Alþingisgarðurinn friðlýstur
Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, undirritaði í dag friðlýsingu vegna Alþingisgarðsins við Kirkjustræti. Friðlýsingin tekur til garðsins í þeirri mynd sem hann hefur varðveist.
Alþingisgarðurinn er elsti og best varðveitti almenningsgarður við opinbera byggingu á Íslandi. Framkvæmdir stóðu yfir frá 1893 til 1894 en hönnun garðsins lá fyrir í upphafi, sem markaði tímamót í íslenskri garðsögu. Upphafsmaður verksins var Tryggvi Gunnarsson alþingismaður, en Tryggvi var jarðsettur í garðinum að eigin ósk og er á leiði hansminnisvarði eftir Ríkarð Jónsson myndhöggvara.
Friðlýsingin er gerð að tillögu Minjastofnunar Íslands og er í samræmi við ákvæði laga um menningarminjar, nánar tiltekið 18. gr. sem fjallar um friðlýsingu húsa og mannvirkja eða hluta þeirra sem hafa menningarsögulegt, vísindalegt eða listrænt gildi.
Friðlýsingin tekur til Alþingisgarðsins við Kirkjustræti 14 í þeirri mynd sem hann hefur varðveist, skipan stíga, beða, trjágróðurs og tegundaflóru innan hvers reits, minnisvarða, hleðslna og yfirborðsefna og hlaðinna veggja umhverfis garðinn. Garðurinn er 901,8 fermetrar að stærð, lengd hans er 33,1 metrar og breidd 27,2 metrar, og miðast útmörk friðlýsingarinnar við það. Vikið er frá því að hafa 100 m friðhelgunarsvæði umhverfis útmörk garðsins, sbr. 22. gr. laga um menningarminjar.
Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra: „Það er mér mikil ánægja að staðfesta tillögu Minjastofnunar um friðlýsingu Alþingisgarðsins. Garðurinn markaði tímamót í íslenskri garðsögu og upphafsmaður hans Tryggvi Gunnarsson sinnti garðinum einstaklega vel, jafnvel á efri árum. Í Alþingisgarðinum fyrirfinnast enn ýmsar tegundir plantna, sumar horfnar þaðan eins og Þingvíðirinn sem nefndur er eftir garðinum, en margar þrífast þar enn enda hefur garðinum alltaf verið vel sinnt. Skipulag garðsins hefur ekki mikið breyst frá þarsíðustu öld. Í honum má líka sjá handverk í formi hleðslna og hlaðinna veggja. Alþingisgarðurinn er táknrænn fyrir margra hluta sakir og gildi hans afar mikið á landsvísu. En mest um vert er að allan tímann hefur hann verið opinn almenningi og er Alþingisgarðurinn því garður okkar allra.”
Viðstödd friðlýsinguna voru, auk ráðherra, forseti Alþingis og fulltrúar Alþingis, Minjastofnunar og umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins.
Loftmynd af mörkum þess svæðis sem friðlýsingin tekur til. Ljósmynd/Loftmyndir ehf.