Hoppa yfir valmynd
7. apríl 2025 Heilbrigðisráðuneytið

Brugðist við vegna heilbrigðisógnar af völdum falsaðra ópíóíða (Nitazene)

Brugðist við vegna heilbrigðisógnar af völdum falsaðra ópíóíða (Nitazene) - myndHeilbrigðisráðuneytið

Heilbrigðisráðuneytið efndi til skyndifundar í dag með fulltrúum Lyfjastofnunar, Landspítala, embætti landlæknis, tollayfirvalda, lögreglunnar, Rannsóknarstofu í lyfja- og eiturefnafræði, Afstöðu og Matthildi skaðaminnkun, um leiðir til að bregðast við innflutningi ólöglegra og lífshættulegra ópíóíða. Tilefnið var haldlagning Tollsins á miklu magni af fölsuðum töflum sem litu út eins og oxycontin (80 mg.) en innihéldu nitazene. Nitazene er mjög sterkur ópíóíði, framleiddur á ólöglegum tilraunastofum. Vegna mikils styrks efnisins, er veruleg hætta á öndunarstoppi hjá þeim sem neyta þess sem leitt getur til dauða og eru þess mörg dæmi víða um Evrópu þar sem efnið hefur komist í umferð á ólöglegum fíkniefnamarkaði.

Alma D. Möller heilbrigðisráðherra segir lífsspursmál að gera allt sem hægt er til að fyrirbyggja að efnið komist inn á fíkniefnamarkaðinn og jafnframt að vera viðbúin ef það gerist til að sporna við alvarlegum afleiðingum: „Reglubundin vöktun innlendra aðila og samstarf við erlendar eftirlitsstofnanir eru forsenda skjótra viðbragða ef ný hættuleg efni komast í umferð, hérlendis eða erlendis. Slíkum viðbragðshópi þarf að koma á fót án tafar, ásamt fleiri aðgerðum til fyrirbyggja eða lágmarka skaða“ segir ráðherra.

Á fundinum í dag var rætt um tillögur að tafarlausum aðgerðum, m.a. með hliðsjón af minnisblaði frá Matthildi skaðaminnkun og Afstöðu til ráðuneytisins. Helstu atriði sem þar voru rædd eru:

  • Stofnun vöktunarhóps
  • Aukið aðgengi að hraðprófum sem mæla Nitazene
  • Aukið aðgengi að Naloxone (mótefni)
  • Aðgengi skaðaminnkandi þjónustuveitenda til að mæla efni í umferð sem talin eru hættuleg
  • Sameiginlegt verklag um snemmtæka viðvörun
  • Fræðsla um skaðsemi Nitazene fyrir notendur vímuefna, viðbragðsaðila, heilbrigðisstarfsfólk o.fl.

Í erindi Lyfjastofnunar til heilbrigðisráðuneytisins síðastliðinn föstudag kom fram að þetta afbrigði af nitazene væri ekki meðal þeirra ólöglegu efna sem tilgreind eru í fylgiskjali með reglugerð 333/2001 um ávana- og fíkniefni og önnur eftirlitsskyld efni. Heilbrigðisráðuneytið setti samdægurs reglugerð með uppfærslu á fylgiskjalinu og öðlaðist hún þegar gildi.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta