Hoppa yfir valmynd

Greining á útgjöldum

Rekstur og fjárfestingar

Mælaborðið sýnir yfirlit rekstrarafkomu þeirra málefnasviða og málaflokka sem utanríkisráðherra ber ábyrgð á. Taflan sýnir raungjöld, rekstur og tilfærslur í milljónum króna að frádregnum rekstrartekjum í samanburði við áætlanir ársins 2023 ásamt uppsöfnuðum frávikum frá fyrri árum.

Frávikagreining – málefnasvið og málaflokkar 2023

Heildarútgjöld, þ.e. samanlögð rekstrar- og fjárfestingarútgjöld þeirra málefnasviða og málaflokka sem utanríkisráðuneytið ber ábyrgð á námu 31.689 m.kr. á síðasta ári. Heildarfjárheimildir samkvæmt fjárlögum og fjáraukalögum fyrir árið 2023 að viðbættum millifærslum og framlögum vegna afskrifta og fjármagni sem flutt var frá fyrra ári voru 31.217 m.kr. Heildarafkoman eins og hún birtist í árslok 2023 var því neikvæð sem nemur 472 m.kr. Af þeirri fjárhæð eru 640 m.kr. neikvæð afkoma málaflokksins 4.50 Samningsbundin framlög vegna fjölþjóðasamstarfs. Lokastaða þessa liðar er felld niður í árslok. Að teknu tilliti til þessa er jákvæð afkoma í árslok 168 m.kr., þar af eru 461 m.kr. fluttar fjárheimildir frá árinu 2022. 

Málefnasvið 4 Utanríkismál

4.10 Utanríkisþjónusta og stjórnsýsla utanríkismála

Heildarfjárheimild málaflokksins nam 7.369 m.kr. að teknu tilliti til fluttra fjárheimilda frá fyrra ári sem námu 285 m.kr. Rekstrarafkoma innan ársins var neikvæð sem nemur 57 m.kr. eða sem nemur um 0,8% af fjárheimild ársins. 

Mestu frávikin voru á fjárlagaliðunum 03-300 Sendiráð Íslands og 03-190 Ýmis verkefni, en á 03-300 Sendiráð Íslands var afkoman neikvæð sem nemur 71 m.kr. Fluttar fjárheimildir frá fyrra ári námu 241 m.kr. og afkoma innan ársins var neikvæð um 312 m.kr. Gengis- og verðlagsbætur námu 104 m.kr. Á fjárlagaliðnum 03-190 Ýmis verkefni var afkoma ársins jákvæð sem nemur 33 m.kr. Frávikið skýrist fyrst og fremst af því að útgjöld vegna ferðakostnaðar og fundahalda voru lægri en áætlað var. Að öðru leyti er gert ráð fyrir að þessi afgangur nýtist í framhaldsverkefni norðurslóðasamstarfs.

Ráðstöfun varasjóðs

Einn varasjóður er fyrir bæði málefnasviðin og fellur hann undir málaflokkinn Utanríkisþjónusta og stjórnsýsla utanríkismála. Í upphafi árs 2023 var sjóðurinn 118 m.kr. og var 15 m.kr ráðstafað á fjárlagaviðfangið 03-101-101 Utanríkisráðuneytið, aðalskrifstofa til að mæta óvæntum útgjöldum, 42 m.kr. á fjárlagalið 03-300-101 Sendiráð Íslands til að mæta óvæntum útgjöldum og 58 m.kr. á fjárlagalið 03-111-101 Þýðingarmiðstöð utanríkisráðuneytisins vegna uppsafnaðs fráviks.

4.20 Utanríkisviðskipti

Fjárheimild málaflokksins var 885 m.kr. á árinu 2022. Undir málaflokkinn falla einungis framlög til Íslandsstofu, sjálfseignarstofnunar. Engin fjárfestingaútgjöld falla undir málaflokkinn. Rekstrargjöld málaflokksins voru í samræmi við áætlun ársins og þar sem engar fjárheimildir voru fluttar á milli ára var afkoma ársins í jafnvægi. 

4.30 Samstarf um öryggis- og varnarmál

Heildarfjárheimild málaflokksins var 5.442 m.kr., þar af var fjárheimild ársins 5.480 m.kr. og -39 m.kr. uppsafnaðar fjárheimildir frá fyrra ári. Rekstrargjöld ársins námu 5.275 m.kr. og var afkoma málaflokksins jákvæð sem nemur 167 m.kr. í árslok eða 3,1%. 

4.50 Samningsbundin framlög vegna fjölþjóðasamstarfs

Undir málaflokkinn falla aðildargjöld Íslands vegna fjölþjóðasamstarfs þvert á verkefni málaflokkanna sem fjallað hefur verið um að framan. Útgjöld vegna verkefna sem falla undir málaflokkinn sveiflast nokkuð milli ára og tekur hlutdeild Íslands reglulega breytingum í samræmi við reiknireglur hverrar stofnunar. Fjárheimild málaflokksins nam 4.166 m.kr. Rekstrargjöld málaflokksins voru 4.806 m.kr. og neikvætt frávik 640 m.kr. Helsta skýringin eru frávik sem hafa orðið á greiðslu framlaga til Uppbyggingarsjóðs EES. Greiðslur til sjóðsins sem voru innheimtar á árinu numu um 607 m.kr. meira en áætlað hafði verið og skýrir það frávikið. Verkefni sjóðsins hafa frestast af ýmsum ástæðum, m.a. vegna heimsfaraldurs, og gert er ráð fyrir auknum greiðslum til sjóðsins á yfirstandandi ári vegna þess. Fyrir þennan málaflokk er hvorki sett fram sérstök stefna, né markmið og mælikvarðar. Málaflokkurinn heldur fyrst og fremst utan um skylduframlög að fjölþjóðasamstarfi og byggist á stefnu sem mörkuð hefur verið í tengslum við aðra málaflokka.

Málefnasvið 35 alþjóðleg þróunarsamvinna

35.1 Þróunarsamvinna

Heildarfjárheimild málaflokksins var 13.208 m.kr. Þar af var fjárheimild ársins 12.994 m.kr og uppsafnaðar fjárheimildir liðinna ára 215 m.kr. Rekstrargjöld ársins námu 13.151 m.kr og var afkoma málaflokksins jákvæð sem nemur 58 m.kr í árslok. 

Framgangur verkefna í þróunarsamvinnu var að mestu í samræmi við stefnu og fyrirfram skilgreind markmið sem sett voru fram í aðgerðaáætlun málaflokksins. Viðbótarframlag var lagt til málaflokksins vegna stríðaátaka í Úkraínu, þar sem mikil þörf er á mannúðaraðstoð. Áætlað er að heildarframlög til þróunarsamvinnu hafi numið 0,36% af vergum þjóðatekjum en önnur ráðuneyti fara einnig með ráðstöfun hluta þess fjár.

 
Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum