Ákvörðun stjórnvalda um móttöku flóttafólks á næsta ári
Ríkisstjórnin tók í dag ákvörðun um móttöku allt að 75 flóttamanna á næsta ári, að stærstun hluta Sýrlendingum sem staddir eru í Líbanon en einnig hinsegin flóttamönnum og fjölskyldum þeirra sem nú eru í Kenía. Ákvörðunin byggist á tillögum flóttamannanefndar í samstarfi við Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna.
Þetta er í fjórða sinn sem stjórnvöld taka á móti sýrlensku flóttafólki en fyrsti hópurinn kom hingað árið 2015 og í þriðja sinn sem tekið er á móti hinsegin flóttafólki.
Sýrlendingar eru fjölmennastir í hópi fólks á flótta í heiminum sem er í þörf fyrir alþjóðlega vernd. Sýrlenskir flóttamenn í Líbanon telja yfir milljón manns, búa þar við þröngan kost og staða þeirra hefur farið síversnandi. Þess má geta að um 55% sýrlenskra barna á flótta sem stödd eru í Líbanon hafa ekki aðgang að formlegri menntun.
Staða hinsegin flóttafólks í Afríku er viðkvæm vegna útbreiddra fordóma. Algengt er að hinsegin flóttafólk og fjölskyldur þess verði fórnarlömb ofbeldis í flóttamannabúðum.
Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna skilgreinir nú alls 19,9 milljónir manna sem flóttafólk og áætlar stofnunin að af þeim séu 1,4 milljónir í brýnni þörf fyrir að komast í öruggt skjól. Þótt ríkjum sem taki á móti flóttafólki í samstarfi við Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna hafi fjölgað á liðnum áru, er samt tekið á móti færri einstaklingum en áður. Fækkunin milli áranna 2016 og 2017 nam 48% en árið 2017 voru þetta um 65.000 einstaklingar.
Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna hefur sent þjóðum heims ákall um að taka á móti fleira flóttafólki á næsta ári. Skipulögð móttaka flóttafólks bjargar ekki aðeins mannslífum og kemur í veg fyrir að einstaklingar leggi af stað í lífshættuleg ferðalög, heldur léttir það einnig á þeim ríkjum sem bera hvað þyngstar byrðar þegar kemur að málefnum flóttafólks. Um 85% alls flóttafólks í heiminum dvelja nú í grannríkjum landa þar sem stríðsátök eiga sér stað.
Næstu skref vegna áformaðrar móttöku flóttafólks hér á landi verða að upplýsa Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna um ákvörðun ríkisstjórnarinnar. Stofnunin leggur í framhaldi af því fram upplýsingar um þá einstaklinga sem hún telur koma til greina að bjóða til Íslands og verður unnið úr þeim upplýsingum hér á landi, meðal annars með aðkomu Útlendingastofnunar. Þegar fyrir liggur hverjum verður tekið á móti og þar með upplýsingar um samsetningu hópsins, aldur, fjölskyldusamsetningu og fleira tengt aðstæðum þeirra og þörfum, semur velferðarráðuneytið við tiltekið sveitarfélag eða sveitarfélög um móttöku fólksins.