Hoppa yfir valmynd
1. september 2022 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Helgi Geirharðsson er nýr verkefnastjóri við uppbyggingu þjóðarhallar í íþróttum

Helgi Geirharðsson er nýr verkefnastjóri hjá framkvæmdanefnd um uppbyggingu þjóðarhallar í innanhússíþróttum í Laugardal. Verkefnastjóri vinnur að gerð allra gagna í umboði framkvæmdanefndar og undirbýr og boðar fundi í samstarfi við formann nefndarinnar.

Helgi hefur víðtæka reynslu af uppbyggingu innviða, bæði sem verkefnastjóri og ráðgjafi. Hann hefur unnið að uppbyggingu innviða á Hlíðarenda, í Skerjafirði, í Sundahöfn og Faxaflóahöfnum, í Bláa lóninu, á Hellisheiði og erlendis, bæði fyrir ríki og sveitarfélög og fyrirtæki á borð við Carbfix, Marel, Bechtel, Brimborg og Samskip.

Ásmundur Einar Daðason ráðherra íþróttamála skipaði starfshóp um uppbyggingu þjóðarleikvanga sl. vetur. Í kjölfar undirritunar viljayfirlýsingar stjórnvalda og Reykjavíkurborgar 6. maí sl. um nýja þjóðarhöll var skipuð framkvæmdanefnd um uppbygginguna.

Hlutverk framkvæmdanefndar er að leiða faglega vinnu vegna allra þátta uppbyggingar mannvirkisins og skipulags því tengdu s.s. vegna hönnunar, útboða, tæknilegrar útfærslu, rekstrarforms og hvernig staðið verður að fjármögnun. Einnig að fylgja eftir að nauðsynlegir verkþættir vegna uppbyggingar mannvirkis fyrir innanhússíþróttir í Laugardal séu framkvæmdir samkvæmt þeim reglum sem gilda um opinberar framkvæmdir. Er þá átt við frumathugun, áætlunargerð, verklega framkvæmd og skilamat. Hópnum er falið að útbúa tímasetta framkvæmdaáætlun vegna uppbyggingar mannvirkisins.

Framkvæmdanefndin vinnur sín verkefni í samráði við starfshóp um uppbyggingu þjóðarleikvanga og kallar til ráðgjafa eftir því sem við á. Hún gefur starfshópnum reglulegar upplýsingar um framgang verkefnisins auk þess að tryggja nauðsynlegt samráð við ráðgjafaráð skipað hagsmunaaðilum og öðrum notendum mannvirkisins.

Ráðgert er að byggingaframkvæmdum verði lokið á árinu 2025.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta