Hoppa yfir valmynd
17. mars 2025 Dómsmálaráðuneytið

Frumvarp til laga um sameinað embætti sýslumanns samþykkt í ríkisstjórn

Frá Selfossi - myndGolli
Ríkisstjórnin samþykkti frumvarp dómsmálaráðherra um sameinað embætti sýslumanns á ríkisstjórnarfundi síðastliðinn föstudag.

Markmið með sameiningu eru skýr um framfarir, hagræðingu og að efla byggðir landsins. Með frumvarpinu er skýrt kveðið á um meginhlutverk sýslumanns, sem er nýmæli, um að stuðla að jöfnu aðgengi að þjónustu óháð búsetu þannig að skipulag þjónustunnar taki mið af þörfum íbúa fyrir staðbundna þjónustu. Jafnframt er nýmæli að kveða skýrt á um hlutverk sýslumanns að standa vörð um starfsemi embættisins á landsbyggðinni með það að markmiði að fjölga verkefnum og störfum þar. Um er að ræða grundvallarhlutverk sýslumanns sem styður við áherslur ríkisstjórnarinnar og byggðaáætlunar um að efla byggðir landsins.  

„Þetta er eitt af þessum málum sem mikið hefur verið rætt um en aldrei verið klárað. Þessi ríkisstjórn er verkstjórn og við ætlum afgreiða þetta mál. Sameinað embætti sýslumanns verður öflugt með 27 starfsstöðvar um landið allt. Þetta er ekki síður byggðamál en hagræðingarmál,“ segir Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta