Lokið |
Framvinda verkefnisins
Mikil vakning hefur orðið í umhverfismálum og æ fleiri fyrirtæki, sveitarfélög og stofnanir hafa sett loftslagsmálin á oddinn. Með breytingum á lögum um loftslagsmál vorið 2019 voru allar stofnanir og fyrirtæki í meirihlutaeigu ríkisins og öll sveitarfélög skylduð til að setja sér loftslagsstefnu og markmið um samdrátt í losun gróðurhúsalofttegunda. Umhverfisstofnun er þeim til ráðgjafar við að setja sér loftslagsmarkmið. Loftslagsstefna Stjórnarráðsins var samþykkt í ríkisstjórn í apríl 2019 og mun einnig nýtast framangreindum aðilum við að setja sér loftslagsmarkmið. Mikilvæg innlegg inn í þetta er sömuleiðis samstarfsvettvangur atvinnulífs og stjórnvalda um loftslagsmál og grænar lausnir (Grænvangur) sem stofnaður var árið 2019, sem og Loftslagsráð sem stofnað var í maí 2018 en í ráðinu eru auk annarra fulltrúar atvinnulífs og sveitarfélaga.
Áfram verður markvisst unnið að því að styðja við viðleitni fyrirtækja, sveitarfélaga og stofnana við að setja sér loftslagsmarkmið.
Ábyrgð
Umhverfis- og auðlindaráðuneytið
Kafli
Umhverfi og loftslag