Lokið |
Framvinda verkefnisins
Forsætisráðherra skipaði framtíðarnefnd um áskoranir og tækifæri vegna tæknibreytinga í júní 2018.
Stjórnarráðið | Framtíðarnefnd forsætisráðherra (stjornarradid.is)
Í framtíðarnefndinni eiga sæti 11 alþingismenn, fulltrúar allra þingflokka á Alþingi. Fyrsta skýrsla nefndarinnar kom út í nóvember 2019 og fjallaði hún um þróun atvinnulífs, umhverfis, byggðar og lýðfræðilegra þátta. Breytingar hafa verið gerðar á þingsköpum og sett inn bráðabirgðaákvæði þar sem gert er ráð fyrir að á næsta kjörtímabili verði kosið í framtíðarnefnd samhliða kosningum í fastanefndir. Í fjárlögum var samþykkt fjárveiting á næsta ári til að mæta kostnaði við nefndina.
Ábyrgð
Forsætisráðuneytið
Samstarfsráðuneyti
Alþingi, atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið og mennta- og menningarmálaráðuneytiðKafli
Sterkt samfélag