Lokið |
Framvinda verkefnisins
Alþingi samþykkti árið 2018 þingsályktun um stefnumótandi landsáætlun um uppbyggingu innviða til verndar náttúru og menningarsögulegum minjum (innviðaáætlun). Á grundvelli hennar var lögð fram þriggja ára verkefnaáætlun sama ár og er hún endurskoðuð árlega. Um milljarði króna er varið árlega til verndar náttúru og menningarsögulegum minjum og er það gert í gegnum innviðaáætlunina. Um er að ræða stórfellt átak í uppbyggingu göngustíga, útsýnispalla, salernishúsa og annarra mikilvægra innviða til að vernda náttúruna á fjölda staða vítt og breitt um landið.
Endurskoðun þriggja ára verkefnaáætlun vegna áranna 2021-2023 var kynnt í mars 2021. Auk þess hefur hið opinbera tryggt fjármögnun á tveimur nýbyggingum og kaupum á húsnæði undir gestastofur þjóðgarða, á Hellissandi, við Kirkjubæjarklaustur og í Mývatnssveit.
Ábyrgð
Umhverfis- og auðlindaráðuneytið
Samstarfsráðuneyti
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytiðKafli
Þróttmikið efnahagslíf