Lokið |
Framvinda verkefnisins
Grundvallarbreyting hefur orðið á iðn-, verk- og starfsnámi með setningu nýrra laga og reglugerða. Má þar nefna ný lög sem jafna aðgengi bók- og verkmenntaðra að háskólum og nýja reglugerð um vinnustaðanám, sem gjörbreytir eldra fyrirkomulagi. Mikið samstarf hefur verið við skólana og atvinnulífið, bæði við framkvæmd breytinga og kynningu á náminu. Efnisgjöld voru afnumin í framhaldsskólum og 25 ára reglan svokallaða, auk þess sem fjárveitingar til verk- og listnámsskóla hafa aukist. Boðaðar breytingar á starfsmenntun í garðyrkju eru til þess ætlaðar að efla starfsemina að Reykjum í Ölfusi og festa þá í sessi sem miðstöð garðyrkju í landinu. Aðsókn í verkmenntaskóla hefur aukist mikið á kjörtímabilinu og hefur sjaldan verið meiri.
Ábyrgð
Mennta- og menningarmálaráðuneytið
Kafli
Sterkt samfélag