Hafið |
Framvinda verkefnisins
Málið verður til skoðunar í tengslum við viðræður ríkis og sveitarfélaga um heildarendurskoðun á tekjustofnum.
Skv. samkomulagi um afkomu og efnahag sveitarfélaga árin 2021-2025, á grundvelli laga um opinber fjármál, verður skipuð nefnd um heildarendurskoðun á tekjustofnum sveitarfélaga í því skyni að styrkja og auka fjárhagslega sjálfbærni sveitarstjórnarstigsins. Endurskoðuninni á að vera lokið fyrir árslok 2021. Málið verður til skoðunar í tengslum við þær viðræður. Gistináttaskatturinn var felldur niður af sölu gistingar frá 1. apríl 2020 til 31. desember 2021 sem aðgerð til að bregðast við afleiðingum heimsfaraldurs kórónaveirunnar.
Ábyrgð
Fjármála- og efnahagsráðuneytið
Samstarfsráðuneyti
Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið og atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið.Kafli
Þróttmikið efnahagslíf