Úrskurður velferðarráðuneytisins
Mánudaginn 1. júlí 2013 var í velferðarráðuneytinu kveðinn upp svohljóðandi
ú r s k u r ð u r:
Með erindi til velferðarráðuneytisins, dags. 15. október 2012, kærðu Reykjagarður hf., kt. 650903-2180, og […], fd. […], ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 4. október 2012, um synjun á veitingu tímabundins atvinnuleyfis til handa […], sem er taílenskur ríkisborgari, í því skyni að ráða sig til starfa hjá Reykjagarði hf.
I. Málavextir og málsástæður.
Mál þetta varðar synjun Vinnumálastofnunar á veitingu tímabundins atvinnuleyfis til handa […], sem er taílenskur ríkisborgari, í því skyni að ráða sig til starfa hjá Reykjagarði hf. Vinnumálastofnun synjaði um veitingu atvinnuleyfisins með vísan til 9. gr. laga nr. 97/2002, um atvinnuréttindi útlendinga, með síðari breytingum, sbr. a-lið 1. mgr. 7. gr. sömu laga.
Þeirri ákvörðun vildu kærendur ekki una og kærðu hana til ráðuneytisins. Í erindi kærenda kemur meðal annars fram að umræddur útlendingur hafi starfað hjá því fyrirtæki sem hér um ræðir frá því í febrúar 2010. Jafnframt kemur fram að umræddur útlendingur sé að mati hlutaðeigandi atvinnurekanda afbragðs starfsmaður sem hafi hlotið viðeigandi þjálfun til að gegna því starfi sem hér um ræðir en sé auk þess fær um að gegna mörgum af þeim störfum sem til falli hjá fyrirtækinu. Telur hlutaðeigandi atvinnurekandi jafnframt að ómetanlegt sé fyrir fyrirtækið að hafa slíka starfsmenn í þjónustu sinni.
Enn fremur kemur fram að hlutaðeigandi atvinnurekanda hafi reynst erfitt að fá íslenska starfsmenn til starfa en hins vegar komi starfsmenn nánast í hverjum mánuði frá Póllandi eða Litháen. Að mati hlutaðeigandi atvinnurekenda séu starfsmenn sem eru ríkisborgarar fyrrnefndra ríkja yfirleitt ágætis fólk en starfsmenn sem eru ríkisborgarar í Taílandi skari þó fram úr hvað varðar vinnusemi, mætingu og almenna starfsgleði starfsmanna og sé umræddur útlendingur engin undantekning frá því.
Í fyrrnefndu erindi kemur fram að umræddur útlendingur hafi verið giftur ríkisborgara ríkis innan Evrópska efnahagssvæðisins í tvö ár en til skilnaðar hafi komið. Þá kemur fram að umræddur útlendingur uni hag sínum vel hér á landi en hann búi hjá ættingjum sínum hérlendis og hafi meðal annars stundað nám í íslensku.
Erindið var sent Vinnumálastofnun til umsagnar með bréfi ráðuneytisins, dags. 26. október 2012. Í umsögn sinni, dags. 2. nóvember 2012, ítrekar Vinnumálastofnun afstöðu sína til málsins sem fram kemur í synjunarbréfi stofnunarinnar, dags. 4. október 2012, þess efnis að samkvæmt lögum nr. 97/2002, um atvinnuréttindi útlendinga, með síðari breytingum, sé heimilt að veita ríkisborgurum ríkja utan Evrópska efnahagssvæðisins tímabundin atvinnuleyfi til að gegna störfum hér á landi að uppfylltum tilteknum skilyrðum, svo sem að kunnáttumenn verði ekki fengnir innanlands eða að atvinnuvegi landsins skorti vinnuafl. Bendir stofnunin á að íslenskur vinnumarkaður sé hluti af sameiginlegum vinnumarkaði innan Evrópska efnahagssvæðisins á grundvelli samningsins um Evrópska efnahagssvæðið. Samkvæmt ákvæðum laga nr. 47/1993, um frjálsan atvinnu- og búseturétt launafólks innan Evrópska efnahagssvæðisins, með síðari breytingum, þurfi ríkisborgarar aðildarríkja að samningnum um Evrópska efnahagssvæðið ekki atvinnuleyfi hér á landi auk þess sem þeir njóti forgangs að lausum störfum á innlendum vinnumarkaði fram yfir ríkisborgara annarra ríkja.
Tekið er fram að áður en Vinnumálastofnun geti veitt tímabundið atvinnuleyfi vegna skorts á vinnuafli beri atvinnurekanda því að hafa óskað eftir aðstoð stofnunarinnar við leit að starfsfólki, meðal annars með milligöngu Eures,vinnumiðlunar á Evrópska efnahagssvæðinu, nema slík leit hafi verið fyrirsjáanlega árangurslaus að mati stofnunarinnar. Að mati Vinnumálastofnunar hafi umrædd skilyrði ekki verið uppfyllt í máli þessu. Enn fremur tekur stofnunin fram að samkvæmt upplýsingum frá Eures,vinnumiðlun á Evrópska efnahagssvæðinu, hafi hlutaðeigandi atvinnurekandi ekki óskað eftir aðstoð vinnumiðlunarinnar við leit að starfsmanni í umrætt starf en vinnumiðlunin telji að auðvelt sé að finna starfsmann af Evrópska efnahagssvæðinu til að gegna starfinu. Því telji Vinnumálastofnun ekki fullreynt að ráða einstakling í starfið sem þegar hefur aðgengi að innlendum vinnumarkaði. Enn fremur kemur fram að Vinnumálastofnun telur að líta verði til þess að mjög slæmar horfur séu á innlendum vinnumarkaði í náinni framtíð.
Jafnframt bendir stofnunin á að íslensk stjórnvöld hafi áréttað þær skuldbindingar sem felast í samningnum um Evrópska efnahagssvæðið um forgang ríkisborgara ríkja innan Evrópska efnahagssvæðisins umfram ríkisborgara ríkja utan svæðisins til starfa hér á landi. Stofnunin vísar í þessu sambandi til úrskurða félags- og tryggingamálaráðuneytisins, síðar velferðarráðuneytisins, sem kveðnir hafa verið upp frá því í september 2005 þar sem komist hafi verið að þeirri niðurstöðu að þegar kærendur hafi ekki óskað eftir aðstoð stofnunarinnar við leit að starfsfólki hafi ekki þótt fullreynt að ráða ríkisborgara aðildarríkja að samningnum um Evrópska efnahagssvæðið og þar með hafi ekki verið sýnt fram á nauðsyn þess að ráða viðkomandi útlendinga til starfa. Fram kemur að stofnunin telur að umræddir úrskurðir hafi fordæmisgildi í því máli sem hér um ræðir.
Þá kemur fram að í ljósi þess sem að framan greinir og stefnu stjórnvalda telji Vinnumálastofnun því ekki heimilt að veita tímabundin atvinnuleyfi til útlendinga sem eru ríkisborgarar ríkja utan Evrópska efnahagssvæðisins nema mjög ríkar ástæður séu fyrir hendi. Með tilliti til vinnumarkaðssjónarmiða telji stofnunin slíkar ástæður ekki hafa verið fyrir hendi í máli þessu.
Með vísan til framangreinds telji Vinnumálastofnun að ákvörðun stofnunarinnar um synjun um tímabundið atvinnuleyfi til handa umræddum útlendingi skuli standa.
Með bréfum ráðuneytisins, dags. 12. nóvember 2012, annars vegar til umrædds útlendings og hins vegar til hlutaðeigandi atvinnurekanda var kærendum gefinn kostur á að koma á framfæri við ráðuneytið athugasemdum sínum vegna umsagnar Vinnumálastofnunar og var frestur veittur til 26. nóvember sama ár. Í fyrrnefndu bréfi til hlutaðeigandi atvinnurekanda var jafnframt óskað eftir upplýsingum um með hvaða hætti reynt hefði verið að ráða starfsmann í það starf sem hér um ræddi sem þegar hefði aðgengi að innlendum vinnumarkaði en fram kæmi í umsögn Vinnumálastofnunar að ekki hefði verið óskað eftir aðstoð stofnunarinnar, þar á meðal Eures,vinnumiðlunar á Evrópska efnahagssvæðinu, við leit að starfsmanni í umrætt starf.
Í svarbréfi umrædds útlendings, dags. 20. nóvember 2012, eru meðal annars ítrekaðar upplýsingar sem fram koma í fyrrnefndu erindi til ráðuneytisins, dags. 15. október 2012, þess efnis að umræddur útlendingur hafi verið í hjúskap hér á landi en búi nú hjá ættingjum sínum hérlendis. Jafnframt kemur fram að með vinnu sinni hér á landi hafi umræddur útlendingur tök á að aðstoða fjölskyldu sína í Taílandi fjárhagslega en enginn í fjölskyldunni hafi vinnu þar í landi. Þá tekur umræddur útlendingur fram að hann sinni starfi sínu vel að hans mati en hann telur að það eigi ekki við um alla þá starfsmenn sem séu ríkisborgarar ríkja í Austur Evrópu.
Í svarbréfi hlutaðeigandi atvinnurekanda, dags. 22. nóvember 2012, kemur meðal annars fram að hlutaðeigandi atvinnurekandi hafi margsinnis á undanförnum árum haft samband við þjónustuskrifstofu Vinnumálastofnunar á Suðurlandi í tengslum við ráðningu starfsfólks en hann hafi ekki góða reynslu af þeim atvinnuleitendum sem hann hafi fengið upplýsingar um í gegnum stofnunina. Enn fremur kemur fram að hlutaðeigandi atvinnurekandi hafi ekki leitað til Eures,vinnumiðlunar á Evrópska efnahagssvæðinu, í tengslum við ráðningu starfsfólks þar sem hann reyni almennt að ráða einstaklinga sem tengjast starfsfólki fyrirtækisins á einhvern hátt þegar um ráðningu erlendra ríkisborgara sé að ræða. Slíkar ráðningar hafi reynst honum langbest þar sem nýju starfsmennirnir hafi þá stuðning af þeim starfsmönnum sem fyrir séu auk þess sem meiri líkur séu þá á því að um sé að ræða góða starfsmenn en ella að mati hlutaðeigandi atvinnurekanda. Fram kemur að um slík tengsl hafi verið að ræða í því máli sem hér um ræðir þar sem margir ættingjar umrædds útlendings séu starfsmenn hlutaðeigandi fyrirtækis. Þá ítrekar hlutaðeigandi atvinnurekandi upplýsingar sem fram koma í fyrrnefndu erindi til ráðuneytisins, dags. 15. október 2012, þess efnis að umræddur útlendingur sé góður starfsmaður að mati hlutaðeigandi atvinnurekanda og því hagur fyrir fyrirtækið að hafa hann áfram að störfum, ekki síst vegna þjálfunar og þekkingar hans í tengslum við þau störf sem til falla innan fyrirtækisins.
II. Niðurstaða.
Samkvæmt 34. gr. laga nr. 97/2002, um atvinnuréttindi útlendinga, með síðari breytingum, er heimilt að kæra ákvörðun Vinnumálastofnunar um synjun eða afturköllun atvinnuleyfis til velferðarráðuneytisins. Í máli þessu er kærð ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 4. október 2012, um synjun á veitingu tímabundins atvinnuleyfis vegna skorts á vinnuafli sem sótt hafði verið um á grundvelli 9. gr. laga um atvinnuréttindi útlendinga, með síðari breytingum.
Atvinnuleyfi vegna starfa útlendinga á íslenskum vinnumarkaði eru veitt í samræmi við lög um atvinnuréttindi útlendinga, með síðari breytingum, reglugerðir sem settar eru með heimild í þeim lögum og stefnu íslenskra stjórnvalda hverju sinni að teknu tilliti til alþjóðlegra skuldbindinga þeirra. Samkvæmt 9. gr. laga um atvinnuréttindi útlendinga, með síðari breytingum, er heimilt að veita tímabundið atvinnuleyfi vegna tiltekins starfs hér á landi þegar starfsfólk fæst hvorki á innlendum vinnumarkaði né innan Evrópska efnahagssvæðisins, í EFTA-ríkjum eða Færeyjum. Skilyrði fyrir veitingu atvinnuleyfis samkvæmt ákvæðinu eru meðal annars að skilyrði 1. mgr. 7. gr. laganna séu uppfyllt. Samkvæmt a-lið 1. mgr. 7. gr. laganna er það skilyrði fyrir veitingu atvinnuleyfis að starfsfólk fáist hvorki á innlendum vinnumarkaði né innan Evrópska efnahagssvæðisins eða aðrar sérstakar ástæður mæli með veitingu atvinnuleyfis. Þá er tekið fram að áður en atvinnuleyfi er veitt beri atvinnurekanda að hafa leitað eftir starfsfólki með aðstoð Vinnumálastofnunar nema slík leit verði fyrirsjáanlega árangurslaus að mati stofnunarinnar.
