Samráðsferli um sviðslistafrumvarp
Í ljós hefur komið að samráðsaðilar eru að læra á þetta breytta verklag sem nú er fylgt í samráði stjórnvalda við hagsmunaaðila og almenning. Það er mikilvægt að fá fram ábendingar og álitaefni inn með formlegum hætti og því er hvatt til þess að fólk kynni sér og noti Samráðsgáttina. Hún er hinn formlegi vettvangur til þess að koma á framfæri sjónarmiðum varðandi stefnumótun, reglusetningu og lagafrumvörp.
Unnið hefur verið að gerð frumvarps um sviðslistir í nær fimm ár. Samráðsferli þessara frumvarpsdraga hófst í janúar þegar boðað var til kynningarfundar um málið þar sem helstu hagsmunaaðilum voru kynnt frumvarpsdrögin og þeir hvattir til þess að koma skriflegum athugasemdum til ráðuneytisins.
Þegar áform um lagasetningu voru kynnt í Samráðsgátt stjórnvalda 27. september sl., bárust sex umsagnir. Við vinnslu frumvarpsins var farið yfir þær athugasemdir og leiddu sumar þeirra til breytinga. Frumvarpsdrögin sjálf voru síðan kynnt í Samráðsgáttinni 31. október sl.
Markmið Samráðsgáttarinnar er að auka gagnsæi og er þar á einum stað hægt að finna öll mál ráðuneyta sem birt hafa verið til samráðs við almenning og er öllum frjálst að senda þar inn umsagnir eða ábendingar.
Sjá nánar um hlutverk og virkni Samráðsgáttar stjórnvalda hér: