Lokið |
Framvinda verkefnisins
Mótuð var heildstæð stefna um menntun barna og ungmenna með fjölbreyttan tungumála og menningarbakgrunn og auknu fé veitt til sérstakrar íslenskukennslu fyrir börn með annað móðurmál en íslensku. Allt nýtt námefni fyrir grunnskóla gert aðgengilegra og gefið út rafrænt og áhersla lögð á ráðgjöf og stuðning vegna lesturs. Þá er menntun fyrir alla útgangspunktur í nýrri menntastefnu, þar sem m.a. er horft til barna með sérþarfir. Reglugerð var sett um skólaþjónustu sveitarfélaga við leik- og grunnskóla og nemendaverndarráð. Náið var fylgst með brotthvarfi úr framhaldsskólum, þar sem verulega dró úr brotthvarfi á kjörtímabilinu. Breytingar voru gerðar á námslánakerfinu, sem jafna stöðuna og bæta hag nemenda með börn á framfæri. Framfærsluviðmið voru hækkuð, frítekjumark námsmanna var hækkað og flóttamenn öðluðust rétt til námslána.Ábyrgð
Mennta- og menningarmálaráðuneytið
Kafli
Sterkt samfélag