Hoppa yfir valmynd

Verkefni

Afkoma örorkulífeyrisþega verður áfram bætt með það að markmiði að bæta sérstaklega kjör þeirra sem lakast standa.

Ráðuneyti

Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Kafli

Örorka

Framvinda

Frumvarp um einfaldara og réttlátara örorkulífskerfi var samþykkt á Alþingi í júní 2024. Breytingarnar fela meðal annars í sér bætta þjónustu, mikilvæga hvata til atvinnuþátttöku og bætt kjör með betra og einfaldara greiðslukerfi. Þá er stuðningur aukinn við fólk meðan á endurhæfingu þess stendur, samvinnu þjónustuaðila komið á og áhersla lögð á að hindra að fólk falli á milli kerfa. Dregið hefur verið úr vægi tekna við útreikning sérstakrar uppbótar vegna framfærslu og búseta lífeyrisþega hér á landi hefur ekki lengur áhrif á útreikning uppbótarinnar. Frumvarp félags- og vinnumarkaðsráðherra var samþykkt á Alþingi í desember 2022 þar sem skerðingarhlutfall örorkulífeyris, endurhæfingarlífeyris og aldurstengdrar örorkuuppbótar var lækkað úr 11% í 9%. 

Staða verkefnis

Lokið
Til baka
Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta