Hoppa yfir valmynd
29. janúar 2025 Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

Verkefnisstjórn rammaáætlunar fengin til að endurmeta virkjanakosti

Ferðamenn á Geysissvæðinu - myndHugi Ólafsson

Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku og loftslagsráðherra, hefur farið þess á leit við verkefnisstjórn rammaáætlunar að taka tiltekna virkjunarkosti aftur til mats í samræmi við ákvæði laganna um verndar- og orkunýtingaráætlun svo verndarsvæði þeirra verða afmörkuð með þeim hætti sem lög gera ráð fyrir. 

Með dómi 27. mars 2024 felldi Hæstiréttur úr gildi friðlýsingu  verndarsvæðis Jökulsár á Fjöllum frá 10. ágúst 2019. Var það forsenda dómsins að framkvæmd friðlýsingarinnar hafi verið ólögmæt, þar sem Alþingi hafði ekki fjallað um afmörkun verndarsvæðisins líkt og lög nr. 48/2011, um verndar- og orkunýtingaráætlun gera ráð fyrir. Friðlýsing sjö svæða til viðbótar var í kjölfarið afturkölluð á sömu forsendum.

Svæðin átta sem ráðherra hefur óskað eftir að verkefnisstjórn rammaáætlunar taki til endurmats eru:

  • Jökulsá á Fjöllum. Friðlýst 10. ágúst 2019.
  • Geysir. Friðlýst 19. mars 2021. (Geysissvæðið var einnig friðlýst sem náttúruvætti 17. júní 2020)
  • Kerlingarfjöll. Friðlýst 19. mars 2021. (Kerlingarfjöll voru einnig friðlýst sem landslagsverndarsvæði 10. ágúst 2020)
  • Brennisteinsfjöll. Friðlýst 25. apríl 2020.
  • Gjástykki. Friðlýst 1. apríl 2020.
  • Hólmsá. Friðlýst 26. ágúst 2021.
  • Jökulfall og Hvítá. Friðlýst 16. september 2021.
  • Tungnaá. Friðlýst 30. ágúst 2021.

Umræddir virkjunarkostir voru flokkaðir í verndarflokk verndar- og orkunýtingaráætlunar með þingsályktun í febrúar 2013. Ný áætlun tók hins vegar gildi í júní 2022 og er þessa virkjunarkosti ekki að finna í þeirri áætlun. Það þýðir að kostirnir þurfa að fara aftur í gegnum ferli verndar- og orkunýtingaráætlunar og Alþingi þarf að flokka þá á ný í verndarflokk áætlunarinnar með skýrt afmörkuðu verndarsvæði til að hægt sé að friðlýsa þá aftur í samræmi við niðurstöðu dómsins. Þegar framangreindar tillögur verkefnisstjórnar liggja fyrir og hafa borist ráðuneytinu mun Alþingi fá þá til meðferðar á ný.    

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta