Þrír umsækjendur um stöðu íslensks dómara við Mannréttindadómstól Evrópu
Þrjár umsóknir bárust um embætti íslensks dómara við Mannréttindadómstól Evrópu en umsóknarfrestur rann út 8. ágúst sl. Umsækjendur um embættið eru Dóra Guðmundsdóttir lögfræðingur, Oddný Mjöll Arnardóttir landsréttardómari og Páll Þórhallsson skrifstofustjóri.
Mannréttindadómstóll Evrópu í Strassborg fjallar um mál sem til hans er vísað af einstaklingum og samningsaðilum vegna meintra brota á ákvæðum mannréttindasáttmála Evrópu eða samningsviðaukum við hann. Dómstóllinn er skipaður einum dómara frá hverju samningsríkja.