Hoppa yfir valmynd
Nefnd vegna lausnar um stundarsakir

ÁLITSGERÐ nefndar skv. 27. gr. laga nr. 70/1996, um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins í máli nr. 1/2002.

A.

1. Aðilar máls

Aðilar máls þessa eru ríkislögreglustjóri, kt. 530697-2079, Skúlagötu 21, Reykjavík og A, kt. [ ], [ ], [ ]. Helgi Magnús Gunnarsson lögfræðingur rak málið
f.h. ríkislöreglustjóra en Gylfi Thorlacius hrl. og Kristján Thorlacius hdl. ráku málið f.h. A.

Við meðferð málsins skipuðu nefndina Dögg Pálsdóttir hrl., formaður, Gestur Jónsson hrl., tilnefndur af samtökum ríkisstarfsmanna og Arnar Guðmundsson skólastjóri, tilnefndur af dómsmálaráðuneyti.

Málið barst nefndinni með bréfi ríkislögreglustjóra dags. 17. desember 2001, til fjármálaráðuneytis, starfsmannaskrifstofu, þar sem upplýst var að ríkislögreglustjóri hefði veitt A lausn um stundarsakir frá starfi [ ] við embætti [ ] á [ ] frá og með 12. desember 2001 að telja, sbr. 2. málslið 3. mgr. 26. gr. laga nr. 70/1996 um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins (hér nefnd starfsmannalög). Í bréfinu er þess óskað að fjármálaráðuneytið sjái til þess að nefndin taki málið til meðferðar hið fyrsta, en í ljós hafi komið að skipunartími hennar væri runninn út.

Ný nefnd var fullskipuð með bréfi fjármálaráðuneytis dags. 26. febrúar 2002 og hélt hún fyrsta fund vegna meðferðar málsins 14. mars sl.

2. Málavextir
Með bréfi [ ] á [ ] dags. 6. nóvember 2001 tilkynnti hann ríkislögreglustjóra að til rannsóknar hafi verið meint brot A, lögreglumanns við embætti [ ], gegn almennum hegningarlögum. Í bréfinu kom fram að ríkissaksóknari hafi gefið út ákæru á hendur A. [ ] benti á að rétt kynni að vera að beita í máli A ákvæðum VI. kafla starfsmannalaga, einkum 26. og 27. gr. þeirra.

Ákæran í máli A er dags. 5. nóvember 2001 og þingfest í Héraðsdómi [ ] 6. desember s.á. Í ákæru kemur fram að ákveðið hafi verið að höfða opinbert mál á hendur A fyrir eftirtalin brot framin á [ ] árið 2001:

"I.
Hótanir með því að hafa á tímabilinu 15. júlí til 16. ágúst, í ellefu skipti [hótað] XXXXXXXXXXXXXX, kennitala XXXXXXXXX, ofbeldi og lífláti í eftirgreindum SMS-skeytum, sem ákærði sendi í farsíma XXXXXXXX og voru til þess fallin að vekja hjá henni ótta um líf hennar og velferð:
1. "Nei tad gerir tú ekki. Haltu áfram að láta rída og sjádu okkur í fridi og eg lofa tér tví ad ef tú ekki gerir tad hlítirdu verra af. Hann er og verdur hjá mér."
2. "Tetta ver tá enn ein lýgin hjá tér. Komdu bara og ég geng frá tér. Skiladu hringunum tví annars sæki ég tá tó að eg turfi að slíta tá af tér. Mundu tad sem sagt er."
3. "Tad ad fara í Fjölskyldudeildina synir enn og aftur innræti titt og mun ekki hjálpa tér. Nú skalt tú gæta tín."
4. "Gerdu tad, nú mun ég gert tér allt til miska, ganga frá tér ef med tarf."
5. "Er tad nyr madur sem tú tráir, er tad gott fyrir Axel og börnin. Tad skal aldrei verda ad Axel verdi hjá tér og ödrum manni, ALDREI, frekar drep ég tig."
6. "A godu. Mundu ad tú gast leist tetta á 30 mínútum, med einum drætti. Ef tú lætur okkur ekki í fridi tá geng ég frá tér hóran tín, tú mátt treysta tví."
7. "Takkadu fyrir að draga andann, tad gæti breyst!"
8. "Er hann skilinn? Tú ert söm vid tig. Axel færdu aldrei tó ég turfi að ganga frá tér."
9. "Og tad skaltu vita að eg geng frá tér næst er við hittumst."
10. "Ef tú ekki gerir mér tennan greida eydileggur tú líf okkar, eg hugleidi sjálfsvig eda tad sem verra er ad kala tér. Er tilbúinn í sátt ef tú synir mér ástud."
11. "Ég drep tig tussan tin ef tú ætlar að neita mer um samtal vid hann, hann let tig vita manstu!"
Telst þetta varða við 233. gr. almennra hegningarlaga nr. 19, 1940.
II.
Eftirtalin brot framin á heimili XXXXXXXXXXXX að XXXXXXXXX, eftir að ákærði hafði í bæði skiptin slitið stormjárn af glugga íbúðarinnar og ruðst heimildarlaust þar inn:
1. Tilraun til nauðgunar, að morgni sunnudagsins 8. júlí, með því að hafa þar reynt að þröngva XXXXXXX til samræðis með ofbeldi og hótun um ofbeldi.

Telst þetta varða við 194. gr. sbr. 20. gr. almennra hegningarlaga.

2. Líkamsárás og kynferðisbrot, að morgni mánudagsins 20. ágúst, með því að hafa ráðist þar að XXXXXXXX, vafið bandi af náttsloppi tvívegis um háls hennar og hert að og sett fingur inn í leggöng hennar.

Telst þetta varða við 209. gr. og 217. gr. almennra hegningarlaga.

Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar."

Að athuguðum gögnum málsins og ákæru í málinu þótti ríkislögreglustjóra meint brot A svo gróf að ekki yrði hjá því komist að veita honum lausn frá störfum með vísan til 2. málsl. 3. mgr. 26. gr. starfsmannalaga enda væru brot hans svo alvarleg að þau hefðu í för með sér sviptingu réttinda samkvæmt 68. gr. almennra hegningarlaga. Í samræmi við þetta var A sent ábyrgðarbréf dags. 12. desember 2001 þar sem honum var gerð grein fyrir ákvörðuninni og að hún tæki þá þegar gildi. Vegna mistaka fórst fyrir að benda A á í bréfinu að hann gæti kært ákvörðunina til dómsmálaráðherra, sbr. 5. mgr. 26. gr. starfsmannalaga og var honum því sent annað ábyrgðarbréf dags. 14. janúar 2002 og bent á þann rétt sinn. A hafði frá því að málið kom upp og þar til honum var veitt lausn um stundarsakir verið í veikindaleyfi frá störfum.

Upphaf málsins er að fyrrum sambýliskona A snéri sér til lögreglu 17. júlí 2001 vegna ítrekaðra grófra hótana um líkamsmeiðingar sem henni höfðu borist með SMS-skilaboðum á tímabilinu frá 15. – 17. júlí 2001. Báru skilaboðin með sér að vera send af A. Sambýliskonan setti fram formlega kæru vegna málsins 23. júlí 2001. Málið var rannsakað af [ ] í [ ] þar sem A var starfsmaður embættis [ ] á [ ]. Hinn 20. ágúst 2001 var lögreglan á [ ] kölluð að heimili sambýliskonunnar þar sem hún greindi frá því að A hefði beitt sig líkamlegu og kynferðislegu ofbeldi. Daginn eftir lagði hún fram aðra kæru. Þá kærði hún A fyrir að hafa gert tilraun til að nauðga sér á heimili hennar 8. júlí 2001, með ofbeldi og hótunum um að beita hana ofbeldi. Á tímabilinu 17. júlí til 16. ágúst 2001 bárust konunni frekari SMS-skilaboð frá A sem innihéldu hótanir frá honum.

Í framhaldi af rannsókn [ ] í [ ] var málið sent ríkissaksóknara 19. október 2001 sem gaf út áðurnefnda ákæru dags. 5. nóvember 2001.

Hinn 13. mars 2002 gekk dómur í máli A og var hann sakfelldur vegna hluta ákæruefnis og dæmdur í 12 mánaða fangelsi þar af 3 mánuði óskilorðsbundna. A hefur áfrýjað dóminum til Hæstaréttar.

3. Sjónarmið málsaðila
Ríkislögreglustjóri krefst þess að nefnd skv. 27. gr. starfsmannalaga rannsaki mál A og upplýsi um og leggi mat á hvort A skuli veitt lausn frá starfi að fullu eða hvort hann skuli taka við embætti sínu aftur. Ríkislögreglustjóri krefst þess einnig að nefndin staðfesti að honum hafi verið rétt að veita A lausn um stundarsakir frá störfum sem [ ] hjá embætti [ ] á [ ].

Ríkislögreglustjóri telur sig bæran til að veita A lausn frá störfum um stundarsakir eða endanlega, sbr. 1. mgr. 26. gr. og 1. mgr. 31. gr. starfsmannalaga. Því til rökstuðnings bendir hann á að hann fari með málefni lögreglunnar í umboði dómsmálaráðherra, sbr. 4. gr. lögreglulaga, nr. 90/1996 og skipi aðra lögreglumenn en yfirlögregluþjóna og aðstoðaryfirlögregluþjóna samkvæmt 3. mgr. 28. gr. laganna, sbr. 5. gr. laga nr. 29/1998.

Í greinargerð ríkislögreglustjóra vegna málsins kemur fram að tímabundin lausn A byggist á 2. málslið 3. mgr. 26. gr. starfsmannalaga en þar komi fram, með vísan til 1. málsliðar sömu málsgreinar að veita megi embættismanni lausn tímabundið ef hann er grunaður um háttsemi sem hefði í för með sér sviptingu réttinda skv. 68. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 (hér nefnd alm.hgl.). Ríkislögreglustjóri telur úrræði 2. málsliðar 3. mgr. 26. gr. hliðsett því úrræði að krefjast í ákæru réttindasviptingar á grundvelli 68. gr. alm.hgl. og 2. mgr. 1. gr., sbr. d-lið 1. mgr. 116. gr. laga nr. 19/1991, um meðferð opinberra mála. Á það er bent að krafa um sviptingu réttinda hafi ekki verið gerð af ríkissaksóknara í málinu.

Ríkislögreglustjóri telur að með því að beita úrræði 2. málsliðar 3. mgr. 26. gr. starfsmannalaga opnist leið til að fyrirbyggja að opinber starfsmaður sem sætir ákæru geti gegnt starfi sínu á meðan, enda kunni slíkt að þykja óviðunandi. Málið fái meðferð fyrir nefndinni sem fari með það til enda óháð hugsanlegri opinberri rannsókn, sbr. orðalag 1. mgr. i.f. 27. gr. starfsmannalaga. Samkvæmt ákvæðinu er unnt að vísa máli til opinberrar rannsóknar samhliða meðferð nefndarinnar. Sambærilegt ákvæði sé í 19. gr. starfsreglna nefndarinnar sem segir að nefndin skuli halda áfram meðferð máls og ljúka því með álitsgerð þótt gefin hafi verið út ákæra og krafist hafi verið sviptingar rétti til að gegna embætti í henni. Sé maður í endanlegum dómi sviptur rétti til að gegna embætti skuli hins vegar fella málið niður fyrir nefndinni.

Ríkislögreglustjóri bendir á að samkvæmt 68. gr. alm.hgl. megi, ef opinber starfsmaður fremur refsiverðan verknað, svipta hann í opinberu máli á hendur honum, réttinum til að gegna starfans. Í ákvæðinu sé ekki gerður greinarmunur á því hvort umrædd hegðun hafi átt sér stað í starfi eða utan heldur velti niðurstaðan á mati á því hvort viðkomandi teljist hæfur eða verður til að gegna starfinu eftir dóminn. Ríkislögreglustjóri byggi á því í málinu að með brotum sínum hafi A bæði misst hæfi til að gegna starfinu og sé ekki verður þess.

Varðandi hæfi til að gegna starfi sem lögreglumaður er bent á að til þess að fá inngöngu í Lögregluskóla ríkisins megi viðkomandi ekki hafa verið dæmdur fyrir refsiverðan verknað samkvæmt almennum hegningarlögum, sbr. a-lið 2. mgr. 38. gr. lögreglulaga nr. 90/1996. A hafi samkvæmt þessu ekki hæfi til að fá inngöngu í Lögregluskólann, en próf úr skólanum sé skilyrði þess að hann geti gegnt starfinu.

Þá telur ríkislögreglustjóri að A hafi með brotunum svipt sjálfan sig trausti og virðingu sem sé nauðsynleg í starfi hans sem lögreglumaður. Vísar ríkislögreglustjóri í því sambandi til mats í dómi Hæstaréttar frá 22. mars 2001 í máli nr. 368/2000. Ríkislögreglustjóri telur að ekki sé vafa undirorpið að þau brot sem A hafi verið fundinn sekur um séu svo alvarleg að hann verði ekki lengur talinn þess verður að gegna starfi sínu sem lögreglumaður. Til þess sé að líta að A þurfi í starfi sínu að hafa afskipti af heimilisofbeldi, kynferðislegu ofbeldi og hótunum, þ.e. sömu brotum og hann sjálfur hafi nú hlotið dóm fyrir. Mikilvægt sé að lögreglan njóti trausts en það hljóti óhjákvæmilega að minnka ef menn sem eru grunaðir eða dæmdir fyrir alvarleg ofbeldisbrot séu þar við störf. Vísar ríkislögreglustjóri í þessu sambandi til áðurnefnds hæstaréttardóms þar sem fram kemur að almenningur þurfi að bera fullt traust til lögreglumanna. Brot A séu til þess fallin að ganga nærri siðferðislegum orðstír hans sem séu sjónarmið sem Hæstiréttur hafi lagt til grundvallar. Auk þess beri að líta til alvarleika brota þeirra sem A sé sekur um. Þau geti varðað allt að sex ára fangelsi samkvæmt 195. gr. alm.hgl. Brot A séu þannig mun alvarlegri en þau brot sem Hæstiréttur taldi í áðurnefndu máli réttlæta brottvikningu. Af öllu þessu verði ráðið að hegðun A sé án alls vafa til þess fallin að hann verði ekki talinn þess verður að gegna starfi lögreglumanns samkvæmt 68. gr. alm.hgl.

Þá bendir ríkislögreglustjóri á að til viðbótar verði að líta til þess að kynferðisbrot gegn konum og heimilisofbeldi hafi á síðustu árum verið mikið í umræðu í samfélaginu og hafi margir orðið til þess að gagnrýna hversu vægt stjórnvöld taki á slíkum brotum. Af þeirri ástæðu telji ríkislögreglustjóri að á honum hvíli skylda til að gæta þess að trúverðugleiki lögreglu, sem hafi það verkefni að rannsaka slík brot og vernda fólk gegn þeim, sé hafinn yfir allan vafa.

Loks bendir ríkislögreglustjóri á að A hafi ekki verið gefinn kostur á að tjá sig um málið áður en ákvörðun um að veita honum lausn frá störfum um stundarsakir var tekin. Sá framgangsmáti sé í samræmi við 3. málslið 4. mgr. 26. gr. starfsmannalaga sem staðfestur hafi verið í margnefndum hæstaréttardómi.

Af hálfu A er þess aðallega krafist að málinu verði vísað frá nefndinni. Til vara er þess krafist að hafnað verði kröfum ríkislögreglustjóra um að A verði veitt lausn að fullu frá embætti [ ] við embætti [ ] á [ ]. Jafnframt er þess krafist að hafnað verði kröfu ríkislögreglustjóra um staðfestingu á ákvörðun hans um lausn A frá störfum um stundarsakir.

Aðalkröfu sína byggir A á því að nefndin hafi ekki heimild lögum samkvæmt til að fjalla um málið. Af orðalagi 27. gr. starfsmannalaga sé skýrt að nefndinni sé einungis ætlað að fjalla um mál þar sem embættismenn hafi verið leystir frá embætti fyrir brot í starfi. Brot A varði ekki brot í starfi heldur hafi atvik átt sér stað í frítíma hans. Jafnframt hafi ríkislögreglustjóri brotið rétt á A með því að gefa honum ekki kost á að neyta andmælaréttar áður en ákvörðun um að leysa hann frá embætti um stundarsakir var tekin. Andmælaréttur A sé þó ótvíræður samkvæmt 13. gr. stjórnsýslulaga. Þá hafi reglur stjórnsýsluréttar um meðalhóf og jafnræði ekki verið í heiðri hafðar af hálfu ríkislögreglustjóra. Ákvörðun hafi verið tekin áður en til þess hafi verið nægilegur grundvöllur. A hafi verið valdið óþarfa tjóni þar sem hann hafi verið leystur frá embætti í desember 2001 áður en dómur gekk í málinu. Gangi það gegn meginreglu stjórnsýsluréttar um meðalhóf. Þar sem ákvörðun um að leysa A frá um stundarsakir hafi verið ólögmæt geti nefndin ekki staðfest þá ákvörðun. Þar sem nefndinni sé þannig ómögulegt að staðfesta hina ólögmætu ákvörðun ríkislögreglustjóra sé henni samkvæmt 2. mgr. 29. gr. starfsmannalaga einnig ómögulegt að taka ákvörðun um að rétt sé að víkja A frá að fullu.

Þá er krafa A um að vísa málinu frá nefndinni byggð á því að ekki sé tækt að nefndin taki mál hans til umfjöllunar þar sem endanlegur dómur sé ekki genginn í máli hans og endanleg niðurstaða um hver brot hans séu sé því ekki fengin. Ef nefndin taki ákvörðun um að fallast á kröfu ríkislögreglustjóra um embættismissi en Hæstiréttur sýkni hann síðan af ákæru að fullu eða að verulegu leyti hafi A að ósekju verið unnið verulegt varanlegt tjón þar sem embættismissir sé stórkostlegt áfall fyrir hann.

Varakröfu um að hafnað verði kröfum ríkislögreglustjóra um fullnaðarlausn frá embætti byggir A að öðru leyti á því að ekki sé lagalegur grundvöllur til þess að verða við kröfunni. Samkvæmt 1. mgr. 29. gr. starfsmannalaga skuli víkja embættismanni úr embætti að fullu ef hann hefur verið sviptur með fullnaðardómi rétti til að gegna embættinu. A hafi ekki verið sviptur rétti til að gegna embætti lögreglumanns með dómi og af hálfu ákæruvaldsins sé ekki gerð krafa um embættismissi. Það bendi eindregið til þess að ákæruvaldið hafi metið það svo að ekki væri ástæða til að A missti embættisgengi sitt vegna þeirra brota sem hann sé ákærður fyrir. Sú staðreynd sé sterk vísbending um að hafna beri öllum kröfum ríkislögreglustjóra í málinu.

A bendir á að af hálfu ríkislögreglustjóra sé ítrekað vísað til 68. gr. alm.hgl. og mats á því hvort háttsemi sú sem honum sé gefin að sök hafi í för með sér sviptingu réttinda samkvæmt ákvæðinu. A bendir á að 68. gr. eigi ekki við í málinu þar sem 3. mgr. 29. gr. starfsmannalaga eigi samkvæmt orðalagi sínu aðeins við þegar embættismanni sé vikið úr embætti að fullu án fyrirvara. Sú hafi ekki verið raunin í máli A og því geti nefndin ekki byggt á 68. gr. við meðferð málsins.
Telji nefndin að málið eigi að taka til efnismeðferðar þá gerir A athugasemdir við röksemdir ríkislögreglustjóra um virkni og gildissvið 68. gr. alm.hgl. Vísun til hæstaréttarmáls nr. 368/2000 eigi ekki við í málinu þar sem um bótamál hafi verið að ræða. A leggur áherslu á að hann telur sig ekki hafa gerst sekan um það athæfi sem honum var gefið að sök í ákæru. Hann kannast við að hafa sent sum þeirra SMS-skilaboða sem í ákæru greinir, en fullyrðir að þau hafi verið merkingarlaus og fyrrverandi sambýliskonu hans hafi ekki staðið nein ógn af þeim. Jafnvel þótt hann yrði fyrir Hæstarétti sakfelldur fyrir brot gegn 233. gr. alm.hgl. séu ekki til staðar þau skilyrði sem 68. gr. sömu laga setur til að heimilt sé að svipta mann embætti sínu. Leit í dómasöfnum leiði í ljós að 1. mgr. 68. gr. alm.hgl. hafi aldrei verið beitt af Hæstarétti frá því að ákvæðið var lögfest með lögum nr. 31/1961. Mælikvarði sá sem leitað sé að í málinu liggi því ekki fyrir í dómafordæmum. Það segi allt sem segja þurfi um þær miklu kröfur sem gerðar séu til þess að brot embættismanns varði við 68. gr. alm.hgl. Kröfurnar um að brot sé stórfellt og alvarlegt séu svo miklar að aldrei hafi á 40 árum reynt á beitingu ákvæðisins fyrir Hæstarétti þótt ljóst sé að brot embættismanna í starfi hafi verið fjölmörg á þessum tíma.

A mótmælir því að brot þau sem hann hafi verið sakfelldur fyrir séu þess eðlis að þau falli undir ákvæði 68. gr. alm.hgl. þar sem ljóst sé af orðalagi ákvæðisins að brot þurfi að vera stórfellt og mjög alvarlegt til að því sé beitt. A kannast einvörðungu við brot sem hugsanlega geti leitt til sakfellingar samkvæmt 233. gr. alm.hgl. sem ekki geti talist grundvöllur embættismissis. Embættismissir sé sérstaklega alvarleg og viðamikil ákvörðun sem hafi stórfelldar og varanlegar afleiðingar. Verði það niðurstaða nefndarinnar að svipta beri A embætti sé hann þar með sviptur ævistarfi sínu og lífsviðurværi því sem hann hefur menntun til að gegna.

Þá er af hálfu A á það bent að verði hann leystur frá embætti að fullu feli sú athöfn í sér brot gegn jafnræðisreglu stjórnsýslulaga, sbr. 11. gr. laga nr. 37/1993. Fyrir liggi að fjölmargir opinberir starfsmenn hafi verið sakfelldir fyrir brot gegn almennum hegningarlögum án þess að hafa verið sviptir starfi sínu. A vísar í því sambandi til dóms Hæstaréttar frá árinu 1989, bls. 512 og héraðsdómsmálanna S-1347/1999 (Reykjanes) og S-998/1996 (Reykjavík). Af dómunum megi draga þá ályktun að verði A leystur frá embætti geti það falið í sér brot á jafnræðisreglu stjórnsýsluréttar og jafnframt bakað íslenska ríkinu bótaskyldu vegna ólögmætrar uppsagnar.

4. Niðurstaða nefndar og rökstuðningur
Aðalkrafa A er sú að málinu verði vísað frá nefndinni.

Samkvæmt 27. gr. starfsmannalaga skal nefndin rannsaka mál þegar embættismanni hefur verið veitt lausn um stundarsakir fyrir meintar misfellur í starfi. Í 26. gr. sömu laga eru skýrt tilgreind þau tilvik sem gefa stjórnvaldi heimild til að veita lausn frá embætti um stundarsakir. Þar eru bæði nefnd tilvik í starfi og utan þess. Þótt orðalag 27. gr. starfsmannalaga sé ónákvæmt að þessu leyti verður eigi hjá því komist að túlka það með þeim hætti að nefndinni sé ætlað að rannsaka öll mál þar sem embættismanni hefur verið veitt lausn um stundarsakir á grundvelli 26. gr. laganna. Styðst sú niðurstaða einnig við dóm Hæstaréttar í málinu nr. 368/2000.

Aðalkröfu A um að máli hans verði vísað frá nefndinni er því hafnað.

Aðalkrafa ríkislögreglustjóra er sú að nefndin rannsaki mál A og upplýsi um og leggi mat á hvort honum skuli veitt lausn frá starfi að fullu eða hvort hann skuli taka við embætti sínu aftur.

Nefndinni er ætlað ákveðið rannsóknarhlutverk, eins og fram kemur í 1. mgr. 27. gr. starfsmannalaga sem kveður á um að þegar embættismanni hefur verið veitt lausn um stundarsakir skuli mál hans þá þegar rannsakað af nefnd sérfróðra manna svo upplýst verði hvort veita beri honum lausn að fullu eða láta hann taka aftur við embætti sínu. Hins vegar er vert að árétta, eins og fram hefur komið í fyrri álitsgerðum nefndarinnar, að rannsóknarhlutverk hennar takmarkast við það markmið starfa hennar sem fram kemur í niðurlagi 2. mgr. 27. gr. laganna, að láta í ljós rökstutt álit á því hvort rétt hafi verið að víkja embættismanni frá um stundarsakir.

