Lokið |
Framvinda verkefnisins
Ný íþróttastefna til ársins 2030 hefur verið samþykkt og markvisst er unnið að innviðastarfi. Tillögur um aðgerðir gegn áreitni og ofbeldishegðun í íþrótta- og æskulýðsstarfi voru mótaðar og sérstakur samskiptaráðgjafi er tekinn til starfa skv. nýjum lögum fá Alþingi. Þá hefur sjálfseignarstofnun um lyfjaeftirlit í íþróttum verið komið á fót og stefna í æskulýðsmálum verið gefin út. Miklar umbætur hafa verið gerðar á skráningum og tölfræði og þátttaka barna af erlendum uppruna í íþrótta- og æskulýðsstarfi er greind með reglubundnum hætti. Fjárstuðningur við íþróttahreyfinguna vegna tekjufalls af völdum heimsfaraldurs var verulegur og bjargaði félögum frá verulegum fjárhagsvandræðum.Ábyrgð
Mennta- og menningarmálaráðuneytið
Kafli
Sterkt samfélag