Verkefni
Skattrannsóknir verða efldar samhliða því að vinna með aðilum vinnumarkaðarins að heilbrigðari vinnumarkaði.
Ráðuneyti
Fjármála- og efnahagsráðuneytiðKafli
Tekjuöflun, regluverk og opinbert eftirlit
Framvinda
Starfshópur á vegum fjármála- og efnahagsráðuneytisins sem vann að mótun tillagna til að sporna við því að skattkerfið, og þá sérstaklega virðisaukaskattskerfið, væri misnotað með útgáfu á tilhæfulausum reikningum sem leiðir af sér peningaþvætti skilaði skýrslu til ráðherra 27. febrúar 2023. Í framhaldinu var lagt fram frumvarp á 153. þingi um auknar eftirlitsheimildir Skattsins sem voru samþykktar sem lög 9. júní 2023.Verkefnið er sífelluverkefni en samþykkt laganna var mikilvægt skref í þeirri vegferð að bæta skatteftirlit og hindra skattsvik.