Í athugasemdum við 7. gr. a. frumvarps þess er varð að gildandi 9. gr. laga um atvinnuréttindi útlendinga, sbr. lög nr. 78/2008, um breytingu á lögum nr. 97/2002, um atvinnuréttindi útlendinga, og lögum nr. 47/1997, um frjálsan atvinnu- og búseturétt launafólks innan Evrópska efnahagssvæðisins, með síðari breytingum, kemur fram að ákvæðið fjalli um tímabundið atvinnuleyfi sem ætlað er að mæta tímabundnum sveiflum í íslensku atvinnulífi. Gert sé „ráð fyrir að einungis reyni á ákvæði þetta við sérstakar aðstæður enda mikil áhersla lögð á að atvinnurekendur leiti fyrst eftir starfsfólki innan Evrópska efnahagssvæðisins. Áfram er því gert ráð fyrir því að atvinnurekandi þurfi að færa sérstök rök fyrir nauðsyn þess að ráða til sín erlent starfsfólk frá ríkjum utan Evrópska efnahagssvæðisins enda verði höfð hliðsjón af aðstæðum á innlendum vinnumarkaði við veitingu atvinnuleyfa sem og hvort vinnuafl fáist frá aðildarríkjum að samningnum um Evrópska efnahagssvæðið, EFTA-ríkjum eða Færeyjum. Er gert ráð fyrir að ríkar kröfur verði gerðar til atvinnurekanda svo talið verði fullreynt að finna starfsfólk með aðstoð Vinnumálastofnunar sem þegar hefur aðgengi að innlendum vinnumarkaði en mat á þörf eftir vinnuafli verður áfram á ábyrgð Vinnumálastofnunar.“Er jafnframt vísað til athugasemda við 5. gr. frumvarpsins er varð að gildandi 7. gr. laga um atvinnuréttindi útlendinga, með síðari breytingum. Þar er tekið fram að atvinnurekandi verði að gera grein fyrir þeim tilraunum sem hann hefur gert til að ráða fólk sem þegar hefur aðgengi að íslenskum vinnumarkaði og að atvinnurekendur leiti eftir starfsfólki innan svæðisins með aðstoð Vinnumálastofnunar með milligöngu Eures,vinnumiðlunar á Evrópska efnahagssvæðinu. Þá segir að það falli „í hlut Vinnumálastofnunar að kanna sjálfstætt áður en atvinnuleyfi er veitt hvert atvinnuástandið innan lands er á hverjum tíma og hvort útséð er um að vinnuafl fáist innan Evrópska efnahagssvæðisins, frá EFTA-ríkjum eða Færeyjum, sbr. a-lið 1. mgr. ákvæðis þessa, enda hlutverk stofnunarinnar að fylgjast með atvinnuástandinu í landinu í því skyni að koma í veg fyrir atvinnuleysi eins og frekast er unnt.“
Af efni ákvæðis a-liðar 1. mgr. 7. gr. laga um atvinnuréttindi útlendinga, með síðari breytingum, má því ráða að mat Vinnumálastofnunar á því hvort skilyrði ákvæðisins fyrir veitingu tímabundinna atvinnuleyfa séu uppfyllt skuli aðallega byggjast á aðstæðum á innlendum vinnumarkaði hverju sinni sem og hvort starfsfólk fáist innan Evrópska efnahagssvæðisins, EFTA-ríkja eða Færeyja. Þar á meðal er átt við hið lögbundna hlutverk Vinnumálastofnunar að meta hvort leit atvinnurekanda að starfsmanni, sem þegar hefur aðgengi að íslenskum vinnumarkaði, sé fyrirsjáanlega árangurslaus og þar með ekki nauðsynlegt skilyrði fyrir veitingu tímabundins atvinnuleyfis. Beiðni um aðstoð Vinnumálastofnunar við leit að starfsfólki sem þegar hefur aðgengi að innlendum vinnumarkaði er því lögbundið skilyrði fyrir veitingu tímabundins atvinnuleyfis enda telji stofnunin leitina ekki fyrirsjáanlega árangurslausa.
Við mat á því hvort skilyrðum a-liðar 1. mgr. 7. gr. laga um atvinnuréttindi útlendinga sé fullnægt ber Vinnumálastofnun jafnframt að líta til skuldbindinga íslenskra stjórnvalda samkvæmt samningnum um Evrópska efnahagssvæðið, sbr. einnig 2. gr. sömu laga. Með samningnum um Evrópska efnahagssvæðið hafa íslensk stjórnvöld skuldbundið sig til að skapa skilyrði fyrir fulla atvinnu, bætt lífskjör og bætt starfsskilyrði á Evrópska efnahagssvæðinu, sbr. einnig lög nr. 2/1993, um Evrópska efnahagssvæðið, með síðari breytingum. Ákvæði 28.–30. gr. samningsins um Evrópska efnahagssvæðið fjalla síðan sérstaklega um frjálsa för launafólks sem nánar eru útfærð í gerðum um þetta efni og hafa verið felldar undir V. viðauka við samninginn. Samkvæmt reglugerð nr. 1612/68/EBE, um frelsi launþega til flutninga innan Evrópska efnahagssvæðisins, sem innleidd var í íslenskan rétt með lögum nr. 47/1993, um frjálsan atvinnu- og búseturétt launafólks innan Evrópska efnahagssvæðisins, með síðari breytingum, skal sérhver ríkisborgari annars aðildarríkis njóta þeirra réttinda að ráða sig til starfa á yfirráðasvæði annars aðildarríkis með sama forgangsrétti og ríkisborgarar þess ríkis. Er þar jafnframt kveðið á um náið samstarf vinnumiðlana aðildarríkjanna um miðlun lausra starfa innan svæðisins. Það telst því felast í skuldbindingum íslenskra stjórnvalda samkvæmt framangreindum samningi að þau veiti launamönnum sem eru ríkisborgarar annarra aðildarríkja innan Evrópska efnahagssvæðisins sama aðgang og íslenskir ríkisborgarar hafa að lausum störfum á innlendum vinnumarkaði og þar með forgang fram yfir ríkisborgara ríkja utan svæðisins að þeim störfum.
Það er því jafnframt lögbundið skilyrði fyrir veitingu tímabundins atvinnuleyfis vegna skorts á vinnuafli að atvinnurekandi hafi áður leitað aðstoðar Vinnumálastofnunar við leit að starfsfólki innan Evrópska efnahagssvæðisins með milligöngu Eures,vinnumiðlunar á Evrópska efnahagssvæðinu, eftir að leit hans innanlands hefur ekki skilað árangri. Jafnframt eru gerðar ríkar kröfur til atvinnurekenda svo talið verði fullreynt að finna starfsfólk með aðstoð Vinnumálastofnunar sem þegar hefur aðgengi að innlendum vinnumarkaði.
Í máli þessu taldi Vinnumálastofnun meginreglu ákvæðis a-liðar 1. mgr. 7. gr. laga um atvinnuréttindi útlendinga, með síðari breytingum, eiga við og því nauðsynlegt skilyrði fyrir veitingu tímabundins atvinnuleyfis að hlutaðeigandi atvinnurekandi hefði áður óskað eftir aðstoð stofnunarinnar við leit að starfsfólki. Verður ekki annað séð en að mat Vinnumálastofnunar þess efnis að hlutaðeigandi atvinnurekanda hafi borið að óska eftir aðstoð stofnunarinnar við leit að starfsmanni á innlendum vinnumarkaði hafi byggst á málefnalegum sjónarmiðum. Að mati ráðuneytisins á það ekki síst við í ljósi eðlis þess starfs sem um ræðir í máli þessu sem og þess sem fram kemur í erindi kærenda til ráðuneytisins, dags. 15. október 2012, þess efnis að nánast í hverjum mánuði komi til hlutaðeigandi atvinnurekanda starfsmenn frá Póllandi eða Litháen. Í því sambandi skal bent á að ríkisborgarar fyrrnefndra ríkja hafa þegar aðgengi að innlendum vinnumarkaði. Þá skal jafnframt bent á að í september 2012 voru að meðaltali 7.882 einstaklingar skráðir á atvinnuleysisskrá hér á landi samkvæmt upplýsingum frá Vinnumálastofnun, sbr. skýrslu stofnunarinnar um stöðu á vinnumarkaði nr. 9/2012, en það jafngildir því að skráð atvinnuleysi hafi verið 4,9% á þeim tíma. Á sama tíma var skráð atvinnuleysi á Suðurlandi 3,1% sem svarar til 376 einstaklinga að meðaltali.
Í umsögn Vinnumálastofnunar kemur fram að Eures,vinnumiðlun á Evrópska efnahagssvæðinu, telji að auðvelt sé að finna starfsmann af Evrópska efnahagssvæðinu til að gegna því starfi sem hér um ræðir en samkvæmt upplýsingum frá vinnumiðluninni hafi hlutaðeigandi atvinnurekandi ekki óskað eftir aðstoð vinnumiðlunarinnar við leit að starfsmanni í umrætt starf. Því hefur hlutaðeigandi atvinnurekandi ekki mótmælt en fram kemur í bréfi hans til ráðuneytisins, dags. 22. nóvember 2012, að hann hafi ekki leitað til Eures,vinnumiðlunar á Evrópska efnahagssvæðinu, þar sem hann hafi viljað fara aðrar leiðir í tengslum við ráðningu starfsmanna þegar um væri að ræða erlenda ríkisborgara þar sem hann telji þær tilteknu leiðir reynast honum vel. Það er mat ráðuneytisins að í máli þessu gildi hið lögbundna skilyrði fyrir veitingu tímabundins atvinnuleyfis þess efnis að hlutaðeigandi atvinnurekanda hafi borið að reyna til hlítar að ráða starfsmann í umrætt starf sem þegar hefur aðgengi að innlendum vinnumarkaði með því að óska eftir aðstoð Vinnumálastofnunar við leit að starfsmanni, þar á meðal með milligöngu Eures,vinnumiðlunar á Evrópska efnahagssvæðinu, áður en unnt hafi verið að veita umræddum útlendingi tímabundið atvinnuleyfi þar sem leit að starfsmanni sem þegar hefur aðgengi að innlendum vinnumarkaði hafi ekki borið árangur.
Við framkvæmd laga um atvinnuréttindi útlendinga hefur verið lögð áhersla á mikilvægi þess að viðhaldið sé jafnvægi milli framboðs á vinnuafli og eftirspurnar eftir því á innlendum vinnumarkaði. Er því jafnframt þýðingarmikið að horfa til þeirra langtímaáhrifa sem útgáfa tímabundinna atvinnuleyfa getur haft á jafnvægi á vinnumarkaði. Ljóst er að aðstæður á innlendum vinnumarkaði breyttust mjög hratt á haustmánuðum 2008 þegar skráð atvinnuleysi jókst umtalsvert. Í því sambandi má nefna að skráð atvinnuleysi fór úr 1,3% í september 2008 í 6,6% í janúar 2009 og hélt skráð atvinnuleysi áfram að aukast hér á landi þar til í apríl 2009 er það mældist 9,1%. Nokkrar sveiflur voru á skráðu atvinnuleysi á þessu tímabili og fram til þess tíma er Vinnumálastofnun tók ákvörðun um að synja umræddum útlendingi um tímabundið atvinnuleyfi hér á landi og mældist það lægst 4,7% í júlí 2012. Í maí 2013 var skráð atvinnuleysi 4,3% á innlendum vinnumarkaði sem jafngildir því að 7.515 einstaklingar hafi að meðaltali verið án atvinnu þann mánuðinn, sbr. skýrslu Vinnumálastofnunar um stöðu á vinnumarkaði nr. 5/2013. Á sama tíma var skráð atvinnuleysi á Suðurlandi 3,2% sem svarar til 410 einstaklinga að meðaltali.
Samkvæmt ákvæði a-liðar 1. mgr. 7. gr. laga um atvinnuréttindi útlendinga, með síðari breytingum, geta aðrar sérstakar ástæður mælt með leyfisveitingu. Í athugasemdum við 5. gr. frumvarps þess er varð að gildandi 7. gr. laganna, sbr. lög nr. 78/2008, um breytingu á lögum nr. 97/2002, um atvinnuréttindi útlendinga og lögum nr. 47/1993, um frjálsan atvinnu- og búseturétt launafólks innan Evrópska efnahagssvæðisins, með síðari breytingum, er tekið fram að gert sé ráð fyrir því að „Vinnumálastofnun verði áfram heimilt að líta til sérstakra ástæðna fyrir ráðningu útlendings við veitingu atvinnuleyfa en þá er við það miðað að þýðingarmikið sé fyrir rekstur atvinnurekanda að fá hlutaðeigandi útlending til starfa tímabundið. Með þessu er ekki átt við ástæður sem lúta að útlendingnum sjálfum eða aðstæðum hans.“Ráðuneytið skortir því heimild að lögum til að fjalla efnislega um þau atriði er lúta að persónulegum aðstæðum umrædds útlendings sem fjallað er um í gögnum málsins sem og til að taka afstöðu til þeirra í niðurstöðu sinni í máli þessu.
Fram kemur í gögnum málsins að umræddur útlendingur sé afbragðs starfsmaður að mati hlutaðeigandi atvinnurekanda sem hlotið hafi viðeigandi þjálfun til að gegna því starfi sem hér um ræðir en sé auk þess fær um að gegna mörgum af þeim störfum sem til falli hjá fyrirtækinu. Enn fremur kemur fram í gögnum málsins að það sé mat hlutaðeigandi atvinnurekanda að starfsmenn sem séu ríkisborgarar í Taílandi skari fram úr hvað varðar vinnusemi, mætingu og almenna starfsgleði starfsmanna og að umræddur útlendingur sé engin undantekning frá því. Þá kemur fram í göngum málsins að hlutaðeigandi atvinnurekandi telji að ómetanlegt sé fyrir fyrirtækið að hafa slíka starfsmenn í þjónustu sinni. Ráðuneytið dregur ekki í efa að umræddur útlendingur hafi sinnt starfi sínu af kostgæfni þann tíma sem hann hafi starfað hjá fyrirtækinu og því kunni það að vera til hægðarauka fyrir hlutaðeigandi atvinnurekanda að hann starfi áfram hjá fyrirtækinu. Hins vegar er það mat ráðuneytisins að það verði ekki talið þýðingarmikið fyrir rekstur hlutaðeigandi atvinnurekanda að umræddum útlendingi verði veitt tímabundið atvinnuleyfi hér á landi til að gegna því starfi sem hér um ræðir enda megi ætla að til að gegna slíku starfi sé alla jafna ráðinn ófaglærður atvinnuleitandi þar sem slíkt starf krefjist almennt ekki tiltekinnar sérfræðiþekkingar. Að mati ráðuneytisins á þetta ekki síst við í ljósi þess að ráða má af erindi kærenda til ráðuneytisins, dags. 15. október 2012, að hlutaðeigandi atvinnurekandi hafi áður ráðið til starfa atvinnuleitendur sem þegar hafa haft aðgengi að innlendum vinnumarkaði til að gegna störfum hjá fyrirtækinu. Að mati ráðuneytisins verður því ekki talið að sérstakar ástæður í skilningi a-liðar 1. mgr. 7. gr. laga um atvinnuréttindi útlendinga, með síðari breytingum, séu fyrir hendi í máli þessu sem mæli með veitingu tímabundins atvinnuleyfis.
Þegar litið er til núverandi aðstæðna á innlendum vinnumarkaði, skuldbindinga íslenskra stjórnvalda samkvæmt samningnum um Evrópska efnahagssvæðið, sbr. einnig lög um frjálsan atvinnu- og búseturétt launafólks innan Evrópska efnahagssvæðisins, þess að hlutaðeigandi atvinnurekandi hafi ekki óskað eftir aðstoð Vinnumálastofnunar við leit að starfsmanni af Evrópska efnahagssvæðinu til að gegna umræddu starfi, þar á meðal með milligöngu Eures,vinnumiðlunar á Evrópska efnahagssvæðinu, sem og gagna málsins í heild, er það mat ráðuneytisins að í máli þessu hafi ekki verið nægjanlega sýnt fram á að fullreynt hafi verið að ráða einstakling í starfið af Evrópska efnahagssvæðinu sem þegar hefur aðgengi að innlendum vinnumarkaði.
Með vísan til framangreinds er það því niðurstaða ráðuneytisins að skilyrði laga um atvinnuréttindi útlendinga um veitingu tímabundins atvinnuleyfis séu ekki uppfyllt í máli þessu.
Uppkvaðning úrskurðar þessa hefur dregist vegna mikilla anna í ráðuneytinu.
Ú R S K U R Ð A R O R Ð:
Ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 4. október 2012, um synjun á veitingu tímabundins atvinnuleyfis til handa […], sem er taílenskur ríkisborgari, í því skyni að ráða sig til starfa hjá Reykjagarði hf., skal standa.