Hoppa yfir valmynd
4. september 2024 Heilbrigðisráðuneytið, Mennta- og barnamálaráðuneytið, Dómsmálaráðuneytið

Aðgerðahópur vegna ofbeldis í garð og á meðal barna tekur til starfa

Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra, ávarpar aðgerðahóp á fyrsta fundi hópsins í dag - mynd

Nýskipaður aðgerðahópur vegna ofbeldis í garð og á meðal barna hóf störf í dag. Hópnum er falið að hrinda í framkvæmd aðgerðum sem mennta- og barnamálaráðuneytið og dómsmálaráðuneytið kynntu á blaðamannafundi 25. júní sl. og aðgerðum heilbrigðisráðuneytisins er lúta að heilbrigði og vellíðan barna. Með aðgerðunum er ætlunin að sporna við þróun í átt að auknu ofbeldi, auka forvarnarstarf og leiða saman fjölbreytta þjónustu- og viðbragðsaðila í samstilltu átaki gegn vaxandi ofbeldi meðal barna og ungmenna á Íslandi.

Frá því að grunur vaknar um að barn hafi orðið fyrir alvarlegu ofbeldi eða er líklegt til að verða fyrir því, skiptir sköpum hvernig brugðist er við til þess að tryggja vernd, vellíðan og öryggi þess. Hið sama á við um barn sem hefur beitt eða er líklegt til að beita ofbeldi. Þjónusta sem tekur mið af þörfum barna er einn mikilvægasti liðurinn í því að tryggja börnum viðeigandi og tímanlega aðstoð þegar hennar er þörf.

Mikil áhersla er lögð á þétta og góða samvinnu allra þeirra sem koma að málefnum barna. Hópurinn er skipaður fulltrúum mennta- og barnamálaráðuneytisins, dómsmálaráðuneytisins, heilbrigðisráðuneytisins, Sambands íslenskra sveitarfélaga, Miðstöðvar menntunar og skólaþjónustu, Reykjavíkurborgar, Barna- og fjölskyldustofu, heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, embættis ríkislögreglustjóra, lögregluembætta og Heimilis og skóla.

Starfshópnum er ætlað að forgangsraða aðgerðum, móta áætlun um framkvæmd og innleiðingu þeirra, fylgja innleiðingunni eftir og mæla árangur. Með markvissri innleiðingu aðgerða, eftirfylgni og árangursmælingum er ekki einungis verið að mæta þeirri alvarlegu stöðu sem upp er komin hér á landi heldur gefst einnig kostur á því að varpa ljósi á umfang og eðli vandans og bregðast rétt við. Slíkt er afar þarft til þess að tryggja viðeigandi viðbrögð og úrræði, auk þess sem það dregur úr líkunum á ófyrirséðum neikvæðum afleiðingum inngrips.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum