Staðarval fyrir nýja geðdeildarbyggingu Landspítala
Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að ný bygging fyrir geðþjónustu Landspítala verði staðsett utan Hringbrautarlóðar.
„Með nýju staðarvali er lagt upp með að hraða framkvæmdum og tryggja að húsnæðið og umhverfi þess uppfylli nútímakröfur um batamiðaða hönnun“ segir Willum Þór.
Ákvörðunin byggir á ítarlegri valkostagreiningu sem sýnir ótvíræða kosti þessarar ráðstöfunar og er í samræmi við tillögu stýrihóps um skipulag framkvæmda við Nýjan Landspítala. Byggt er á því að nýtt húsnæði verði í innan við fimm kílómetra fjarlægð frá Hringbraut, sem tryggi nálægð við aðra þjónustu spítalans. Stýrihópurinn hefur þegar hafið undirbúning að lóðarvali í samráði við Reykjavíkurborg. Áætluð stærð nýbyggingarinnar er 24.000 fermetrar.
Heilbrigðisráðherra tilkynnti á síðasta ári ákvörðun sína um að nýbygging geðþjónustu Landspítala verði hluti af öðrum áfanga uppbyggingar NLSH. Núverandi húsnæði við Hringbraut og á Kleppi væri ekki boðlegt og ástands-, eiginleika- og hentugleikaskoðun sem gerð var á húsnæðinu staðfesti það.
Í framhaldi af þeirri ákvörðun var ráðist í fyrrnefnda valkostagreiningu um staðsetningu. Hún leiðir meðal annars í ljós að uppbygging við Hringbraut myndi hafa hamlandi áhrif á þróun annarrar starfsemi spítalans á lóðinni til framtíðar. Enn fremur gætu framkvæmdir við nýbyggingu og/eða breytingar á eldra húsnæði ekki hafist fyrr en megnið af eldri byggingum hefðu verið rýmdar. Þannig mætti áætla að geðþjónusta í nýjum húsakynnum kæmist ekki í gagnið fyrr en eftir 10 til 15 ár.
Áætlaður framkvæmdatími við nýja geðdeildarbyggingu er fimm ár og væntingar um verklok eru árið 2029 eða 2030.
„Það er mikið í húfi að vanda til verka og hugsa til framtíðar varðandi alla uppbyggingu Nýs Landspítala. Að baki þessari ákvörðun um framtíðarstaðsetningu geðþjónustunnar liggur mikil og vönduð greiningarvinna sem ég er sannfærður um að leiði okkur að bestu mögulegu niðurstöðu í þessu vandasama og mikilvæga verkefni“ segir Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra.