Verkefni
Ríkisstjórnin leggur áherslu á að öryggismál þjóðarinnar séu í traustum skorðum í samræmi við markmið þjóðaröryggisstefnu fyrir Ísland sem samþykkt er af Alþingi.
Ráðuneyti
ForsætisráðuneytiðKafli
Utanríkis- og alþjóðamál og þróunarsamvinna
Framvinda
Þjóðaröryggisráð er sjálfstætt stjórnvald og starfar á grundvelli laga nr. 98/2016 um þjóðaröryggisráð. Forsætisráðuneytið veitir ráðinu nauðsynlega starfsaðstöðu og aðstoð við störf þess. Þjóðaröryggisráð hefur eftirlit með því að þjóðaröryggisstefna fyrir Ísland sé framkvæmd í samræmi við ályktun Alþingis um þjóðaröryggisstefnu fyrir Ísland. Ráðið er jafnframt samráðsvettvangur um þjóðaröryggismál. Framkvæmd þjóðaröryggisstefnunnar á einstökum sviðum er hjá viðkomandi ráðuneytum. Þjóðaröryggisráð fylgir eftir framkvæmd þjóðaröryggisstefnunnar á reglulegum fundum auk þess sem ráðið gefur út skýrslur um framkvæmd þjóðaröryggisstefnunnar. Skýrslur um framkvæmd þjóðaröryggisstefnunnar á tímabilinu 2018 til 2022 liggja fyrir. Þjóðarryggisráð leggur mat á ástand og horfur í þjóðaröryggismálum og hefur gefið út tvær efnismiklar skýrslur ásamt ábendingum til stjórnvalda. Þjóðaröryggisráð hefur staðið fyrir ráðstefnum og málþingum um þjóðaröryggismál, nú síðast í mars 2023 um þjóðaröryggi og alþjóðasamstarf. Sérstakir samráðshhópar sérfræðinga hafa verið starfandi á vegum ráðsins, s.s. sérfræðingahópur um viðbúnað komi til rofs á sæstrengjum, tengiliðahópur ráðuneyta um útfærslur á tillögum um neyðarbirgðir sbr. skýrslu, og sérfræðingahópur um rýni á mögulegri miðlun á fölskum fréttum áróðri, lygum og undirróðri hér á landi til þess að grafa undan samfélagslegu trausti og lýðræði.Staða verkefnis
Komið vel á vegViðvarandi verkefni