Takmarkanir settar á útlitsbreytandi meðferðir með fylliefnum
Alma D. Möller heilbrigðisráðherra hefur staðfest nýja reglugerð sem kveður á um takmarkanir á útlitsbreytandi meðferðum með fylliefnum. Markmiðið er að tryggja öryggi þeirra sem undirgangast meðferð með fylliefnum sem er sprautað eða komið með öðrum hætti fyrir, í eða undir húð, í vöðva eða annan vef.
Reglugerðin tekur einungis til þeirra meðferða sem að framan er getið, en séu slíkar meðferðir ekki gerðar rétt getur það haft alvarlegar afleiðingar í för með sér. Aðrar andlits- og húðmeðferðir sem eru hættuminni, s.s. húðslípun, húðþétting og örnálameðferðir ásamt meðferðum sem framkvæmdar eru með lasertækjum og falla undir reglugerð nr. 171/2021 falla því utan við reglugerðina.
Í 4. gr. reglugerðarinnar er skilgreint hverjum sé heimilt að veita umræddar meðferðir og hvaða skilyrði þarf að uppfylla. Þetta eru læknar með sérfræðileyfi í húðlækningum og lýtalækningum. Enn fremur læknar, tannlæknar og hjúkrunarfræðingar, hafi þeir aflað sér fullnægjandi þekkingar og hæfni til að veita meðferðina, greina og bregðast við fylgikvillum, eða hafi í þjónustu sinni þar til bæran lækni sem getur brugðist við í tæka tíð. Aðeins er heimilt að veita þessar meðferðir á starfsstofu heilbrigðisstarfsmanns sem hefur hlotið staðfestingu landlæknis um að reksturinn uppfylli faglegar kröfur.
Samþykki og upplýsingaskylda
Meðferð má aldrei veita nema fyrir liggi undirritað samþykki þess sem meðferðina þiggur og skal samþykkið skráð í sjúkraskrá. Hlutaðeigandi skal upplýstur bæði munnlega og skriflega um meðferðina, eðli hennar, líklegan árangur, hugsanlega fylgikvilla, kostnað o.fl. Heilbrigðisstarfsmaður skal tryggja að viðkomandi hafi nægan tíma til að kynna sér upplýsingar um fyrirhugaða meðferð og skal hún ekki veitt fyrr en hið minnsta tveimur sólarhringum eftir að upplýsingamiðlun fór fram.
Tímafrestir og gildistaka reglugerðarinnar
Þeir sem hyggjast veita meðferðir sem reglugerðin fjallar um skulu tilkynna það til embættis landlæknis eigi síðar en 1. júlí næstkomandi. Reglugerðin tekur gildi 1. desember 2025. Frá og með gildistöku hennar er óheimilt að veita þessar meðferðir nema fyrir liggi staðfesting landlæknis á að faglegar kröfur séu uppfylltar, sbr. 3. mgr. 6. gr. laga um landlækni og lýðheilsu.