Hoppa yfir valmynd
6. janúar 2025 Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

Lárus Ólafsson aðstoðar umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra

Lárus M. K. Ólafsson - mynd

Lárus M. K. Ólafsson hefur verið ráðinn aðstoðarmaður Jóhanns Páls Jóhannssonar, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra.

Lárus er lögfræðingur að mennt frá Háskóla Íslands og hefur sérhæft sig á sviði umhverfis- og auðlindamála. Hann var yfirlögfræðingur Orkustofnunar 2008-2011 og jafnframt staðgengill orkumálastjóra.

Lárus hefur frá 2019 starfað sem sérfræðingur á sviði orku- og umhverfismála hjá Samtökum iðnaðarins, en áður var hann lögfræðingur Samtaka verslunar og þjónustu (SVÞ) og Samtaka ferðaþjónustunnar (SAF). Þá starfaði hann sem lögfræðingur á skrifstofu orkumála hjá iðnaðarráðuneytinu og félagsmálaráðuneytinu á árunum 2005-2008.

Lárus hefur enn fremur annast kennslu á sviði umhverfis- og auðlindaréttar ásamt því að vera prófdómari við Háskóla Íslands á framangreindum sviðum.

Lárus hefur gegnt ýmsum nefndar- og stjórnarstörfum og hefur m.a. frá 2024 verið formaður norræna umhverfismerkisins Svansins á Íslandi og verið varaformaður í stjórn Úrvinnslusjóðs frá 2012.

Lárus tekur til starfa á næstu dögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta