Hoppa yfir valmynd

Verkefni

Tryggt verður í öllu alþjóðlegu samstarfi að Ísland hafi fullt forræði yfir öllum auðlindum sínum.

Ráðuneyti

Utanríkisráðuneytið

Kafli

Utanríkis- og alþjóðamál og þróunarsamvinna

Framvinda

1) Nýr samningur undir Hafréttarsamningi Sameinuðu þjóðanna um verndun og sjálfbæra nýtingu líffræðilegrar fjölbreytni utan lögsögu ríkja var formlega samþykktur 19. júní 2023 og undirritaður af ráðherra 20. september. Starfshópur viðeigandi ráðuneyta og stofnana hefur hafið störf til að undirbúa fullgildingu og kortleggja mögulega innleiðingarlöggjöf. 2) Sendinefnd Íslands kynnti greinargerð og vísindalegan rökstuðning vegna landgrunnskröfu Íslands á Reykjaneshrygg fyrir landgrunnsnefnd Sameinuðu þjóðanna 9. ágúst 2023. Sendinefndin hefur þegar átt tvær fundarlotur með sérstakri undirnefnd landgrunnsnefndarinnar, í nóvember og febrúar sl. Gert er ráð fyrir tveimur fundarlotum til viðbótar á þessu ári og vonir standa til að niðurstaða náist 2025. Þegar vinnunni með nefndinni lýkur mun hún gefa út tilmæli um ytri mörk landgrunnsins á því svæði sem greinargerðin nær til.

Staða verkefnis

Komið vel á veg

Viðvarandi verkefni
Til baka
Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta