Úrskurður vegna stjórnsýslukæru - ákvörðun RSK um endurgreiðslu virðisaukaskatts vegna vinnu verktaka við endurbætur á íbúðarhúsnæði.
[…]
[…]
[…]
Reykjavík 22. janúar 2014
Tilv.: FJR13100069/16.2.5
Efni: Úrskurður á kæru á ákvörðun ríkisskattstjóra, dags. 15. október 2013, um synjun á endurgreiðslu virðisaukaskatts vegna vinnu verktaka við endurbætur á íbúðarhúsnæði.
Ráðuneytið vísar til bréfs yðar, dags. 18. október 2013, þar sem kærð er sú ákvörðun ríkisskattstjóra að synja yður um endurgreiðslu virðisaukaskatts af vinnu verktaka við endurbætur á íbúðarhúsnæði. Í bréfinu kemur fram að endurgreiðslu hafi verið synjað þar sem útgefandi reiknings hafi ekki verið skráður á virðisaukaskattsskrá á þeim tíma sem reikningurinn var gefinn út.
Með bréfi, dags. 28. október 2013, sendi ráðuneytið ríkisskattstjóra beiðni um umsögn í málinu. Umsögn ríkisskattstjóra barst þann 27. nóvember 2013. Ríkisskattstjóri tekur fram í umsögn sinni að ákvæði 10. mgr. 42. gr. laga nr. 50/1988 um virðisaukaskatts sé fortakslaust orðað og ekki heilmilt að víkja frá því.
Í hinum kærða úrskurði er vísað til 10. mgr. 42. gr. laga nr. 50/1988, um virðisaukaskatt, með síðari breytingum, þar sem fram kemur að skilyrði endurgreiðslu samkvæmt ákvæðinu er að seljandi vöru og þjónustu sé skráður á virðisaukaskattsskrá á því tímamarki sem viðskipt eiga sér stað. Framangreindu skilyrði var komið á með lögum 69/2012, sbr. 5. gr. um breytingu á lögum um virðisaukaskatt. Ákvæðinu er ætlað að koma í veg fyrir að virðisaukaskattur sé endurgreiddur í þeim tilvikum sem honum er ekki skilað. Í máli þessu er ekki ágreiningur um það að skilyrði þetta var ekki uppfyllt. Af framansögðu er ljóst að ekki er heimilt að endurgreiða virðisaukaskatt samkvæmt framlögðum reikningi er fylgdi beiðni yðar.
Úrskurðarorð:
Ákvörðun ríkisskattstjóra um synjun endurgreiðslu virðisaukaskatts er staðfest.
Fyrir hönd ráðherra