Með vísan til þessa miðast rannsókn nefndarinnar við að leggja mat á það hvort skilyrðin hafi verið fyrir hendi þegar ákvörðun um veitingu lausnar um stundarsakir var tekin. Þannig er lagt mat á það hvort form ákvörðunar svo og aðdragandi og efnisleg skilyrði veitingar lausnar um stundarsakir hafi verið svo sem lög áskilja. Athugun nefndarinnar takmarkast því við að meta hvort þær sakir sem bornar höfðu verið á A, þegar ríkislögreglustjóri tók ákvörðun um að veita honum lausn frá embætti um stundarsakir, voru fullnægjandi grundvöllur þeirrar ákvörðunar og hvort rétt hafi verið staðið að framkvæmd þeirrar stjórnvaldsákvörðunar.

Ákvörðun nefndarinnar um að rétt hafi verið að víkja manni úr embætti um stundarsakir getur orðið grundvöllur undir síðari ákvörðun viðkomandi stjórnvalds um það hvort víkja eigi embættismanni að fullu eða ekki. Sá grundvöllur er ekki bindandi eins og fram kemur í 2. mgr. 29. gr. starfsmannalaga. Reynist ávirðingar sem embættismanni eru gefnar að sök, ekki vera fyrir hendi, skal stjórnvaldið ekki víkja manni að fullu, þótt nefndin hafi talið rétt að víkja honum um stundarsakir. Þótt stjórnvald hafi fengið niðurstöðu nefndarinnar um að rétt hafi verið að víkja embættismanni frá störfum um stundarsakir þarf stjórnvaldið að taka sjálfstæða ákvörðun um endanlega lausn úr embætti.

Með vísan til þessa mun nefndin einungis leggja mat á réttmæti ákvörðunar ríkislögreglustjóra þann 12. desember 2001, um að veita A lausn frá embætti um stundarsakir.

Samkvæmt lokamálslið 3. mgr. 26. gr. starfsmannalaga má veita embættismanni lausn um stundarsakir ef hann er grunaður um háttsemi sem hefði í för með sér sviptingu réttinda skv. 68. gr. alm.hgl. Viðmið í umræddri 68. gr. er að hinn refsiverði verknaður sé slíkur að starfsmaðurinn teljist ekki lengur verður eða hæfur til að rækja starfann.

Með ákæru frá 5. nóvember 2001 var A ákærður fyrir brot gegn nokkrum ákvæðum almennra hegningarlaga, þ.e. nánar tiltekið 233. gr., 194. gr. sbr. 20. gr., 209. og 217. gr. Ákæruefnið varðar m.a. alvarleg ofbeldisbrot og hótanir sem voru taldar til þess fallnar að vekja ótta um líf, heilbrigði eða velferð þess sem fyrir varð. Það er mat nefndarinnar að lögreglumaður sem sannur væri að sekt um ákæruatriðin væri þess ekki verður að gegna embætti lögreglumanns, sbr. 68. gr. alm.hgl. Skiptir engu í því sambandi þótt ríkissaksóknari hafi ekki krafist sviptingar embættis í opinbera málinu gegn A.

Samkvæmt 4. mgr. 26. gr. starfsmannalaga er ekki skylt að veita embættismanni kost á að tjá sig um ástæður lausnar, áður en hún tekur gildi, ef ástæður hennar eru aðrar en þær sem 2. mgr. 26. gr. tilgreinir. Fyrir liggur að ákvörðun um lausn A frá embætti um stundarsakir var byggð á ákvæðum 3. mgr. 26. gr. starfsmannalaga. Þegar af þeirri ástæðu var ríkislögreglustjóra ekki skylt að gefa A kost á að tjá sig fyrirfram um ástæður ákvörðunarinnar.

Á grundvelli þessa er það niðurstaða nefndarinnar að ríkislögreglustjóra hafi verið rétt að veita A lausn frá embætti um stundarsakir.



ÁLIT

Nefnd skv. 27. gr. laga nr. 70/1996, um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins, telur að ríkislögreglustjóra hafi verið rétt að veita A [ ] við embætti [ ] á [ ] lausn frá störfum um stundarsakir með bréfi dagsettu 12. desember 2001.

Reykjavík, 20. júní 2002.

Dögg Pálsdóttir (sign.)
Gestur Jónsson (sign.)
Arnar Guðmundsson (sign.)




Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta