Helfararinnar verði minnst árlega á Íslandi
Í dag, 27. janúar, er alþjóðlegur minningardagur um helförina og í ár er þess minnst víða um heim að 80 ár eru liðin frá frelsun gyðinga úr fangabúðunum í Auschwitz. Í minningarathöfninni sem haldin er í Auschwitz í Póllandi er minnst þeirra sex milljóna gyðinga sem var útrýmt í helförinni og annarra fórnarlamba grimmilegra ofsókna nasista.
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra var viðstödd minningarathöfnina í Auschwitz fyrir hönd ríkisstjórnar Íslands.
Starfshópur komi með tillögur um hvernig megi minnast helfararinnar
Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra hefur óskað eftir því við starfshóp um minningardag um helförina, sem skipaður var í janúar 2023, að koma með tillögur að því hvernig rétt sé að minnast helfararinnar 27. janúar ár hvert á Íslandi.
„Við megum ekki gleyma helförinni og því að hún gat átt sér stað. Þetta á ekki síst við á tímum þar sem vaxandi sundurlyndis og skautunar gætir víða um heim í stjórnmálum og umræðu. Grimmdin sem bjó þarna að baki er illskiljanleg og tilhugsunin óhugnanleg,“ segir Kristrún í tilefni af þessu.
„Flest nágrannaríki okkar minnast helfararinnar þann 27. janúar ár hvert og það viljum líka gera á Íslandi. Það er mikilvægt að við höldum áfram að læra af sögunni, uppfræða börnin okkar og vera á varðbergi gagnvart fordómum og hatursorðræðu.“
Forsætisráðherra fundaði með rabbína gyðinga
Forsætisráðherra fundaði í dag með rabbína gyðinga á Íslandi, Avraham Feldman, og eiginkonu hans Mushky Feldman í tilefni dagsins. Saman sinna þau samfélagi gyðinga á Íslandi. Á fundinum var rætt um samfélag gyðinga á Íslandi, sögu þeirra hérlendis, hatursorðræðu í garð minnihlutahópa og um stöðu mála fyrir botni Miðjarðarhafs.
Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra ræðir við Avraham Feldman og Mushky Feldman.