Hoppa yfir valmynd
11. september 2024 Forsætisráðuneytið, Heilbrigðisráðuneytið, Innviðaráðuneytið, Mennta- og barnamálaráðuneytið, Dómsmálaráðuneytið, Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Samstaða um auknar aðgerðir vegna ofbeldis meðal barna og gegn börnum

Stjórnvöld hafa ákveðið að fjölga aðgerðum vegna ofbeldis meðal barna og gegn börnum og auka fjármagn til aðgerðanna. Þetta var ákveðið á ríkisstjórnarfundi í gær. Alvarlegt ofbeldi sem hefur átt sér stað á síðustu misserum undirstrikar þörfina á samstilltu átaki til að bregðast við þróuninni af festu.

Aðgerðirnar voru kynntar á blaðamannafundi í júní og fjölgar nú úr 14 í 25. Þær snúa m.a. að eflingu meðferðarúrræða, samfélagslögreglu og vettvangsstarfs Flotans, auk eflingar þjónustu við börn í öllum sveitarfélögum á grundvelli farsældarlaga. Löggæsla verður sýnilegri og eftirfylgni vegna brota barna og ungmenna aukin. Komið verður á fót skimun fyrir ofbeldi í grunnskólum landsins og úrræði til að vinna með öll ofbeldismál barna. Þá verður undirbúið samfélagsátak í virku samtali við börn og ungmenni, foreldra og aðila sem hafa aðkomu að málefnum barna.

Aðgerðir er snúa að samfélagslögreglu, Flotanum, ungmennastarfi í Breiðholti, svæðisbundnu samráði um allt land og eflingu Saman-hópsins til eflingar foreldrastarfs hafa þegar farið af stað.

Með aðgerðunum er ætlunin að sporna við þróun í átt að auknu ofbeldi, auka forvarnarstarf og leiða saman fjölbreytta þjónustu- og viðbragðsaðila í samstilltu átaki gegn vaxandi ofbeldi meðal barna og ungmenna á Íslandi.

Mikil samvinna hefur átt sér stað þvert á ráðuneyti og aðila sem starfa að málefnum barna við að kortleggja birtingarmyndir ofbeldis gagnvart og meðal barna og ungmenna. Aðgerðirnar byggja á þessari vinnu.

Aðgerðahópur um aðgerðir vegna ofbeldis meðal barna og gegn börnum hefur þegar tekið til starfa. Hópurinn mun forgangsraða aðgerðum og hrinda þeim í framkvæmd. Árangur af aðgerðum verður metinn reglulega og þær aðlagaðar eftir þörfum.

Aðgerðirnar eru:

  1. Auka þverfaglega nálgun í ofbeldismálum meðal barna
  2. Styðja við meðferðarúrræði Barna- og fjölskyldustofu
  3. Koma á verklagi fyrir ósakhæf börn og úrræðum fyrir börn sem beita alvarlegu ofbeldi
  4. Endurskoða meðferð mála og úrræði fyrir sakhæf börn
  5. Efla samfélagslögreglu
  6. Innleiða svæðisbundið samráð um allt land
  7. Efla Landsteymi Miðstöðvar mennta- og skólaþjónustu sem styður við börn, foreldra og skóla
  8. Setja á fót úrræði fyrir ungmenni 1617 ára sem eru hvorki í vinnu né námi (NEET)
  9. Efla ungmennastarf í Breiðholti
  10. Efla Flotann – flakkandi félagsmiðstöð
  11. Auka fræðslu og forvarnir  samfélagsátak
  12. Virkja foreldrastarf í umhverfi barna – SAMAN hópurinn
  13. Hefja alþjóðlegt samvinnuverkefni um sjálfbært samfélag
  14. Samhæfa aðgerðir gegn ofbeldi og móta stefnu til framtíðar
  15. Koma á skimun fyrir ofbeldi í grunnskólum landsins
  16. Útbúa leiðbeiningar fyrir heilbrigðisstarfsfólk til að bregðast við vegna limlestinga á kynfærum barna
  17. Uppfæra og samræma verklag hjá öllum heilbrigðisstofnunum landsins í heilbrigðisþjónustu við börn sem eru þolendur ofbeldis
  18. Útbúa fræðsluefni fyrir heilbrigðisstarfsfólk um rétt viðbrögð og verklag
  19. Skýra samskipti barnaverndar, lögreglu og heilbrigðisþjónustu um afdrif mála hjá barnavernd
  20. Samræma á landsvísu verklag við heilbrigðisþjónustu sem og réttarlæknisfræðilegar skoðanir og sýnatökur þegar grunur er um að barn hafi orðið fyrir kynferðisofbeldi
  21. Móta framtíðarsýn heilbrigðisþjónustu við börn sem búa við ofbeldi
  22. Auka viðbragð og sýnilega löggæslu
  23. Auka stuðning við 1., 2. og 3. stigs þjónustu í öllum sveitarfélögum vegna farsældar
  24. Styðja við innleiðingu framkvæmdaáætlunarinnar í barnavernd 2023–2027
  25. Auka eftirfylgni vegna brota barna og ungmenna

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum