Hoppa yfir valmynd
6. febrúar 2025 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Guðbjörg Ingunn Magnúsdóttir aðstoðar mennta- og barnamálaráðherra

Guðbjörg Ingunn Magnúsdóttir - mynd

Guðbjörg Ingunn Magnúsdóttir hefur verið ráðin aðstoðarmaður Ásthildar Lóu Þórsdóttur, mennta- og barnamálaráðherra.

Guðbjörg útskrifaðist árið 2004 sem grunnskólakennari frá Kennaraháskóla Íslands og er með MA-gráðu í foreldrafræðslu og uppeldisráðgjöf frá Háskóla Íslands.

Guðbjörg hefur fjölbreytta reynslu á málefnasviði mennta- og barnamálaráðuneytisins. Hún starfaði sem kennari við Sæmundarskóla, Lágafellsskóla og Árbæjarskóla auk þess að hafa starfað sem deildarstjóri á leikskólanum Hlaðhamri.

Síðustu ár hefur hún starfað í Suðurmiðstöð Reykjavíkur sem íþrótta- og samskiptatengill og sem verkefnastjóri Velkominn í hverfið, sem hefur það að markmiði að styðja sérstaklega við börn og fjölskyldur af erlendum uppruna.

Guðbjörg býr yfir mikilli reynslu af farsældarlögunum og hefur bæði gegnt hlutverki tengiliðar og málstjóra frá upphafi innleiðingar þeirra. Þá hefur hún líka verið teymis- og verkefnastjóri í SkaHm sem er skammtímadvöl fyrir börn með fjölþættan vanda.

Guðbjörg var ráðin í stöðu sérfræðings í mennta- og barnamálaráðuneytinu í byrjun árs en gegnir stöðu aðstoðarmanns frá og með deginum í dag samkvæmt ákvörðun ráðherra.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta