Hoppa yfir valmynd

Verkefni

Lögð verður áhersla á frjáls og opin alþjóðaviðskipti og greiðan aðgang íslensks atvinnulífs að erlendum mörkuðum. Haldið verður áfram að afnema viðskiptahindranir og horft til þess að fjölga fríverslunarsamningum, bæði tvíhliða og í samvinnu við önnur EFTA-ríki.

Ráðuneyti

Utanríkisráðuneytið

Kafli

Utanríkis- og alþjóðamál og þróunarsamvinna

Framvinda

Fríverslunarsamningaviðræður eru í gangi á vettvangi EFTA við Kósovó, Taíland, Víetnam, Malasíu og MERCOSUR-ríkin. Einnig hófust viðræður um uppfærslu fríverslunarsamnings EFTA-ríkjanna við Úkraínu í apríl 2024. Samkomulag náðist milli EFTA-ríkjanna og Indlands um viðskiptasamning í febrúar 2024 og var samningur undirritaður í mars. Einnig náðist samkomulag milli EFTA-ríkjanna og Síle í janúar 2024 um uppfærslu fríverslunarsamnings og verður samningurinn undirritaður á ráðherrafundi EFTA í júní 2024. Efnahagssamráð við Bandaríkin fór fram í Washington í apríl 2024 og samráð milli EFTA og viðskiptaráðuneytis Bandaríkjanna fór fram í Washington í desember 2023. Stefnt er að því að halda fund sameiginlegrar nefndar Kína og Íslands á grundvelli fríverslunarsamnings ríkjanna haustið 2024. Fastafulltrúi Íslands gagnvart WTO leiðir viðræður um ríkisstyrki í sjávarútvegi og verður reynt að ná niðurstöðu sumarið 2024. Áfram er unnið að gerð loftferðasamninga og tvísköttunarsamninga. 

Staða verkefnis

Komið vel á veg

Viðvarandi verkefni
Til baka
Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta