadóttir

Bjarnheiður Gautadóttir




Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta