Flutningur ráðuneytisstjóra
Gissur Pétursson, ráðuneytisstjóri félags- og vinnumarkaðsráðuneytisins, hefur að eigin ósk látið af embætti ráðuneytisstjóra. Gissur mun starfa áfram sem sérfræðingur í ráðuneytinu.
Gissur Pétursson
Félags- og húsnæðismálaráðherra, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra og Ásdís Halla Bragadóttir hafa gert með sér samkomulag um flutning Ásdísar Höllu í embætti ráðuneytisstjóra félags- og vinnumarkaðsráðuneytisins en heiti þess verður breytt í félags- og húsnæðismálaráðuneyti 1. mars nk. Ásdís Halla var skipuð í embætti ráðuneytisstjóra háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytisins 2022.
Ásdís Halla Bragadóttir
Þá hefur náðst samkomulag milli menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra, atvinnuvegaráðherra og Sigrúnar Brynju Einarsdóttur um flutning Sigrúnar Brynju í embætti ráðuneytisstjóra háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytisins en heiti ráðuneytisins verður breytt í menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneyti 1. mars nk. Sigrún Brynja var skipuð í embætti ráðuneytisstjóra menningar- og viðskiptaráðuneytisins 2023.
Sigrún Brynja Einarsdóttir
Allar þessar breytingar hafa þegar tekið gildi.