Verkefni
Samhliða fari fram vinna við að greina og endurskoða þjónustu ríkis og sveitarfélaga við börn og barnafjölskyldur fyrstu ár ævinnar með það að markmiði að auka þjónustu við þennan hóp.
Ráðuneyti
Mennta- og barnamálaráðuneytiðKafli
Börn
Framvinda
Áfram unnið að verkefni sem miðar að því að koma á stuðningi og þjónustu við foreldra/forsjáraðila um uppeldi barna í samstarfi við leik- og grunnskóla. Unnið hefur verið að því að finna fræðslunálgun sem er aðgengileg, staðfærð, menningarnæm, sjálfbær og í takt við tíðarandann. Fyrir valinu varð fræðsluefnið Invest in Play sem byggir á leiðum sem efla sjálfsöryggi, meðvitund, sjálfstjórn og samskiptafærni foreldra. Efnið byggir á gagnreyndum aðferðum og þátttöku í alþjóðlegum rannsóknarhópi. Gerð hafa veriðíslensk myndbönd sem nýtt verða í námskeiðum fyrir foreldra og námsefnið þýtt á íslensku.