Hoppa yfir valmynd
6. mars 2023 Heilbrigðisráðuneytið

Nýtt hjúkrunarheimili á Akureyri - samið um stærri framkvæmd

Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra og Ásthildur Sturludóttir bæjarstjóri Akureyrarbæjar hafa undirritað samning sem kveður á um að nýtt hjúkrunarheimili sem byggt verður á Akureyri verði fyrir 80 íbúa í stað 60 samkvæmt eldri samningi. Gert er ráð fyrir að framkvæmdir hefjist á næsta ári og að heimilið verði tilbúið til notkunar árið 2026.

Hjúkrunarheimilið mun rísa við Vestursíðu 13 í Glerárhverfi. Áætlaður heildarkostnaður nemur tæpum 4,3 milljörðum króna sem skiptist þannig að 85% greiðast úr ríkissjóði en 15% greiðir Akureyrarbær. Við hönnun heimilisins skal fylgt viðmiðum ráðuneytisins um skipulag hjúkrunarheimila frá árinu 2022. Líkt og þar kemur fram er gert ráð fyrir að hjúkrunarheimilum sé skipt niður í nokkrar litlar heimiliseiningar með um 8-11 einkarýmum ásamt sameiginlegum rýmum fyrir íbúa og starfsfólk.

Ráðist verður í framkvæmdina á grundvelli alútboðs þar sem reynslan sýnir að sú leið getur stytt framkvæmdatíma og leitt til meiri hagkvæmni.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta